ÍA
0
3
ÍBV

0-1
Alex Freyr Hilmarsson
'40
0-2
Sverrir Páll Hjaltested
'55
0-3
Sverrir Páll Hjaltested
'84
01.06.2025 - 18:00
ELKEM völlurinn
Besta-deild karla
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
ELKEM völlurinn
Besta-deild karla
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
4. Hlynur Sævar Jónsson
('60)

5. Baldvin Þór Berndsen
6. Oliver Stefánsson
('37)

7. Haukur Andri Haraldsson
('87)

9. Viktor Jónsson
13. Erik Tobias Sandberg
16. Rúnar Már S Sigurjónsson (f)
('60)

19. Marko Vardic
22. Ómar Björn Stefánsson
('87)

66. Jón Gísli Eyland Gíslason
- Meðalaldur 25 ár
Varamenn:
12. Jón Sölvi Símonarson (m)
3. Johannes Vall
('37)

15. Gabríel Snær Gunnarsson
('87)

17. Gísli Laxdal Unnarsson
('60)

18. Guðfinnur Þór Leósson
20. Ísak Máni Guðjónsson
('60)

23. Robert Elli Vífilsson
('87)

33. Arnór Valur Ágústsson
77. Jón Viktor Hauksson
- Meðalaldur 21 ár
Liðsstjórn:
Jón Þór Hauksson (Þ)
Aron Ýmir Pétursson
Stefán Þór Þórðarson
Teitur Pétursson
Dean Martin
Dino Hodzic
Mario Majic
Logi Mar Hjaltested
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sannfærandi sigur Eyjamanna
Arnar Þór flautar til leiksloka og sannfærandi sigur staðfestur.
Skýrsla og viðtöl á leiðinni
Takk fyrir mig.
Skýrsla og viðtöl á leiðinni
Takk fyrir mig.
90. mín
Vel mætt á völlinn
683 á vellinum hér í kvöld að horfa á sína menn tapa sannfærandi
84. mín
MARK!

Sverrir Páll Hjaltested (ÍBV)
Stoðsending: Arnar Breki Gunnarsson
Stoðsending: Arnar Breki Gunnarsson
ÍBV klárar leikinn
Vandræðagangur í vörn ÍA.
Baldvin þór með slæma sendingu úr vörninni sem endar fyrir rest á hægr kanti sem á fína sendingu á Sverrir sem á ekki í neinum vandræðum með að klára færið og kórónar glæsilega frammistöðu hér í kvöld

80. mín
Fín tilraun hjá Sverri
Sverrir búinn að eiga flottan leik hér í dag og skapa góð færi.
Flott samspil hjá honum og Þorláki og Sverrir kemst inn í teig og skýtur fast úr þröngu færi og yfir. Erik Tobias gerir vel og nær að loka á hann.
Flott sókn engu að síður.
Flott samspil hjá honum og Þorláki og Sverrir kemst inn í teig og skýtur fast úr þröngu færi og yfir. Erik Tobias gerir vel og nær að loka á hann.
Flott sókn engu að síður.
76. mín
Dauðafæri hjá Gísla Laxdal
Þarna hefði Gísli átt að gera betur.
Er einn í teignum og skýtur viðstöðulaust og fast af 10 metra færi en beint á Marcel.
Er einn í teignum og skýtur viðstöðulaust og fast af 10 metra færi en beint á Marcel.
75. mín
Heimamenn aðeins að sækja í sig veðrið
En því miður eru fyrirgjafir og hornspyrnur ekki upp á marga fiska.
Langflestar ekki farið framhjá fyrsta varnarmanni ÍBV
Langflestar ekki farið framhjá fyrsta varnarmanni ÍBV
73. mín
Ómar Björn með færi
Gísli Laxdal með flotta fyrirgjöf af hægri kanti og beint á kollinn á Ómari en nær ekki alveg nægilegum krafti og skallinn laus og yfir
71. mín

Inn:Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
Út:Vicente Valor (ÍBV)
ÍBV með sína fyrstu breytingu
Vicente búinn að eiga flottan leik hér í dag og fær verðskuldaða hvíld
67. mín
Felix Örn með gott færi
Flott spilamennska hjá ÍBV og boltinn gengur manna á milli og endar hjá Felix sem á nokkuð frítt skot rétt fyrir utan teig en skotið laust og yfir.
63. mín
ÍBV aftur með öll völdin á vellinum
Öll orka farin úr heimamönnum eftir þetta stórkostlega mark hjá Sverri.
ÍBV miklu líklegra til að bæta við frekar en að ÍA minnki muninn
ÍBV miklu líklegra til að bæta við frekar en að ÍA minnki muninn
60. mín

Inn:Ísak Máni Guðjónsson (ÍA)
Út:Hlynur Sævar Jónsson (ÍA)
Tvöföld skipting hjá Jóni
60. mín

Inn:Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Út:Rúnar Már S Sigurjónsson (ÍA)
Tvöföld skipting hjá Jóni
55. mín
MARK!

