SKÝRSLAN: Söguleg stund í Laugardalnum
Hvað réði úrslitum?
KR voru sterkari í þessum leik heilt yfir en þetta var mjög jafn og kaflaskiptur leikur. Eftir að KR skora þriðja markið sitt er fer allur kraftur frá ÍBV og KR nær að skora annað mark beint eftir á með léttum.
Bestu leikmenn
1. Eiður Gauti Sæbjörnsson
Algjörlega sturlaður leikmaður sem er búinn að skora í fimm leikjum í röð og skoraði tvö hér í dag. Hann er orðinn alvöru keppinautur Pedersen um gullskóinn í ár.
2. Ástbjörn Þórðarson
Kemur inn á fyrir Luke og á ótrúlegan leik. Hann skoraði mark og lagði upp fyrir seinna mark Eiðs.
Atvikið
Það var ótrúlega gaman að sjá Alexander skora í sínum fyrsta byrjunarleik sinn í deildinni þar sem það var þegar verið að tala um að hann hefði slegið met fyrir að vera sá yngsti í sögu eftsu deild, þá verður hann líka sá yngsti til að skora mark innan við 8 mínútum. Það var fagnað mikið fyrir hann í stúkunni og þetta verður dagur sem hann mun seint gleyma.
Hvað þýða úrslitin?
KR fer upp í 2. sæti deildarinnar með 10 stig eftir 6 leiki. ÍBV fer niður í 8. sæti eftir tapið hér í dag.
Vondur dagur
Þrátt fyrir að ná að skapa sér mikið af færum, þá gátu ÍBV ekkiu nýtt sér þau nógu vel. Að auki fékk ÍBV dæmt á sig allt of margar rangstæðu þegar leikmenn þeirr voru allt of fljótir að byrja hlaupin sín til að komast framan fyrir varnamenn KR. Omar átti alls ekki góðan leik í dag og í eittt skipti þegar KR hefði skorað, tekur Omar skotið frá miðju sem er ekki nálægt því með að fara í netið.
Dómarinn - 7
Lítið að segja um Svein og hans teymi. Þeir þurftu varla að taka neinar stóra ákvarðanir og dæmdu leikin alveg vel. Það voru nokkrir dómar þar sem leikurinn hefði frekar getið haldið bara áfram og svo tók ég eftir allavega einu gulu spjaldi sem mér fannst vera soft, en annars fínt.




