Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild karla
Kórinn
HK
HK
1 - 1
ÍR
ÍR
0 - 138' Marc McauslandDagur Orri Garðarsson 82'1 - 1
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Læti í Kórnum

Hvað réði úrslitum?

Þetta var afar jafn leikur þar sem HK tókst að stela stigi af ÍR í lokin. HK fékk fleiri færi í leiknum, en nýtni þeirra var alls ekki góð. ÍR skapaði sér þó hættulegri stöður þegar þeir sóttu, en náðu aðeins að koma boltanum einu sinni í netið.

Bestu leikmenn

1. Arnór Sölvi Harðarson

Hann var ótrúlega sprækur í þessum leik og skapaði mikið á hægri kanti fyrir ÍR.

2. Marc Mcausland

Fyrirliðin með eina mark ÍR og var líka mjög flottur í varnaleiknum.

Atvikið

Haukur Leifur sparkar í bringuna á Guðjón Mána og Sveinn horfir varla á það. Hefði alveg geta verið rautt spjald fyrir þetta brot, en Sverrir flautaði ekkert. Svo var líka mjög mikið læti inn í Kórnum þar sem bæði lið voru berjandi á trommurnar allan leikinn. Krakkarnir hjá HK og unlingarnir hjá ÍR voru stannslaust með kjaft við hvort annað. Þetta var mikil skemmtun, en ekki það besta fyrir heyrninna hjá manni.

Hvað þýða úrslitin?

HK er í 7.sæti með einungis 2 stig eftir 2 leiki. ÍR fylgir þrem öðrum liðum í 1. sæti deildarinnar og eru þau öll með 4. stig eftir 2 leiki.

Vondur dagur

Framherjar HK áttu slakan dag í dag. Dagur Orri bætti þó aðeins úr því með því að jafna metin, en markið kom eftir mistök ÍR-inga. HK fékk mörg færi, en langflest skotin þeirra fóru langt yfir markið. Heppilegt var að leikurinn fór fram innanhúss, annars hefði boltinn oft farið langt út af vellinum. Föstu leikatriðin voru illa nýtt, þá sérstaklega aukaspyrnurnar sem voru afar illa nýttar.

Dómarinn - 5

Þetta var mjög erfiður leikur að dæma. Mikil læti og mikil barátta hjá leikmönnum. Það voru nokkrir dómar sem mér fannst alveg fáranlegir eins og þegar Guðjón fékk takkana í bringuna t.d., en heilt yfir var þetta ágætlega dæmt í erfiðum leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.