Fotbolti.net
Besta deildin
@HilmarjokullHilmar Jökull Stefánsson
Hilmar Jökull Stefánsson
Fram
Fram
Besta-deild kvenna
Lambhagavöllurinn
Bongó en smá vindur
1 - 3
Þór/KA
Þór/​KA
0 - 120' Amalía Árnadóttir0 - 230' Sandra María Jessen Murielle Tiernan 45'1 - 21 - 360' Sandra María Jessen
Dómari: Guðni Páll Kristjánsson

SKÝRSLAN: Lautarferð Söndru Maríu í Dal Draumanna

Hvað réði úrslitum?

Þór/KA gerðu betur við þær stöður sem þær fengu heldur en heimakonur í Fram. Fram nýtti sér ekki þær fjölmörgu stöður sem þær fengu hátt á vellinum og komust ekki nógu oft nálægt marki gestanna.

Bestu leikmenn

1. Sandra María Jessen (Þór/KA)

Sandra hefur oft verið meira í boltanum í leikjum en hún skoraði tvö mörk og það er nákvæmlega sá fjöldi marka sem skildi liðin að í dag. Hún er svo ólseig þegar hún kemst í færi, með betri markaskorurum okkar Íslendinga.

2. Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)

Hulda átti fullt af góðum sprettum á hægri kanti gestanna í dag. Ótrúlega seig og var alltaf að fara framhjá varnarmönnum Fram og skapa hættulegar stöður og góð færi fyrir Þór/KA.

Atvikið

Þriðja mark Þór/KA. Stórglæsileg og föst sending frá Angelu utan af hægri kanti, beint á pönnuna á Söndru Maríu sem stýrði boltanum vel í netið. Markið sem gerði það að verkum að endurkoma Fram var aldrei möguleiki. Fram sótti einmitt í uppbótartímanum en eitt mark frá þeim þar hefði engu breytt, þrjú stigin voru klár norður.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA styrkja stöðu sína í 4. sæti Bestu-deildar kvenna og eru komnar með 12 stig eftir 6 leiki og bara einu stigi á eftir FH í 3. sætinu. Fram konur eru hins vegar að sogast niður í fallbaráttu og verða að ná í sigur gegn Tindastól í næsta leik í alvöru fallbaráttuslag.

Vondur dagur

Sóknarlína Fram. Virkuðu svolítið týndar á köflum, eins og þær vissu ekki hvað þær ættu að vera að gera. Náðu sjaldan að breyta góðum stöðum í góð færi og hefðu í raun þurft meira á síðasta þriðjungi til að eiga eitthvað erindi í leikinn.

Dómarinn - 7

Guðni og hans fólk áttu stórfínan leik í dag. Get ekki tiltekið neitt eitt atriði sem ætti að lækka þau og leikurinn fékk að flæða vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.