Leik lokið!
93. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtLúkas Logi Heimisson
93. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtJónatan Ingi Jónsson
92. mín
Viktor Andri nálægt því að jafna en skot hans í varnarmann og afturfyrir!
Valsmenn koma boltanum svo burt eftir horn.
Valsmenn koma boltanum svo burt eftir horn.
91. mín
Þrjár mínútur í uppbót
91. mín
InnStefán Þórður Stefánsson
ÚtViktor Steinarsson
90. mín
Gult spjald
Sigurður Egill Lárusson
89. mín
Varsla!
Kári Kristjáns með gott skot utan af velli sem Frederik Schram þarf að skutla sér í og ver það vel.
87. mín
Sigurður Egill með tilraun sem Þórhallur Ísak ver á nærstöng en missir útaf.
86. mín
Viktor Andri með sendingu inn á teig í hlaup sem Liam Daði tekur á nærstöng og rennir sér á boltann en rétt framhjá markinu.
84. mín
Lúkas Logi með tilraun yfir markið.
82. mín
Unnar Steinn reynir að stinga sér á bakvið í góða stungusendingu en hraðinn fór illa með hann.
80. mín
Sigurður Egill lyftir boltanum fyrir markið og Birkir Jakob nær skallanum á fjærstöng en Þórhallur Ísak vel á verði.
76. mín
InnVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
ÚtBrynjar Gautur Harðarson
76. mín
InnViktor Andri Hafþórsson
ÚtAron Snær Ingason
76. mín
InnBirkir Jakob Jónsson
ÚtTryggvi Hrafn Haraldsson
76. mín
InnAron Jóhannsson
ÚtOrri Hrafn Kjartansson
73. mín
Þróttarar hóta jöfnunarmarkinu frekar en öfugt þessa stundina.
70. mín
Það er kraftur í Þrótti þessa stundina. Þetta mark gaf þeim auka orku.
65. mín
Þetta er leikur!
MAAAARK!
Aron Snær Ingason (stoðsending: Kári Kristjánsson)
Frábærlega gert hjá Þrótti og fastur bolti fyrir markið frá Kára Kristjáns sem endar á fjærstöng þar sem Aron Snær Ingason er með opið mark til að leggja boltann inn.Þetta er leikur!
61. mín
InnLiam Daði Jeffs
ÚtBenóný Haraldsson
61. mín
InnKolbeinn Nói Guðbergsson
ÚtJakob Gunnar Sigurðsson
60. mín
Sláin!
Flott sóknarlota hjá Þrótti endar með hörku skoti frá að mér sýndist Kára sem Frederik Schram ver í slánna!
Aron Snær Ingason reynir við frákastið inni í teig en flaggið á loft.
Aron Snær Ingason reynir við frákastið inni í teig en flaggið á loft.
58. mín
Þróttur að undirbúa tvöfalda skiptingu.
Sýnist það vera Liam Daði Jeffs og Kolbeinn Nói sem verða kallaðir til.
Sýnist það vera Liam Daði Jeffs og Kolbeinn Nói sem verða kallaðir til.
56. mín
Það er smá kraftur í Þrótti sem vinnur hornspyrnu en eru svo dæmdir brotlegir í teignum eftir að hún er tekinn stutt og boltanum lyft fyrir.
48. mín
Þetta er svekkjandi mark að fá á sig en Valsmönnum er sama og þeir tvöfalda forystuna.
Valur tvöfaldar!
Jónatan Ingi Jónsson
Sigurður Egill gerir vel að vinna boltann hátt uppi og halda sókninni lifandi og Valsmenn skipta boltanum yfir á Jónatan Inga sem á ekkert spes skot sem fer í gegnum lina úlnliði á Þórhalli Ísak í marki Þróttar.Þetta er svekkjandi mark að fá á sig en Valsmönnum er sama og þeir tvöfalda forystuna.
46. mín
Þróttur sparkar þessu af stað aftur.
46. mín
InnSigurður Egill Lárusson
ÚtPatrick Pedersen
Markaskorarinn útaf í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Enginn uppbótartími og Valsmenn leiða í hlé.
Valsmenn byrjuðu af krafti og markið lá í loftinu. Ekki mikið verið um að vera eftir að þeir náðu foyrstu.
Fáum vonandi meiri spennu í seinni hálfleik.
Valsmenn byrjuðu af krafti og markið lá í loftinu. Ekki mikið verið um að vera eftir að þeir náðu foyrstu.
Fáum vonandi meiri spennu í seinni hálfleik.
43. mín
Þróttur þéttir til baka og Valsmenn í smá vandræðum að finna glufur.
39. mín
Brynjar Gautur með skot sem fer af varnarmanni og í horn.
Fínasta horn frá Kára en Valsmenn skalla frá.
Fínasta horn frá Kára en Valsmenn skalla frá.
38. mín
Verður áhugavert að sjá hvað Þróttur gerir núna þegar þeir verða að lyfta sér ofar á völlinn.
36. mín
Mark sem hefur svolítið legið í loftinu.
Ísinn er brotinn!
Patrick Pedersen
Valsmenn komast yfir og auðvitað var það Patrick Pedersen sem potar honum inn á nærstönginni!Mark sem hefur svolítið legið í loftinu.
29. mín
Flott sóknarlota hjá Þrótti og fyrirgjöf sem Jakob Gunnar hittir illa og boltinn fer framhjá.
Fyrsta ógn gestana að marki Vals.
Fyrsta ógn gestana að marki Vals.
26. mín
Tryggvi Hrafn með kraftlaust skot úti vinsti sem Þórhallur Ísak ver.
24. mín
Varsla!
Jónatan Ingi kemur með bolta sem er aðeins of hár fyrir Patrick Pedersen og Þróttur skallar út beint fyrir fætur Birki Heimis sem lætur vaða en Þórhallur Ísak ver það virkilega vel!
21. mín
Patrick Pedersen vinnur boltann hátt uppi og er úti hægra meginn. Sendir boltann á Birki Heimis og hann tekur hann í fyrsta fyrir markið sennilega beint í svæðið sem Patrick Pedersen hefði verið í ef hann hefði ekki verið að gefa boltann á Birki úti á væng.
19. mín
Kári Kristjánsson slær boltann þegar Valsmenn reyna að lyfta honum inn á teig og fær bara tiltal.
Hefði vel verið hægt að lyfta spjaldi þarna.
Hefði vel verið hægt að lyfta spjaldi þarna.
18. mín
Þegar Þróttur kemur boltanum yfir miðju er eins og þeir viti ekkert hvað eigi að gera næst. Virkilega hægt spil sem leyfir Val bara að stilla upp á móti þeim og drepa niður allar tilraunir til sóknar.
15. mín
Andi Hoti með skot sem fer af varnarmanni og í fangið á Þórhalli Ísak.
Þórhallur Ísak fipaðist smá til en náði að grípa boltann.
Þórhallur Ísak fipaðist smá til en náði að grípa boltann.
12. mín
Tryggvi Hrafn reynir skot sem fer yfir markið.
8. mín
Leikurinn nánast verið spilaður á hálfum velli hérna fyrstu mínúturnar.
3. mín
Jónatan Ingi vinnur fyrsta horn leiksins þegar hann reynir að koma boltanum fyrir markið en Eiríkur hendir sér fyrir.
Valsmenn ná ekki að gera mikið úr þessu horni.
Valsmenn ná ekki að gera mikið úr þessu horni.
2. mín
Valsmenn spila í sínum hefðbundnu rauðu treyjum á meðan gestirnir frá Þrótti eru í dökkbláum varabúning.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað og það eru Valsmenn sem eiga upphafssparkið.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net í bikarnum og hann spáir í leikina.
Valur 3 - 0 Þróttur
Valsmenn eru of stór biti fyrir vini mína í Laugardalnum, Bjarni í Papco verður vant við látinn að þessu sinni og við það fer vindur úr seglum Þróttara sem lenda í Orra Hrafns hakkavélinni sem skorar amk eitt, látið ykkur bregða ef það verður með skalla.

