SKÝRSLAN: Sætaskipti og skrítin framkvæmd
Hvað réði úrslitum?
Þetta var einn af þeim dögum þar sem boltinn vildi ekki inn hjá Þór/KA. Varnarleikur Víkings og Birta í markinu öflug en það vantaði gæði í heimakonur. Freyja tók sénsinn frábærlega, fast skot í fjærhornið og reyndist það eina markið.
Bestu leikmenn
1. Birta Guðlaugsdóttir
Átti að fá rautt spjald en hún getur ekki rekið sig sjálfa út af. Hélt hreinu og var örugg með sitt allar hinar sekúndur leiksins.
2. Freyja Stefánsdóttir/Bergdís Sveinsdóttir
Freyja fær þetta fyrir markið og Bergdís fyrir taktana sem glöddu augað.
Atvikið
Gula spjaldið sem Birta fékk á 26. mínútu. Hún fór út fyrir teig og var fyrir, og þar með braut á, Söndru Maríu sem kom boltanum yfir hana og féll til jarðar. Þarna átti klárlega rautt spjald að fara á loft.
Hvað þýða úrslitin?
Nýliðar Víkings enda í 3. sæti, tveimur stigum fyrir ofan Þór/KA sem er í 4. sæti. Langt er frá þessum liðum upp í toppliðin.
Vondur dagur
Sandra María Jessen. Markadrottningin var í krummafót í dag, hlutirnir féllu ekki með henni. Mér finnst persónulega mjög skrítið að hún hafi verið verðlaunuð fyrir leikinn, fékk verðlaun fyrir að hafa verið best í Bestu deildinni í sumar. Meira um það í viðtalinu við Jóhann Kristinn sem birt verður í kvöld.
Dómarinn - 4 - Fallei
Ekki góður leikur hjá dómaranum, rauða spjaldið vegur þungt.




