Fotbolti.net
@fotboltinetFótbolti.net
Fótbolti.net
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/​Njarðvík
Lengjudeild kvenna
JBÓ völlurinn
1 - 1
ÍA
ÍA
Eydís Arna Hallgrímsdóttir 3'1 - 01 - 189' María Martínez López (sjm)
Dómari: Ásgeir Sigurðsson
Leik lokið!
Skagakonur líklegri í uppbótartímanum til að stela öllum stigunum en náði ekki að skora. 1-1 lokatölur.
ÍA
89. mín
Draugamark???

María Martínez López (stoðsending: Ísabel Jasmín Almarsdóttir) (sjm)

Ísabel Jasmín með skot fyrir utan teig sem fer í varnarmann og María er í stökustu vandræðum með. María nær ekki að grípa boltann og aðstoðardómarinn, Abdelmajid Zaidy, metur sem svo að boltinn hafi farið inn. Lítur alls ekki þannig út í útsendingunni en þar sést þetta einungis úr fjarska. Gult spjald fór á loft í kjölfarið fyrir mótmæli.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
45. mín
Aðeins þetta eina mark litið dagsins ljós á JBÓ vellinum
Grindavík/Njarðvík
3. mín
Heimakonur taka forystu

Eydís Arna Hallgrímsdóttir

Ómögulegt að sjá á útsendingu hver það er sem skorar en það breytir ekki því að heimakonur leiða. Tinna átti hornspyrnu á fjærstöngina og ég held að þetta var annað hvort Eydís Arna eða Emma Nicole sem skoraði.
1. mín
Fyrir leik
Aðeins verður um úrslitaþjónustu að ræða.
Af óviðráðanlegum ástæðum verður aðeins um úrslitaþjónustu að ræða frá þessum leik. Við minnum þó aftur á að leikurinn er í beinni útsendingu áí opinni dagskrá á Livey og hægt er að horfa á leikinn hér á Fótbolti.net Smelltu hér til að fara í beina útsendingu frá JBÓ vellinum
Fyrir leik
Kemstu ekki á völlinn? Leikurinn í opinni dagskrá á Livey!

       

     

  

Fyrir leik
Aðstæður
JBÓ völlurinn lítur bara ágætlega út þetta vorið enda veður verið nokkuð hagstætt. Hvað veður á meðan á leik stendur varðar ættu sólgleraugu og sólarvörn að vera staðalbúnaður. Það verður bongó.
Fyrir leik
Dómarinn
Ásgeir Sigurðsson er með flautuna í sólinni í Njarðvík í dag. Honum til aðstoðar eru Baldur Björn Arnarsson og Abdelmajid Zaidy.
Fyrir leik
Liðin sem mætast
ÍA Eftir hreint út stórkostlegan Lengjubikar í vetur er lið ÍA loks komið í alvöruna á fullu.Sannfærandi tap í fyrstu umferð gegn Fylki í fyrstu umferð var vissulega skellur en lið ÍA rétti úr kútnum í annari umferð og bar 2-0 sigurorð af Aftureldingu. Liðinu var spáð 2.sæti deildarinnar fyrir mót en eins og deildin er að spilast í byrjun er ljóst að nánast allir geta unnið alla í þessari deild og ekkert verður gefið fyrirfram. Grindavík/Njarðvík Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur gæti orðið eitt af ólíkindatólum deildarinnar þetta sumarið. Eftir nokkuð óvæntan 2-1 sigur á ÍBV í fyrstu umferð fór liðið í heimsókn á tekk völlinn til Fylkis. Úr varð hörkuleikur þar sem Eva Stefánsdóttir tryggði fylki sigur með marki í uppbótartíma en 3-2 urðu lokatölur leiksins.
Fyrir leik
Lengjudeildin og bongó er gott kombó.
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu lýsingu Fótbolta.net frá leik Grindavík/Njarðvík og ÍA í þriðju umferð Lengjudeildar kvenna. Flautað verður til leiks á JBÓ vellinum í Reykjanesbæ á slaginu 14:00
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.