Besta-deild karla
Valur

LL
6
1
1

Besta-deild karla
Stjarnan

LL
2
0
0

Besta-deild karla
KR

LL
4
1
1

Lengjudeild karla
Njarðvík

LL
5
1
1

Lengjudeild karla
Grindavík

LL
3
3
3


Vestri
2
0
Afturelding

Diego Montiel
'7
, víti
1-0

Arnór Borg Guðjohnsen
'73
2-0
10.05.2025 - 14:00
Kerecisvöllurinn
Besta-deild karla
Aðstæður: Hæglætis veður, léttskýjað en svalt. 4°C. Gervigrasið nýburstað og bleytt.
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Áhorfendur: 400
Maður leiksins: Morten Ohlsen Hansen
Kerecisvöllurinn
Besta-deild karla
Aðstæður: Hæglætis veður, léttskýjað en svalt. 4°C. Gervigrasið nýburstað og bleytt.
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Áhorfendur: 400
Maður leiksins: Morten Ohlsen Hansen
Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
2. Morten Ohlsen Hansen (f)
3. Anton Kralj
4. Fatai Gbadamosi
7. Vladimir Tufegdzic
('66)


8. Daði Berg Jónsson

10. Diego Montiel
('77)


28. Jeppe Pedersen
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson
40. Gustav Kjeldsen

77. Sergine Fall
('72)
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
1. Benjamin Schubert (m)
5. Thibang Phete
6. Gunnar Jónas Hauksson
('72)

11. Arnór Borg Guðjohnsen
('66)


15. Guðmundur Arnar Svavarsson
23. Silas Songani
29. Kristoffer Grauberg
('77)
- Meðalaldur 28 ár


Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)

Jón Hálfdán Pétursson
Friðrik Rúnar Ásgeirsson
Þorsteinn Goði Einarsson
Vladan Djogatovic
Vignir Snær Stefánsson
Ferran Montes I. Corominas
Gul spjöld:
Gustav Kjeldsen ('37)
Vladimir Tufegdzic ('53)
Davíð Smári Lamude ('65)
Daði Berg Jónsson ('77)
Kristoffer Grauberg ('86)
Rauð spjöld:
90. mín
Gult spjald: Gunnar Bergmann Sigmarsson (Afturelding)

+3
Daði fíflar hann og Gunnar fær sér far á honum
Daði fíflar hann og Gunnar fær sér far á honum
90. mín
Hrannar í dauðafæri!
+1
Er í dauðafæri inn á teignum vinstra megin, labbar framhjá Morten en skotið hans er í bakið á Gus. Gestirnir vilja hendi en það er ekkert til í því
Er í dauðafæri inn á teignum vinstra megin, labbar framhjá Morten en skotið hans er í bakið á Gus. Gestirnir vilja hendi en það er ekkert til í því
86. mín
Þórður Gunnar með fína fyrirgjöf sem Hrannar tekur niður en skot hans er máttlaust
83. mín
Dauðafæri Elmar Cogic!
Þórður Gunnar gerir virkilega vel, tekur Anton á á hægri kantinum og finnur Elmar einn á auðum sjó á vítapunktinum en skotið hans er beint í magann á Morten sem fagnar því að hætti hússins!
80. mín
Frábær sókn Vestri!
Arnór skilur hægri Gunnar Bergmann eftir í rykinu, finnur svo Daða fyrir utan teiginn sem framlengir á Gunnar Jónas í fínu færi en Aron Elí kemst fyrir skotið hans.
77. mín
Gult spjald: Daði Berg Jónsson (Vestri)

Er í harðri baráttu og Arnar dómari er á því að hún hafi verið of hörð
73. mín
MARK!

