Fotbolti.net
Besta deildin
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Besta-deild karla
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
4 - 2
Breiðablik
Breiðablik
0 - 117' Óli Valur Ómarsson0 - 238' Tobias ThomsenSigurjón Rúnarsson 72'1 - 2Kennie Knak Chopart 75'2 - 2Guðmundur Magnússon 80'3 - 2Guðmundur Magnússon 82'4 - 2
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Leik lokið!
Fram vinnur svakalegan endurkomusigur gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks
Þvílíkt hugarfar og karakter í Framliðinu í kvöld en magnað að sjá Breiðabliksliðið hrynja, virkar eins og menn hafi orðið alltof kærulausir 2-0 yfir.
Fram
94. mín
Gult spjald

Guðmundur Magnússon

93. mín
Klukkan tifar og Fram færist nær svakalegum sigri...
91. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti 5 mínútur
Fram
87. mín
InnAlex Freyr Elísson
ÚtFrederico Bello Saraiva
Breiðablik
86. mín
InnDaniel Obbekjær
ÚtAnton Logi Lúðvíksson
86. mín
Höskuldur Gunnlaugsson með skot sem fer rétt framhjá.
84. mín
Þetta var ekki í kortunum
Rosaleg endurkoma hjá Fram. Minni á það að staðan var 2-0 fyrir Breiðabliki þegar Gummi Magg kom inn af bekknum.
Fram
82. mín
VÁÁÁÁÁÁÁ!!!!!!! ÞVÍLÍK AFGREIÐSLA!

Guðmundur Magnússon

Gummi Magg hirðir boltann af Viktori Margeirs, kemst einn gegn Antoni og vippar boltanum af stakri snilld yfir hann og í markið.
Fram
80. mín
ÞETTA ER ALGJÖRLEGA ROSALEGT!!!!!!

Guðmundur Magnússon (stoðsending: Vuk Oskar Dimitrijevic)

Eftir að hafa verið tveimur mörkum undir eftir fyrri hálfleikinn eru Framarar skyndilega komnir yfir!

Vuk með skot sem Anton ver en boltinn dettur á Gumma Magg sem skorar af stuttu færi.

Blikar biðja um rangstöðu en verða ekki að ósk sinni.
79. mín
Framarar farnir að hóta öðru marki en sending Gumma Magg ratar ekki.
Fram
75. mín
HEYRÐUUUU!!!!!!!!!

Kennie Knak Chopart

Gabríel skallar boltann frá en beint á Kennie, Gabríel ætlar svo í hann en rennur og maðurinn með fyrirliðabandið skorar með hnitmiðuðu skoti!

Skal viðurkenna að þessu bjóst ég alls ekki við eftir fyrri hálfleikinn.
75. mín
Aftur vilja þeir víti
Nú fer Tobias Thomsen niður í teignum og er allt annað en sáttur við bendingu ÞÞÞ um að þetta sé ekkert!
74. mín
Valgeir Valgeirsson fellur í teignum en ÞÞÞ dæmir ekkert.
Fram
72. mín
VIÐ ERUM MEÐ LEIK!!!

Sigurjón Rúnarsson (stoðsending: Simon Tibbling)

Eftir hornspyrnu á Simon Tibbling skot fyrir utan teig, boltinn dettur fyrir fætur Sjonna Rúnars sem minnkar muninn.
71. mín
Góðar fréttir, Anton Logi hristi þetta af sér og er aftur mættur inná.
Breiðablik
69. mín
Gult spjald

Anton Logi Lúðvíksson

Anton Logi lendir í árekstri, brýtur af sér á miðjum vellinum en meiðist sjálfur við það og þarf að fara af velli.
Breiðablik
66. mín
InnÁgúst Orri Þorsteinsson
ÚtViktor Karl Einarsson
Breiðablik
66. mín
InnKristinn Steindórsson
ÚtAron Bjarnason
Fram
66. mín
InnGuðmundur Magnússon
ÚtMagnús Þórðarson
Breiðablik
66. mín
Gult spjald

Valgeir Valgeirsson

Valgeir er ekki sáttur við þetta spjald.
63. mín
Magnús Þórðarson fær dauðafæri við stöngina en nær ekki að koma boltanum inn. Flaggið fer á loft, hefði ekki talið. Rangstaða.
60. mín
Israel Garcia með skot himinhátt yfir. Þessi endaði í sundlauginni.
59. mín
Arnór Gauti með marktilraun eftir horn en framhjá.
Fram
58. mín
Gult spjald

Frederico Bello Saraiva

Braut á Óla Val.
Breiðablik
57. mín
Gult spjald

Haraldur Björnsson

Markvarðaþjálfari Breiðabliks að láta í sér heyra á bekknum og fer í svörtu bókina.
56. mín
Stuðningsmenn Fram hafa ekki kastað inn hvíta handklæðinu og hvetja sitt lið til dáða.
Fram
55. mín
Gult spjald