Bæði lið koma á jákvæðum nótum inn í leikinn
Bæði lið unnu sterka sigra í sinni deild fyrir þetta einvígi.
Valsmenn fóru illa með Skagamenn á laugardaginn þar sem þeir kjöldrógu þá í mikilli markaveislu 6-1. Lúkas Logi, Patrick Pedersen og Tryggvi Hrafn Haraldsson skoruðu allir tvö mörk hvor auk þess að valda miklum ursla.

Þróttarar fóru góða ferð til Keflavíkur á föstudaginn þar sem þeir höfðu betur 0-1 við erfiðar aðstæður eftir mark frá Liam Daða Jeffs og höfðu með sér gríðarlega sterk Þrjú stig af erfiðum útivelli í Lengjunni.

Leið Valsmanna
Valsmenn komu inn í Mjólkurbikarinn í síðustu umferð eða 32-liða úrslitum þar sem þeir heimsóttu Lengjudeildarlið Grindavíkur á Nettóhallar gervigrasinu fyrir aftan Reykjaneshöllina.
Valsmenn fóru faglega í gegnum það einvígi 1-3.

Valsmenn fóru faglega í gegnum það einvígi 1-3.

Fyrir leik
Leið Þróttara
Þróttarar byrjuðu Mjólkurbikarinn á því að fá 4. deildarlið Hafna í heimsókn á Avis völlinn í annari umferð þar sem þeir höfðu betur með sjö mörkum gegn engu.
Í 32-liða úrslitum heimsóttu Þróttarar Völsung á Húsavík þar sem þeir unnu frábæran endurkomusigur í framlengingu 2-3 eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.

Í 32-liða úrslitum heimsóttu Þróttarar Völsung á Húsavík þar sem þeir unnu frábæran endurkomusigur í framlengingu 2-3 eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.

Fyrir leik
Dómarateymið
Ívar Orri Kristjánsson heldur utan um flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar eru þeir Bergur Daði Ágústsson og Arnþór Helgi Gíslason.
Á skiltinu er svo Þórður Þorsteinn Þórðarson og eftirlitsmaður KSí er Oddur Helgi Guðmundsson.

Á skiltinu er svo Þórður Þorsteinn Þórðarson og eftirlitsmaður KSí er Oddur Helgi Guðmundsson.

Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá N1 vellinum á Hlíðarenda þar sem Valsmenn taka á mót Þrótti í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.