Arnór Borg Guðjohnsen (Vestri)
Stoðsending: Morten Ohlsen Hansen
Stoðsending: Morten Ohlsen Hansen
2-0!!!
Skorar í sínum fyrsta leik!!! Daði lobbar boltanum inná teiginn þar sem Morten er einn og yfirgefinn. Hann tekur boltann einfaldlega niður og rennir boltanum í mestu rólegheitum til hliðar á Arnór sem þarf bara að pota honum í netið! Rangstöðulykt af Morten en mögulegt að vinstri bakvörður Aftureldingar hafi leikið hann réttstæðann. Frábærlega gert hjá dananum engu að síður!
71. mín

Inn:Þórður Gunnar Hafþórsson (Afturelding)
Út:Sævar Atli Hugason (Afturelding)
Ísfirðingurinn er kominn inná til þess að hrella uppeldisfélagið. Hann fer á hægri kantinn og Elmar Cogic fer inná völlinn
69. mín
Loks ná heimamenn sókn. Fatai geysist fram og er kominn í skotstöðu en skot hans er beint í varnarmenn. Þess utan hafa Vestramenn ekki komist neitt áleiðis síðustu mínútur
68. mín
Mikið af föstum leikatriðum.
Aftur fær Aron Jó tækifæri á að gefa fyrir. Nú er aukaspyrna á hægri vængnum. Glundroði í teignum sem Fatai bjargar á elleftu stundu.
66. mín

Inn:Arnór Borg Guðjohnsen (Vestri)
Út:Vladimir Tufegdzic (Vestri)
Kemur inná í sínum fyrsta leik fyrir Vestra. Túfa lítið sést í leiknum
65. mín
Gult spjald: Davíð Smári Lamude (Vestri)

Fyrir hvað veit ég ekki. Það var ekkert í gangi
64. mín
Leikurinn einhliða núna. Það eru tækifæri á skyndisóknum en Vestramenn ná ekki að tengja saman sendingar. Þess á milli pressar Afturelding Vestra niður á vítateig.
62. mín
Annað horn
Enn og aftur eru gestirnir fyrstir á boltann en ná ekki að gera mat úr því. Benjamin Stokke á nærstönginn en skot hans er framhjá
61. mín
Afturelding færist nær
Gestirnir spila vel saman upp vinstri vænginn og uppskera horn. Hornið er beint á pönnuna á Gunnari á markteignum en hann skallar vel yfir. Átti að gera betur þarna.
58. mín
Hornið er á nær þar sem Stokke kemur á fleygiferð en nær ekki góðum skalla og yfir fer boltinn
57. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað
Við vítateigshornið, Aron Jó með hættulegan bolta á fjær en Eiður skallar i horn
53. mín
Gult spjald: Vladimir Tufegdzic (Vestri)