Simon Tibbling

54. mín
Nu fékk Már Ægisson hörkufæri en var ekki alveg í jafnvægi þegar hann tók skotið og það var máttlítið. Góður kafli hjá Frömurum.
53. mín
Fram fékk hörkufæri til að koma sér inn í leikinn
Boltinn datt fyrir Kyle McLagan í teignum en skot hans beint á Tona.
Breiðablik
52. mín
Gult spjald

Arnór Gauti Jónsson

49. mín
Fred tekur skotið fyrir utan teig en yfir fer boltinn.
47. mín
Magnús Þórðarson með skot úr þröngu færi sem Anton Ari ver.
Breiðablik
46. mín
InnGabríel Snær Hallsson
ÚtAndri Rafn Yeoman
Gabríel tekur seinni hálfleikinn.
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað
Eru Blikar að fara að sigla þessu örugglega í höfn eða mun Fram hleypa lífi í þetta?
45. mín
Hálfleikstölfræði af Stöð 2 Sport
Með boltann: 38% - 62%
Marktilraunir: 1-5
Skot á mark: 0-2
Sendingar: 192-308
Gul spjöld: 0-2
45. mín
Það er gaman að vera Bliki
Íslandsmeistararnir með öll spil á hendi eftir fyrri hálfleikinn.
Breiðablik
44. mín
Fær gult fyrir leikaraskap!

Tobias Thomsen

Thomsen fellur með tilþrifum í teignum og ÞÞÞ gefur honum gult spjald fyrir leikaraskap.
41. mín
Anton Logi tekur skotið af löngu færi en yfir fer boltinn.
40. mín
Tobias skoraði líka í fyrstu umferð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik
38. mín
BLIKAR TVÖFALDA!

Tobias Thomsen (stoðsending: Aron Bjarnason )

Aron Bjarna með fyrirgjöf frá hægri og danski gammurinn Tobias Thomsen er mættur á fjærstöngina og skorar af stuttu færi.
35. mín
Aron Bjarna vinnur hornspyrnu fyrir Breiðablik. Eftir hornið á Viktor Karl skot fyrir utan teig sem er máttlítið og fer í varnarmann.
Breiðablik
31. mín
Gult spjald

Höskuldur Gunnlaugsson

Sigurjón Rúnarsson tók á sprett og komst dágóða vegalengd áður en fyrirliði Blika braut á honum og uppskar gult spjald.
26. mín
Lofandi skyndisókn hjá Fram en sending Magnúsar Þórðarsonar ratar ekki á Simon Tibbling. Rúnar Kristins heldur um höfuðið. Þarna var farið illa með góða stöðu.
25. mín
Ert þú með Óla Val í Fantasy liðinu þínu?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann er allavega í mínu liði. Það er nánast verið að gefa hann þar; 9,5 milljónir!
21. mín
Fram fær tækifæri. Vuk í skallafæri á fjærstönginni eftir hornspyrnu en nær ekki að koma boltanum á markið.
Breiðablik
17. mín
Rúnar Kristinsson er ekki sáttur! Vildi brot í aðdragandanum!

Óli Valur Ómarsson (stoðsending: Anton Logi Lúðvíksson)

Braut Arnór Gauti á Fred í miðjuhringnum? Ekkert var allavega dæmt, Anton Logi sendi á Óla Val sem fékk flugbraut á vinstri vængnum og rak boltann inn í teiginn og kláraði svo af mikilli fagmennsku framhjá Ólafi markverði Fram.

Rúnar Kristins er furðu lostinn í boðvangnum.
17. mín
Fór á skeljarnar eftir leik gegn Barcelona
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spánverjinn Israel Garcia er að leika sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Fram í Bestu deildinni.

Hann kom til Fram í vetur en hafði allan sinn feril leikið í heimalandinu. Hann lék síðast með Barbastro í fjórðu efstu deild á Spáni.

