Fotbolti.net
@HilmarjokullHilmar Jökull Stefánsson
Hilmar Jökull Stefánsson
Kári
Kári
Mjólkurbikar karla
Akraneshöllin
3 - 6
Stjarnan
Stjarnan
0 - 141' Benedikt V. WarénHektor Bergmann Garðarsson 70'1 - 11 - 2105' Adolf Daði BirgissonMikael Hrafn Helgason 117'2 - 2Þór Llorens Þórðarson (víti) 120'3 - 23 - 3120' Emil Atlason (víti)3 - 4120' Jóhann Árni Gunnarsson (víti)3 - 5120' Daníel Finns Matthíasson (víti)3 - 6120' Baldur Logi Guðlaugsson (víti)
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Stjarnan skín áfram í 8-liða úrslit

Hvað réði úrslitum?

Vítaspyrnukeppnin. Þar var munurinn markmenn liðanna þar sem Skagamaðurinn Árni Snær varði tvær spyrnur í marki Stjörnunnar á meðan að liðsfélagar hans skoruðu úr öllum sínum spyrnum. Magnað að sjá baráttu Káramanna í leiknum og það er alltaf saga til næsta bæjar þegar lið í 2. deild fer með Bestu-deildar lið alla leið í gegnum 120 mínútur og nær samt að standa í Golíat.

Bestu leikmenn

1. Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson

Var allt í öllu í sóknarleik Kára og átti endalaust af hlaupum inn fyrir vörn Stjörnunnar. Það var líkt og þjálfarar Kára hefðu sagt Finnboga að horfa á leik Stjörnunnar gegn Aftureldingu hundrað sinnum því það eina sem hann gerði allan leikinn var að bruna inn fyrir vörn Stjörnunnar, og þá sérstaklega bakverðina.

2. Árni Snær Ólafsson

Mig langar rosalega að velja Hektor Bergmann hérna, eftir að hann kom inn á og jafnaði leikinn nánast strax og hann kom inn á, en ég verð að gefa Árna þetta. Skagamaðurinn knái varði tvær af þremur vítaspyrnum Kára í vítaspyrnukeppninni og tryggði sínum mönnum áfram í 16-liða úrslitin.

Atvikið

Jöfnunarmark Kára á 70 mínútu. Þvílíkur og annar eins tryllingur. Undirritaður hefur oft mætt í þessa blessuðu Akraneshöll, bæði sem leikmaður í yngri flokkum og sem áhorfandi í seinni tíð, og það hefur aldrei verið svona heitt þarna inni, ég er tilbúinn að staðhæfa það. Þegar Kári jafnar leikinn þá var það líkt og að vera á tónleikum hjá Kaleo í Brasilíu, slíkur var hitinn. Magnað að liðið hafi jafnað leikinn, þar sem varamaður lagði upp á annan varamann, einhverjum 70 sekúndum eftir að þeir komu báðir inn á.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða þegar fljótt er á litið ekkert annað en að Stjarnan verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitin á föstudaginn. Ef kafað er dýpra ofan í leikinn og það sem gerðist á þessum 120 mínútum þá var þarna ótrúlega ungt (Meðalaldur byrjunarliðs 21 ár) lið Kára sem er nýkomið upp í 2. deildina að standa sig feykilega vel gegn spræku Stjörnuliði, sem vann síðasta leik sinn í Bestu-deildinni, og Kári mega vera stoltir af þessari frammistöðu í kvöld. Þetta er klárlega frammistaða sem liðið ætti að reyna að taka áfram í næstu leiki í 2. deildinni og byggja ofan á.

Vondur dagur

Mér fannst þetta svo geggjaður leikur að ég veit ekki hvort ég nenni að fara þangað, en eins og nafni minn kom inn á í viðtalinu eftir leikinn, þá fékk Stjarnan urmul af góðum færum sem að Káramenn náðu annað hvort að bægja frá, komast fyrir, eða Stjörnumenn bombuðu yfir og fram hjá marki Kára. Þannig vondur dagur fer á færanýtingu Stjörnunnar, ekki neinn einn leikmann, að þessu sinni.

Dómarinn - 7

Villi Alvar sannar enn og aftur að hann er fremstur meðal jafningja á Íslandi og dæmdi þennan leik prýðisvel. Set samt 7 á hann þar sem það er möguleiki á því að Þorri Mar hefði átt að fá seinna gula í leiknum. Ég er samt ekki sannfærður þannig Villi nýtur vafans.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.