Straujar Bjart Bjarma og stöðvar hraða sókn.
52. mín
Elmar Kári í góðri stöðu á teignum en er lengi að athafna sig og Eiður kemst í fyrirgjöfina. Boltinn berst aftur út þar sem Aron skallar fyrirgjöf Gunnars en auðvelt fyrir Guy í markinu
51. mín
Afturelding fær horn
Meira tempó og ákefð núna. Aron Jó tekur hornið, það er tutt af æfingasvæðinu en tekst ekki betur en það að Anton Kralj étur þá strax.
47. mín
Frábær sprettur hjá Fatai
Sparkar boltanum langt framfyrir Aron Elí sem virkar lúshægur. Fatai finnur Daða á teignum en Sævar Atli nær að pota tánni í boltann á síðustu stundu. Daði fer niður vill víti en ég hugsa að Sævar hafi einfaldlega náð boltanum fyrst.
45. mín
Hálfleikur
Engu bætt við og Arnar flautar menn inn
Vestri fengu gefins mark til að byrja með sem hleyptu planinu hjá Aftureldingu upp í loft. Gestirnir hafa verið meira með boltann og Vestri leyft þeim það. Þó hafa komið stöður þar sem Vestri liggur inn á vítateig og þar hafa Hrannar og Elmar verið hættulegir án þess þó að skapa merkilegt marktækifæri. Leikurinn lokaður en mun opnast í seinni hálfleik.
44. mín
Gestirnir með öll völd núna. Vestri kemst ekki á boltann. Engin færi koma þó úr þessu en heimamenn væru bara til í hálfleikinn.
41. mín
Eiður tæpur
Afturelding þrýsta Vestra niður. Axel lyftir boltanum á teiginn þar sem Eiður nær ennishrukkunum í boltann sem er nóg til þess að skemma skallann hans Arons og yfir fer boltinn.
35. mín
Flott sók Vestri
Halda boltanum vel og hreyfa hann svo hratt yfir á Anton Kralj sem á fína fyrirgjöf en Gunnar Bergmann skallar frá. Vestri heldur boltanum en missa hann að lokum.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Frábær sending!
Elmar fer framhjá Atnoni og pingar boltann snilldarlega á Hrannar í teignum en fyrsta snertingin svíkur hann aðeins. Hann og Aron Elí ná síðan ekki að vinna úr góðri stöðu í teignum og sóknin rennur útí sandinn.
27. mín
Bjartur með góða vörn
Eiður Aron sólar mann í vörninni og finnur Daða frammi einn á einn en Bjartur gerir vel og stöðvar álitlega sókn.
25. mín
Fyrsta innkastið
Hrannar Snær er boltavarpari dagsins. Boltinn skoppar í teignum og Vestramenn eru í brasi að hreinsa. Að lokum endar boltinn hjá Axel sem reynir skot á lofti með vinstri sem er alls ekki langt framhjá markinu!
22. mín
Fínt færi hjá Hrannari
Stokke með skemmtilega sendingu inn á milli varnarmanna Vestra og finnur Hrannar sem á fast skot með vinstri en það fer yfir markið.
17. mín
Afturelding stjórnar
Afturelding búnir að vera meira með boltann síðustu mínútur en eru ekki að skapa sér mikið. Aron Jó fellur í teignum og spurning með víti en Arnar lætur sér fátt um finnast og mótmæli gestanna eru ekki hávær.
11. mín
Gestirnir bíta frá sér
Elmar með fína fyrirgjöf sem endar hjá Axel á fjær en skot hans er rétt framhjá. Ágætis færi
7. mín
Mark úr víti!

Diego Montiel (Vestri)
Stoðsending: Morten Ohlsen Hansen
Stoðsending: Morten Ohlsen Hansen
Öruggt víti!
Setur hann fastann niðri vinstra megin, Jökull velur rétt horn en er ekki nálægt boltanum. 1-0 Vestri!
5. mín
Víti!!!
Montiel laumar boltanum á Morten í teignum eftir horn sem er tekinn niður af Axel. Hárrétt! Axel sá hann aldrei og er óheppinn, sparkar beint í kálfan á Morten.
4. mín
Bæði lið róleg í tíðinni. Varnarmenn beggja liða fá að spila á milli sín í rólegtheitum og tempóið ekki það hraðasta.
1. mín
Afturelding pressar lítið til að byrja með. Það var búið að spá þessu, hvernig Vestri bregst við því að eiga að stjórna leiknum verður fróðlegt
Fyrir leik
Liðin eru að ganga út á völl
Sammi kynnir liðin inn og biðst á sama tíma afsökunar að hafa vökvað stúkuna en glænýtt vökvunarkerfi er á vellinum sem er verið að nota í fyrsta skipti.
Fyrir leik
Ef við horfum í stuðlana á epic fyrir þennan leik þá eru heimamenn í Vestra taldir aðeins líklegri til sigurs. Samkvæmt stuðlunum er ekki búist við markaleik hér í dag en epic býður upp á 67% ávöxtun ef það koma 3 eða fleiri mörk í þennan leik. Stuðull 1.67.
Fyrir leik
Byrjunarliðin mætt
Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, er ekkert að breyta sigurliði. Hann gerir í raun aðeins eina breytingu á hópnum en Arnór Borg Guðjohnsen er í hóp í fyrsta sinn síðan hann kom á láni frá FH.
Sömu sögu má segja af liði Aftureldingar sem vann Stjörnuna, 3-0, í síðustu umferð. Magnús Már Einarsson gerir enga breytingu á liðinu.
Sömu sögu má segja af liði Aftureldingar sem vann Stjörnuna, 3-0, í síðustu umferð. Magnús Már Einarsson gerir enga breytingu á liðinu.