Hann spilaði með Barbastro sem mætti Barcelona í bikarnum í vetur en hann komst í fréttirnar fyrir að biðja kærustu sinnar um að giftast sér eftir leikinn og fékk að sjálfsögðu jákvætt svar.
15. mín
Breiðablik hefur einokað boltann síðustu mínútur. Þetta er einstefna sem stendur.
11. mín
Blikar að koma sér í hættulega stöðu þegar Haraldur Einar gerir vel í varnarleiknum, rennir sér í boltann og hann fer á Ólaf Íshólm.
9. mín
Óli Valur með fyrirgjöf sem endar beint í höndum Óla Íshólms í marki Fram.
8. mín
Vuk Oskar Dimitrijevic reynir fyrirgjöf en Valgeir Valgeirsson kemst fyrir og setur boltann afturfyrir í hornspyrnu.
7. mín
Fred með sendingu inn í teiginn þar sem Kennie Chopart er en á í erfiðleikum með að reikna út vindinn og þetta rennur í sandinn. Alveg ljóst að rokið mun hafa mikil áhrif á þennan leik.
5. mín
Blikar í sóknarhug og leika boltanum sín á milli fyrir utan vítateig Fram. Svo kemur Aron Bjarnason með fyrirgjöf frá hægri og Höskuldur Gunnlaugsson skallar framhjá. Fyrsta marktilraunin er komin.
1. mín
Spes
Leikurinn byrjaði vel. Fred negldi boltanum frá miðjuhringnum, upp í vindinn og beint útaf. Vonandi ekki tákn um það sem koma skal í kvöld!
1. mín
Fram með upphafsspyrnuna
Breiðablik er í hvítu varatreyjunum sínum í kvöld og leikur með vindi í fyrri hálfleik, í átt að sundlauginni góðu.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar
Bestu deildar stefið ómar. Þá er loksins komið að leiknum sjálfur. Hefði verið til í að sjá fleiri í stúkunni verð ég að viðurkenna en það fjölgar vonandi hratt á næstu mínútum. Eins og ég kom inná áðan þá blæs nokkuð hressilega.
Fyrir leik
Engin markaveisla það sem af er degi...
Vestri vann gríðarlega öflugan 1-0 sigur gegn FH í fyrsta leik umferðarinnar og nú er uppbótartími í Mosfellsbæ þar sem nýliðar Aftureldingar og ÍBV eru að gera markalaust jafntefli. Vonandi verða menn hinsvegar á skotskónum hér í Dalnum í kvöld.
Fyrir leik
Ein breyting á hvoru liði
Fram gerir eina breytingu frá síðasta leik. Israel García kemur inn en Þorri Stefán Þorbjörnsson sest á bekkinn. Guðmundur Magnússon er áfram á bekknum en hann hefur verið að glíma við meiðsli og kom inn sem varamaður í fyrsta leik.

Einnig er ein breyting hjá Breiðabliki. Andri Rafn Yeoman kemur inn fyrir hinn unga Gabríel Snæ Hallsson sem sest á bekkinn.
Fyrir leik
Fánastangirnar fá að finna fyrir því
Það blæs nokkuð hressilega hér í Dal draumanna og fánarnir á fánastöngunum blakta kröftuglega. Kaffið er rjúkandi í fréttamannastúkunni og allt upp á tíu hjá Frömurum í þeim efnum.
Fyrir leik
Framarar bitlausir í fyrstu umferð
Framarar náðu ekki að skapa sér mikið gegn ÍA í fyrstu umferð og sóknarleikurinn þeirra vekur upp spurningar. Þeir þurfa að treysta á að Gummi Magg verði 100% og heitur upp fyrir mark andstæðingana, annars sé ég hreinlega ekki hvaðan mörkin eiga að koma.

   08.04.2025 12:30
Ekki alveg að sjá hvaðan mörkin eiga að koma hjá Fram
Fyrir leik
Eggert Aron Guðmundsson spáir í leikinn:
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram 0 - 2 Breiðablik (sunnudagur, 19:15)
Líst vel á Fram liðið. En vantar the AD (Arnas Daníels) dýnamíkina og físikina til að halda í við Blikana. Jafnt i hálfleik en Blikarnir líta mjög vel út og taka þetta 0-2. Óli Valur og Höskuldur með mörkin.
Fyrir leik
Fram tapaði fyrir ÍA í fyrstu umferð
Fyrir leik
Breiðablik hóf mótið á sigri gegn Aftureldingu
Fyrir leik
Blikar unnu báða leikina gegn Frömurum í fyrra
Leikurinn á Kópavogsvelli í fyrra endaði með 3-1 sigri Blika en hér í Úlfarsárdalnum unnu Blikar 4-1. Viktor Karl Einarsson skoraði tvívegis en einnig komu Aron Bjarnason og Ísak Snær Þorvaldsson sér á blað í þeim leik.
Fyrir leik
ÞÞÞ með flautuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Þorsteinn Þórðarson sér um að dæma leikinn. Guðmundur Ingi Bjarnason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage eru með flöggin og Gunnar Oddur Hafliðason með skiltið.
Fyrir leik
Íslandsmeistararnir mæta í Salatskálina
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heil og sæl og verið velkomin með okkur í beina textalýsingu frá Úlfarsárdalnum þar sem Framarar taka á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks. Flautað til leiks klukkan 19:15.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.