Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Fjölnir
Fjölnir
Lengjudeild karla
Egilshöll
Hefðbundnar
1 - 3
Keflavík
Keflavík
Brynjar Gauti Guðjónsson 30'1 - 01 - 140' Gabríel Aron Sævarsson1 - 253' Ígnacio Heras Anglada1 - 367' Muhamed Alghoul
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Mark ársins kom í fyrstu umferð

Hvað réði úrslitum?

Keflvíkingar byrjuðu seinni hálfleikinn mun betur en heimamenn sem réði úrslitum leiksins að mínu mati. Fjölnismenn hefðu átt að nýta meðbyrin betur sem kom með marki Brynjars.

Bestu leikmenn

1. Gabríel Aron Sævarsson

Skoraði eitt, lagði upp eitt og var sífellt að ógna varnarlínu Fjölnismanna. Áður en fyrsta markið kom skoraði hann líka mark sem var dæmt ólöglegt. Mjög góður dagur hjá Gabba í dag.

2. Muhamed Alghoul

Skoraði þriðja mark Keflvíkinga og var mikið í boltanum. Mér fannst alltaf skapast mikil hætta þegar hann var í boltanum. Góður dagur í dag hjá Muhamed.

Atvikið

Mark ársins sem kom eftir hálftímaleik hjá Brynjari Gauta. Alvöru sleggja fyrir utan teig sem þýddi því miður ekkert í dag.

Hvað þýða úrslitin?

Keflvíkingar eru á toppi Lengjudeildarinnar sem stendur og Fjölnismenn á botninum eftir fyrsta leik umferðarinnar þrátt fyrir að einn leikur sé eftir.

Vondur dagur

Fjölnisliðið byrjaði seinni hálfleikinn alls ekki nægilega vel sem valdi því að Keflvíkingar kláruðu leikinn. Það var lítil orka í heimamönnum þegar leið á. Erfitt að benda á einhvern einn en Fjölnir hefðu átt að nýta meðbyrinn með markinu mun betur.

Dómarinn - 8

Flottur leikur hjá teyminu í dag þrátt fyrir eina og eina óvinsælar ákvarðanir. Hef ekki séð annað mark Keflvíkinga en það var samt mikil rangstöðu lykt af því marki.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.