SKÝRSLAN: Keflavík kafsigldi Ólafsvíkinga í seinni
Hvað réði úrslitum?
Lið Keflavíkur átti aukagír í síðari hálfleik eftir jafnan og spennandi leik í þeim fyrri. Lið Víkinga sem gerði vel í að stýra hraða leiksins lengst af í fyrri hálfleik tókst ekki að halda í við Keflvíkinga er þeir stigu gjöfina í botn í þeim síðari og því fór sem fór.
Bestu leikmenn
1. Muhamed Alghoul
Var besti maður vallarins í kvöld. Skoraði þrjú mörk en var auk þess algjör prímusmótor í sóknarleik Keflavíkur.
2. Kári Sigfússon
Mikið í boltanum og duglegur að finna samherja sína á vellinum. Þindarlaus með öllu og hleypur og hleypur. Skoraði þess utan gott mark.
Atvikið
Atvikið sem mestu réði um leikinn er sennilegast þriðja mark Keflvíkinga í blábyrjun síðari hálfleiks. Gaf þeim aukna orku og dró á sama tíma úr gestaliðinu. Keflvíkingar gengu svo á lagið og keyrðu yfir gestina á næsta korterinu.
Hvað þýða úrslitin?
Keflavík verður í pottinum þegar dregið verður í 8 liða úrslit. Víkingar einbeita sér að 2.deild en fá annan séns í bikarkeppni í Fótbolta.net bikarnum sem hefst í júní.
Vondur dagur
Jón Kristinn Elíasson fær á sig fimm mörk í dag. Ekki að það sé við hann að sakast beint en fyrir markmann er það ömurleg tilfinning að horfa á eftir boltanum í netið. Tala nú ekki um eftir að hafa varið víti að sjá frákastið enda í fótum mótherja sem skorar. Þá verður að nefna Marin Mudrazija sem fékk urmull færa fyrir Keflavík í kvöld en virtist fyrirmunað að hitta markið. Er eflaust enn að finna sinn stað í liðinu en einn gegn markmanni á framherji alltaf að skora.
Dómarinn - 8
Mér fannst Twana dæma leikinn með stakri prýði í kvöld svona heilt yfir. Mögulega gerir Keflavík tilkall í aðra vítaspyrnu en sönnunargögn sem ég hef séð eru ekki nægjanlega afgerandi til þess að ég dragi hann nokkuð niður fyrir það. Uppbótartíminn var sparlegur hjá honum þó. Fjögur mörk í fyrri hálfleik og ekki sekúndu bætt við. Þrjú mörk, skiptingar og aðhlynning á markverði í þeim síðari og aðeins tveimur mínútum bætt við. Ekki að uppbótartíminn breyti nokkru en maður hefur alveg séð hann lengri við sambærilegar aðstæður.