Sverrir Páll Hjaltested (ÍBV)
Þvílíkt mark hjá hinum íslenska Zlatan
Þvílík snilld hjá Sverri sem fær boltann á miðjunni og er fljótur að hugsa og sér að Árni er langt út úr markinu.
Og afgreiðslan alveg upp á 10 hjá Sverri sem sendir boltann einfaldlega yfir Árna og í markið.
Þetta verður mark umferðarinnar.
Og afgreiðslan alveg upp á 10 hjá Sverri sem sendir boltann einfaldlega yfir Árna og í markið.
Þetta verður mark umferðarinnar.
52. mín
ÍA betri aðilinn
Heimamenn hafa mætt vel peppaðir til leiks, meira með boltann og eru að skapa hálfæri.
49. mín
Jón Gísli með ágætis tilraun
Fær háan bolta á hægri kantinn og tekst að snúa sér inn á miðju og á fína tilraun með vinstri en boltinn yfir markið
47. mín
Heimamenn byrja af miklum krafti
Jón Þór sennilega verið með hressa ræðu í hálfleik. Allt annað að sjá til Skagamanna hér í upphafi
45. mín
Hálfleikur
ÍBV leiðir í hálfleik
Heilt yfir sanngjörn úrslit en þó má segja að markið hjá Viktori átti að standa.
En svo átti ÍBV að fá víti þegar Árni fellir Sverri inn í teig, kom aldrei við boltann og var ekki einu sinni nálægt því
En svo átti ÍBV að fá víti þegar Árni fellir Sverri inn í teig, kom aldrei við boltann og var ekki einu sinni nálægt því
43. mín
Munaði litlu að heimamenn jafni
Góð hornspyrna hjá Rúnari og Erik kemst í boltann inni í teig en Erik hittir hann illa en boltinn fer samt einungis rétt framhjá
40. mín
MARK!

Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)
Stoðsending: Vicente Valor
Stoðsending: Vicente Valor
Gestirnir komnir yfir
Vicente með flotta fyrirgjöf á Alex sem er algjörlega frír í teignum. Hann hefði geta fengið sér sæti og sígarettu áður en hann klára færið.
Algjört klúður í varnarleik ÍA og sýnist Jón Gísli dekka rangar mann og gleymir Alex alveg.
Góð afgreiðsla með vinstri engu að síður og óverjandi fyrir Árna í markinu
Algjört klúður í varnarleik ÍA og sýnist Jón Gísli dekka rangar mann og gleymir Alex alveg.
Góð afgreiðsla með vinstri engu að síður og óverjandi fyrir Árna í markinu
38. mín
Viktor með frían skalla
Góð fyrirgjöf frá Jóni Gísla sem ratar beint á kollinn á Viktori sem á því miður ekki nógu góðan skall og fer beint í fanrið á Marcel
37. mín

Inn:Johannes Vall (ÍA)
Út:Oliver Stefánsson (ÍA)
Oliver þarf að fara af vell vegna meiðsla
31. mín
Mynd af rangstöðudómnum áðan
Er þetta dagur rangra rangstæðudóma? #fotbolti #bestadeildin @Skagamenn pic.twitter.com/FQNGHAyv5A
— Brynjólfur Þór Guðmundsson (@BrynThor) June 1, 2025

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Oliver Stefánsson liggur meiddur í grasinu
Sjúkraþjálfara eru að hlúa að honum og leikurinn er stopp núna í nokkrar mínútur.
En hann gefur merki um að koma inn á aftur.
En hann gefur merki um að koma inn á aftur.
26. mín
Viktor með glæsilega afgreiðslu en rangstæður
Þarna hefði ÍA geta komist yfir þverrt gegn gangi leiksins.
Geggjuð afgreiðsla hjá Viktori sem tekur háan bolta á kassan og neglir honum í markið.
Því miður fyrir heimamenn þá er rangstaða dæmd.
En við betri sýn í endursýningu þá var þetta tæpt og ég sá ekki betur en að Sigurður Arnar hefði hugsanlega spilað hann réttstæðan