Fyrir leik
Atli Barkar spáir sigri Vestra
Vestri 2 - 1 Afturelding
Vestramenn halda áfram að sjokkera alla og taka Aftureldingu frekar easy. Afturelding verður ekki búin að ná sér niður eftir sigurinn á Stjörnunni. Daði Berg setur 1 og leggur upp hitt. Benjamín Stokke opnar svo markareikning sinn í lok leiks.
Arnar Þór Stefánsson lögmaður dæmir leikinn á Ísafirði. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Ronnarong Wongmahadthai verða aðstoðardómarar hans og Gunnar Freyr Róbertsson með skiltið.
Vestramenn halda áfram að sjokkera alla og taka Aftureldingu frekar easy. Afturelding verður ekki búin að ná sér niður eftir sigurinn á Stjörnunni. Daði Berg setur 1 og leggur upp hitt. Benjamín Stokke opnar svo markareikning sinn í lok leiks.
10.05.2025 11:06
Atli Barkar spáir í 6. umferð Bestu deildarinnar
Arnar Þór Stefánsson lögmaður dæmir leikinn á Ísafirði. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Ronnarong Wongmahadthai verða aðstoðardómarar hans og Gunnar Freyr Róbertsson með skiltið.
10.05.2025 08:15
Lögmaðurinn flautar sjöttu umferðina á
Fyrir leik
Bæði lið á fínu skriði. Mikilvægur leikur
Vestri er með 10 stig eftir 5 leiki en Afturelding 7. Báðum þessum liðum var spáð neðarlega í töfluna og ekki ólíklegt að þau muni síga þangað þegar líður á sumarið og því er þessi leikur gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. En eins og er eru bæði lið í fínum málum. Afturelding unnu frækinn sigur á Víking og nú síðast 3-0 sigur á Stjörnunni. Vestramenn gerðu góða ferð til Eyja í síðustu umferð og eina tap þeirra var gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks.

Fyrir leik
Góðar minningar Vestra
Síðasti leikur þessara liða verður lengi í minnum hafður, þá sér í lagi í huga Vestfirðinga. Þá sigraði Vestri 1-0 og vann sér inn sæti í Bestu deildinni haustið 2023.

Fyrir leik
Velkomin!
Góðan daginn, verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Vestra og Aftureldingar í Bestu deild karla.
Sjötta umferðin:
laugardagur 10. maí
14:00 Vestri-Afturelding (Kerecisvöllurinn)
19:00 KR-ÍBV (AVIS völlurinn)
19:15 Valur-ÍA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Stjarnan-Fram (Samsungvöllurinn)
sunnudagur 11. maí
17:30 KA-Breiðablik (Greifavöllurinn)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
Sjötta umferðin:
laugardagur 10. maí
14:00 Vestri-Afturelding (Kerecisvöllurinn)
19:00 KR-ÍBV (AVIS völlurinn)
19:15 Valur-ÍA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Stjarnan-Fram (Samsungvöllurinn)
sunnudagur 11. maí
17:30 KA-Breiðablik (Greifavöllurinn)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson

3. Axel Óskar Andrésson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
7. Aron Jóhannsson

10. Elmar Kári Enesson Cogic
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
19. Sævar Atli Hugason
('71)

20. Benjamin Stokke
('82)

25. Georg Bjarnason
77. Hrannar Snær Magnússon
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
12. Arnar Daði Jóhannesson (m)
4. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
8. Aron Jónsson
9. Andri Freyr Jónasson
('82)

21. Þórður Gunnar Hafþórsson
('71)

23. Sigurpáll Melberg Pálsson
27. Enes Þór Enesson Cogic
- Meðalaldur 24 ár
Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Baldvin Jón Hallgrímsson
Enes Cogic
Gunnar Ingi Garðarsson
Garðar Guðnason
Þórður Ingason
Gul spjöld:
Aron Jóhannsson ('82)
Gunnar Bergmann Sigmarsson ('90)
Rauð spjöld: