Fotbolti.net
@fotboltinetSigurður Bibbi Sigurðarson
Þór
Þór
Lengjudeild karla
Boginn
1 - 1
HK
HK
0 - 16' Dagur Orri GarðarssonIbrahima Balde 45'1 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Stórmeistarajafntefli í Boganum.

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum í þessum leik var færanýting og góð markvarsla.

Bestu leikmenn

1. Balde og Vilhelm

Báðir voru mjög duglegir að verjast og sækja, Balde skoraði gott mark og barðist vel. Vilhelm var upp og niður kantinn og átti margar góðar fyrirgjafir

2. Jóhann Þór

Senterinn hjá HK var stórhættulegur allan leikinn og var hann jafn sprækur á 90 mínútu og á þeirri fyrstu.

Atvikið

Upphaf leiksins réð úrslitum fyrir Þór, skjálfti í varnarleiknum sem HK nýtti og náði forystu.

Hvað þýða úrslitin?

Þetta var leikur sem bæði lið vildu vinna til að fá fljúgandi start í deildinni. Þau bíða því eftir fyrsta sigri. Það má nota frasann "gott stig á erfiðum útivelli "og líka "hefðum átt að verja heimavöllinn og sækja hirða þrjú stig á heimavelli".

Vondur dagur

Það var eiginlega ekki vondur dagur fyrir neinn. Helst kannski dómarann sem sveiflaði gula spjaldinu tilviljunarkennt og hafði á stundum ekki góða stjórn á leiknum. Sleppti augljósum grófum brotum en gaf spjald fyrir lítil sem engin brot. Hann var hins vegar ekki að draga taum annars liðsins.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.