25. mín
Tomic með gott færi
Milan Tomic fær boltann rétt fyrir utan teig og reynir að skrúfa honum í bláhornið en boltinn fer svo sem þægilega framhjá
24. mín
ÍBV með öll völd á vellinum
Eyjamenn eru einfaldlega miklu betri en heimamenn.
Meira með boltann, skapa betri færi og eru einfaldlega grimmari.
Meira með boltann, skapa betri færi og eru einfaldlega grimmari.
19. mín
Atvikið aftur
Árni missir boltann og hann dettur í fæturnar á Sverri sem fer framhjá honum inni í teig innan um margmennið og Árni einfaldlega fellur hann inni í teig
Þetta átti 100% að vera víti
Þetta átti 100% að vera víti
19. mín
Dauðafæri ÍBV sem átti að fá VÍTI
Árni í tómu tjóni og misreiknar boltann og missir hann inn í teig og svo brýtur hann á Sverri en ekkert dæmt.
Þetta átti að vera víti allan daginn.
Svo bjargar Erik á línu í kjölfarið
Þvílík dramatík á skömmum tíma
Þetta átti að vera víti allan daginn.
Svo bjargar Erik á línu í kjölfarið
Þvílík dramatík á skömmum tíma
16. mín
Góð sókn hjá ÍBV
Vicente með flotta sendingu á Sverri inn í teig í þröngu færi og nær ekki að snúa Erik frá sér sem gerir vel og hreinsar í hornspyrnu
14. mín
Matthias með klaufalegan skalla
Ætlaði að skalla til baka á Marcel en boltinn fer framhjá og útaf, með smá óheppni hefði þetta geta verið sjálfsmark
Horn fyrir heimamenn en það kemur ekkert út úr henni
Horn fyrir heimamenn en það kemur ekkert út úr henni
11. mín
Ómar hefði átt að gera betur
Frábær markspyrna hjá Árna beint á Ómar sem er einn á móti varnarmanni IBV en á slappa sendingu sem átti rata á Hauk en það var aldrei að fara að gerast.
10. mín
Óþarflega margir háir boltar í byrjun
Minnir helst á ensku deildina fyrir 30 árum síðan
5. mín
ÍBV meira með boltann
ÍBV byrjar leikinn ágætlega og eru búnir að eiga nokkrar fyrirgjafir sem hafa þó runnið í sandinn
1. mín
Leikur hafinn
Fjörið er byrjað
Eyjamenn byrja með boltann í rokinu
Það er vel hvasst og ekki það hlýtt, en það er ekkert nýtt hér á bæ
Það er vel hvasst og ekki það hlýtt, en það er ekkert nýtt hér á bæ
Fyrir leik
Styttist í leik
Það heyrist vel í stuðningsfólki ÍA, bullandi stemming á pallinum og vel mætt.
Fyrir leik
Mikilvægur leikur fyrir bæði lið
Skagamenn mæta löskuðu liði Eyjamanna sem eru án lykilmanna í sókn. Skagamenn eru þrátt fyrir að sitja í neðsta sæti deildarinnar væntanlega uppfullir sjálfstrauts eftir frábæran sigur á Blikum í síðustu umferð.
Mikilvægur leikur fyrir bæði lið þar sem ekki er búist við opnum leik.
Í ljósi meiðslavandræða Eyjamanna þá er stuðulinn 1,77 á epic, eflaust vinsælt hjá þeim sem ætla að freista fæfunar yfir þessum leik

Byrjunarliðin
Það er óbreytt lið hjá Í frá frábærum sigri gegn Breiðabliki í síðustu umferð.
Þorlákur Árnason gerir hins vegar fjórar breytingar á sínu liði sem lagði FH. Sverrir Páll Hjaltested skoraði sigurmarkið og hann kemur inn í byrjunarliðið ásamt Sigurði Arnari Magnúsyni, Arnóri Inga Kristinssyni og Vicente Valor.
Bjarki Björn Gunnarsson, Birgir Ómar Hlynsson, Hermann Þór Ragnarsson og Jovan Mitrovic fá sér sæti á bekknum.

Spámaður vikunnar
Spámaður vikunnar Einar Jónsson er sennilega búinn að ræða við Sjóvá, TM og Vís fyrir þennan leik.
Hann spáir skemmtilegum 2-2 leik en óskar jafnframt eftir tví- og þrítryggingu.
Með öðrum orðum þá er erfitt að spá fyrir um úrslitin hér í kvöld.
Hann spáir skemmtilegum 2-2 leik en óskar jafnframt eftir tví- og þrítryggingu.
Með öðrum orðum þá er erfitt að spá fyrir um úrslitin hér í kvöld.
Fyrir leik
Þjálfari ÍA
Jón Þór Hauksson er þjálfari Skagamanna og hefur gengið í gegnum súrt og sætt. Hann er á sínu fjórða tímabili og undir hans stjórn hefur liðið fallið um deild og aftur komist upp í þá Bestu.

Fyrir leik
Þjálfari ÍBV
Þorlákur Már Árnason er þjálfari Eyjamanna en hann tók við af engum öðrum en Hermanni Hreiðarssyni eftir síðasta tímabil. Hermann stýrði liðinu upp í Bestu deild og Láki tekur við.

Fyrir leik
Er Sigurður Arnar Magnússon heill heilsu?
Fyrirliði Eyjamanna kom inn af bekknum í síðustu umferð á móti FH. Hann er búinn að glíma við meiðsli og spilaði ekkert í leiknum á móti Val í áttundu umferð.
Ég hef engar fréttir séð um ástand fyrirliðans og geri því fastlega ráð fyrir því að hann verði aftur kominn í byrjunarliðið og stýrir vörn Eyjamanna hér í kvöld
Hér fyrir ofan er ein skemmtileg mynd af honum á móti Omar Sowe en í dag eru þeir samherjar.

Hvaðan eiga mörkin að koma fyrir ÍBV?
ÍBV varð fyrir áfalli fyrr á tímabilinu þegar tveir sterkustu sóknarmenn liðsins urðu fyrir meiðslum.
Omar Sowe sleit krossband og verður frá út tímabilið á meðan Oliver Hreiðarsson verður frá næstu vikurnar.
Omar Sowe sleit krossband og verður frá út tímabilið á meðan Oliver Hreiðarsson verður frá næstu vikurnar.
Fyrir leik
ÍBV marði FH í síðustu umferð
Eyjamenn lögðu FH í síðustu umferð með flautumarki í uppbótartíma 2-1, þegar varamaðurinn Sverrir Páll Hjaltested skoraði á 92. mínútu.
Eyjamenn höfðu heppnina með sér og það er mikið sagt þegar sjálfur Tryggvi Guðmundsson segir að FH hafi verið sterkari aðilinn í leiknum.
ÍBV situr í sjöunda sæti fyrir þess umferð en einungis tvö stig skilja liðin að. Sem sagt með sigri fer ÍA fyrir ofan ÍBV í töflunni.

Markahókurinn Viktor Jónsson
Það mun mikið mæða á Viktori Jónssyni markahróki Skagamanna hér í kvöld. Hann er búinn að stimpla sig rækilega inn í tímablið og kominn með fimm mörk það sem af er sumri.

Fyrir leik
Skagamenn höfðu betur gegn Íslandsmeisturunum í síðustu umferð
ÍA menn unnu frækin sigur á móti Breiðablik í síðustu umferð 4-1 á Kópavogsvelli, klárlega eitthvað til að byggja ofan á.
Skagamenn eru fyrir þessa umferð í 12. og neðsta sæti Bestu deildar en það segir alls ekki alla söguna þar sem einungis tvö stig skilja að liðin í 7. til 12. sæti
Skagamenn eru fyrir þessa umferð í 12. og neðsta sæti Bestu deildar en það segir alls ekki alla söguna þar sem einungis tvö stig skilja að liðin í 7. til 12. sæti
Fyrir leik
Dómarar í kvöld
Dómarar í kvöld eru:
Arnar Þór Stefánsson - Dómari
Patrik Freyr Guðmundsson - Aðstoðardómari 1
Ronnarong Wongmahadthai - Aðstoðardómari 2
Arnar Þór Stefánsson - Dómari
Patrik Freyr Guðmundsson - Aðstoðardómari 1
Ronnarong Wongmahadthai - Aðstoðardómari 2

Byrjunarlið:
1. Marcel Zapytowski (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon
5. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
('90)

10. Sverrir Páll Hjaltested
('85)

14. Arnar Breki Gunnarsson
('85)

23. Arnór Ingi Kristinsson
25. Alex Freyr Hilmarsson (f)

26. Felix Örn Friðriksson
30. Vicente Valor
('71)

45. Þorlákur Breki Þ. Baxter
('90)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
31. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
4. Nökkvi Már Nökkvason
('90)

8. Bjarki Björn Gunnarsson
11. Víðir Þorvarðarson
('71)

21. Birgir Ómar Hlynsson
('85)

24. Hermann Þór Ragnarsson
('85)

44. Jovan Mitrovic
('90)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Þorlákur Már Árnason (Þ)
Óskar Elías Zoega Óskarsson
Jón Ingason
Björgvin Eyjólfsson
Arnar Gauti Grettisson
Elías Árni Jónsson
Kristian Barbuscak
Gul spjöld:
Rauð spjöld: