Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
KR
2
1
Vestri
0-1 Daði Berg Jónsson '41
Eiður Gauti Sæbjörnsson '76 1-1
Atli Hrafn Andrason '87 2-1
01.06.2025  -  14:00
AVIS völlurinn
Besta-deild karla
Aðstæður: Skýjað og hiti um 10 gráður, örlítil gola.
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Áhorfendur: 738
Maður leiksins: Atli Hrafn Andrason (KR)
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
10. Guðmundur Andri Tryggvason ('70)
11. Aron Sigurðarson (f)
16. Matthias Præst
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson ('70)
28. Hjalti Sigurðsson
29. Aron Þórður Albertsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
90. Haukur Logi Tryggvason (m)
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18. Óliver Dagur Thorlacius
19. Tristan Gauti Línberg Arnórsson
20. Atli Hrafn Andrason ('70)
23. Atli Sigurjónsson ('70)
27. Róbert Elís Hlynsson
37. Auðunn Gunnarsson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Theodór Elmar Bjarnason
Jamie Paul Brassington
Guðjón Örn Ingólfsson
Jón Birgir Kristjánsson
Guðmundur Óskar Pálsson
Björn Valdimarsson
Lúðvík Júlíus Jónsson

Gul spjöld:
Aron Þórður Albertsson ('31)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Endurkomu sigur KR Twana flautar til leiksloka hér í Laugardal. KR náði að snúa þessu við sér í vil undir lokin og gríðarlega mikilvægur sigur KR staðreynd. Vestramenn eru pottþétt mjög svekktir.

Nánari umfjöllun síðar í dag. Minni á að það er nóg framundan í Bestu deildinni og ég hvet fólk til að missa ekki af þeirri veislu sem framundan er.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
87. mín MARK!
Atli Hrafn Andrason (KR)
Stoðsending: Atli Sigurjónsson
KR ER AÐ SNÚA ÞESSU VIÐ!!!! Aron Sigurðsson fær boltann við vítateiginn en Vestramenn voru fljótir að loka á hann og Aron Sig nær engu skoti á markið og leggur boltann til hliðar á Atla Sig sem kemur með geggjaðan bolta inn á teiginn á Atla Hrafn sem stangar boltann í netið!!!

ATLARNIR TVEIR AÐ TRYGGJA KR STIGIN ÞRJÚ?
87. mín
KR fá aukspyrnu við hornfánan hægra megin.

Hættulegur bolti frá Aroni inn á teiginn en Vestri skallar boltann frá.
86. mín Gult spjald: Emmanuel Duah (Vestri)
Kemur í veg fyrir að KR taki aukaspyrnu hratt.
85. mín
Nú fer hver að verða síðastur Fáum við sigurmark frá öðruhvoru liðinu ?
82. mín
KR INGAR HÓTA!! Aron lyftir boltanum inn á teiginn og boltinn berst á Jóa Bjarna sem á skot fyrir utan en boltinn beint á Smit.
80. mín
KR VILJA HENDI VÍTI Boltinn kemur fyrir á Morten Ohlsen fær boltann í sig.

Var þetta hendi?
76. mín MARK!
Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Stoðsending: Atli Hrafn Andrason
KR ERU AÐ JAFNA!!!! Atli Hrafn með skot að marki eftir fyrirgjöf frá Atla Sig, Smit ver boltann en boltinn berst beint á Eið Gauta sem skorar af stuttu færi.

ALLT JAFNT Í LAUGARDAL.
75. mín Tegund færslu: VAR
VAR herbegi .Net er á vaktinni Sjónvarpsendursýningar sýna að um rangan dóm hafi verið að ræða en Aron Þórður spilaði Daða rétt stæðan.

Gæti þetta orðið dýrt fyrir Vestra?
74. mín
Inn:Sergine Fall (Vestri) Út:Gunnar Jónas Hauksson (Vestri)
Gunnar Jónas getur ekki lokið leik hérna í dag.
73. mín
gunnar Jónas liggur og þarf aðhlyningu og labbar útaf vellinum ásamt sjúkraþjálfara liðsins.
71. mín
DAÐI BERG MEÐ FRÁBÆRA AFGREIÐSLU Fær boltann inn fyrir og chippar yfir Halldór sem var laggstur en þetta mark telur ekki. Flaggið á loft og rangstæða dæmd.

Þetta var helvíti tæpt.
70. mín
Inn:Atli Sigurjónsson (KR) Út:Ástbjörn Þórðarson (KR)
70. mín
Inn:Atli Hrafn Andrason (KR) Út:Guðmundur Andri Tryggvason (KR)
66. mín
Þessi varnarleikur KR ÚFFF Boltinn berst inn á teiginn á Kjeldsen sem nær á einhvern ótrúlegan hátt ekki að setja boltann í netið.
64. mín
Aron Sigurðsson svo nálægt því að ná skoti á markið eftir skot/furirgjöf þá berst boltinn til Arons inn á teignum en frábær varnarleiur hjá Emmanuel.
58. mín
Emmanuel Duah!!!! Gunnar Jónas með frábæran bolta inn á teiginn frá hægri í átt að Emmanuel sem fær boltinn en hittir hann ekki.

Dauðafæriii fyrir Vestra til aö tvöfalda.
57. mín
Inn:Emmanuel Duah (Vestri) Út:Vladimir Tufegdzic (Vestri)
56. mín
Eiður Aron er svo góður varnarmaður!! Gandri fær boltann og ætlar framhjá Eiði en Eiður tók það ekki til mála og jarðaði Guðmund Andra, létt steig hann út og Guðmundur Andri átti lítin séns í þetta einvígi.
54. mín Gult spjald: Jeppe Pedersen (Vestri)
52. mín
Gunnar Jónas nálægt því að prjóna sig inn á teiginn Þetta var hættuleg skyndisókn!!

Gunnar Jónas fær boltann úti hægramegin og keyrir í átt að teignum en frábær varnarleikur hjá Finni Tómasi. Stuðningsmenn Vestra kalla eftir aukaspyrnu en ég held að það hafi ekki verið neitt í þessu.
48. mín
Jóhannes Bjarnason! Aron Sig tekur hornspyrnu inn á teiginn. Vestramenn skalla frá beint á Jóhannes sem tekur viðstöðulaust skot en boltinn framhjá.
47. mín
Vestri fær hornspyrnu Monteil tekur spyrnuna en KR kemur boltanum í burtu.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað.
45. mín
Vestri komnir yfir og munu færa sig aftar á völlinn. Þar líður þeim vel og munu beita hættulegum skyndisóknum og miðað við ástandið í vörn KR þá eru allar líkur á því að þeir fái nóg af færum.
Vestri yfir 1.5 mörk er 1.91 hjá Epic. Ef menn vilja taka hærri stuðla þá má benda á að stuðullinn á Vestra með -1 mark í forgjöf er 5,50.
45. mín
Hálfleikur
Vestramenn leiða inn í hálfleik eftir frekar rólegan fyrri hálfleik þannig séð sem einkenndist af hornspyrnum og fyrirgjöfum.

Tökum okkur korter.
45. mín
Einni mínútu bætt við í Þróttheimum.
43. mín
Inn:Morten Ohlsen Hansen (Vestri) Út:Thibang Phete (Vestri)
Þessi stóðsending það síðasta sem kom frá Phete í dag.
41. mín MARK!
Daði Berg Jónsson (Vestri)
Stoðsending: Thibang Phete
VESTRI ER KOMIÐ YFIR!!! Thibang Phete vinnur boltann og á hárnákvæma sendingu inn á Daða Berg sem tók gott hlaup inn fyrir vörn KR. Daði fær boltann og leikur sér framhjá Halldóri áður en hann rennir boltanum í netið.

Þessi gæji, alvöru töffari. Þvílíkur fengur fyrir Vestra að fá Daða Vestur.
36. mín Gult spjald: Thibang Phete (Vestri)
Fær spjald fyrir að taka boltann þegar KR átti aukaspyrnu.
34. mín
Aron Sig! Fær boltann vinstra megin inn á teig Vestra og leitar inn á hægri og á skot sem fer af varnarmanni og afturfyrir.

Ekkert kom upp úr horspyrnunni.
31. mín Gult spjald: Aron Þórður Albertsson (KR)
Aron fær spjald fyrir brotið á Diego.

Hárrétt.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Leikmenn hópast að hvorum öðrum Aron Þórður brýtur á Diego á miðjum vallarhelmingi KR. Vestramenn ekki sáttir og liðin hópast að hvoru öðru.
28. mín Gult spjald: Vladimir Tufegdzic (Vestri)
26. mín
KR fær hornspyrnu Enn eitt hornið sem KR vinnur.

Jói með fyrirgjöfina sem endar á fjær, Finnur Tómas skallar boltann inn að marki en Vestramenn koma boltanum í burtu.
24. mín
Jeppe Pedersen fær boltann í góðri stöðu úti vinstra megin en fyrirgjöfin hans alls ekki góð og fer afturfyrir.
22. mín
Jói tekur hornspyrnuna sem er góð og eftir. Hjalti nær skalla í átt að marki en Phete nær að skella boltann í burtu, boltinn berst á Aron Þórð sem á skot fyrir utan teig en boltinn af varnarmanni Vestra og í hornspyrnu.

Ekkert verður úr henni.
21. mín
KR fær hornspyrnu Jói Bjarna tekur spyrnuna og KR fær aðra hornspyrnu í strax í kjölfarið.
20. mín
Rólegt yfir þessu Það hefur afskaplega lítið verið að frétta síðustu mínútur leiksins en færin eiga eftir að láta sjá sig.
14. mín
Aron Sig Fær boltann fyrir utan teig og á skot sem nær að slá út úr teignum.
13. mín
Hætta inn á teig KR Vestra menn lyfta boltanum inn á teiginn og eftir einhvern darraðadans inn nær Phete skoti á markið en boltinn rétt framhjá.
10. mín
Hjalti Sig fær boltann og á fyrirgjöf inn á teiginn en boltinn alltof innarlega og í hendur Guy.
8. mín
Vestri fær hornspyrnu Monteil tekur hana en KR kemur boltanum í burtu.
6. mín
Aron Sig með aukaspyrnu rétt fyrir utan teig en boltinn framhjá. Rétt áðan varði Halldór Snær Georgsson skot sem Thibang tók hinumegin.
5. mín
Byrjunarliðin Svona sé ég þetta.

KR
Dóri
Jói-Hjalti-Finnur-Gabríel
Ástbjörn-Aron Þórður-Præst-GAndri
Aron Sig
Eiður Gauti

Vestri

Guy
Gustav Kjeldsen-Eiður - Phete
Kralj - Fatai - Montiel- Gunnar Jónas
Daði - Vladimir - Jeppe

1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað Twana flautar tíundu umferð Bestu deildarinnar af stað. Það eru Vestra menn sem hefja leik.

Góða skemmtun.
Fyrir leik
Liðin ganga til leiks undir Besta stefinu! Twana Khalid leiðir liðin til leiks og vallarþulur er búin að bjóða áhorfendur velkomna og er byrjaður að kynna liðin.

Þetta er að bresta á.
Fyrir leik
Afar áhugaverður leikur þar sem tveir ólíkir leikstílar takast á. KR leikir þýða mörg mörk en Vestra leikir yfirleitt ansi fá mörk. Það er ansi ólíklegt að Óskar Hrafn fari eitthvað að kasta sér á einhver önnur sverð og mörkin verða ráðandi hér í dag. Yfir 3.5 mörk í þessum leik er á stuðlinum 1.83 hjá Epic
Fyrir leik
Besta sóknin gegn bestu vörninni: Markatala KR: 26-22
Markatala Vestra: 11-5


Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Svona leggur Davíð Smári línurnar í dag

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Svona leggur Óskar línurnar reiknum við með

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn - Finnur og Daði snúa aftur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn Þorvaldsson gerir tvær breytingar frá tapinu gegn Stjörnunni í Garðabæ. Finnur Tómas Pálmason kemur inn í byrjunarlið KR eftir leikbann. Aron Þórður Albertsson kemur inn í liðið. Alexander Helgi Sigurðarson er ekki í hóp og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson sest á bekkinn.

Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, gerir eina breytingu. Daði Berg Jónsson snýr aftur í byrjunarliðið en hann lék ekki í tapinu gegn Víkingi þar sem hann er á láni frá Víkingum. Silas Songani sest á bekkinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Hver hefði spáð því að Vestri væri fyrir ofan Stórveldið 1. Júní! Við fengum Íslands- og bikarmeistarann Einar Jónsson, þjálfara karlaliðs Fram í handbolta, til þess að spá í umferðina sem framundan er.

Þetta hafði Einar að segja um þennan leik hér í dag.

KR 4 - 1 Vestri (14:00, í dag)
Hver hefði spáð því að Vestri væri fyrir ofan Stórveldið 1. Júní!

Tveir algjörir fagmenn að stýra þessum liðum. Davið Smári að gera geggjaða hluti. Ég er mikill Óskars maður og hefur hann verið að bjóða upp á mikla markaveislu í sumar, þessi leikur verður engin undantekning og munu KR ingar vinna 4-1 sigur á Vestramönnum. Solid að henda betti á yfir 4.5 mörk!

Aron er topp þrír í þessari deild og setur allavega tvö. Finnur kemur inn og stillir vörnina saman. Halldór verður svo geggjaður í búrinu. Daði skorar alltaf fyrir Vestra, besti ungi leikmaðurimn by a country mile. Ef allt er eðlilegt á hann bara júní eftir í þessari treyju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Það hefur ekki vantað fjörið í leiki KR KR er í 9.sæti deildarinnar fyrir leik dagsins með tíu stig. KR hafa verið algjörir skemmtikraftar í byrjun Bestu deildarinnar en liðið hefur skorað 26 mörk í sumar og fengið á sig 22. Ekkert lið hefur skorað jafn mörg mörk í sumar né fengið á sig.

KR fékk vægan skell á Samsungvellinum í Garðabæ þegar liðið mætti Stjörnunni í síðustu umferð. Leikurinn endaði 4-2 fyrir heimamenn. Aron Sigurðarson og Hjalti Sigurðsson skoruðu mörk Vesturbæinga.

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR mætti í viðtal við Fótbolta.net þar sem hann skildi ekki hvernig liðið fékk á sig fjögur mörk gegn Stjörnuliðinu sem lék ekki betur en raun bar vitni að hans sögn.

„Það er sorglegt að fá á sig fjögur mörk gegn Stjörnuliði sem spilaði ekki betur en raun bar vitni. Mér fannst sóknarleikurinn að mörgu leyti frábær, en við hefðum átt að nýta færin betur.“

„Ef þú lítur þröngt á stigasöfnunina þá er hún ekki nógu góð. Ef þú lítur á hvar KR-liðið var í byrjun tímabils, hvernig liðið hefur þróast. Þá held ég að við séum á fínum stað til að verða betri.“



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Vestri Vestri hefur komið öllum á óvart þannig séð en liðið er í toppbaráttu Bestu deildarinnar þegar hefbundin deildarkeppni er að vera hálfnuð, það hefðu ekki margir haft trú á því nema kannski Davíð Smári og hans fólk.

Vestri fékk Víking Reykjavík í heimsókn í síðustu umferð í leik sem endaði 0-1 fyrir gestunum en það mark kom af vítapunktinum.

Davíð Smári var allt annað en sáttur í leikslokum og fannst liðið sitt eiga að fá eitthvað úr þeim leik og þá var Davíð Smári ekki sáttur með Sigurð Hjört Þrastarson sem dæmdi þann leik.

„Ég ætla ekki að kommenta neitt á það. Mér fannst þeir fá allt, allar aukaspyrnur sem þeir báðu um og komust upp með að væla og liggja í grasinu. Ég er stoltur af mínu liði. Við þvingum Víkinga í fimm manna varnarlínu og erum betri áður en þeir fá þetta víti."



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarar Twana Khalid Ahmed fær það verkefni að flauta leikinn hér í dag en Twana dæmdi leik Breiðablik og ÍA í síðustu umferð og fékk þó nokkrar gagnrýnidraddir á sig eftit þann leik þar sem hann sleppti tveimur mögulegum vítaspyrnu og augljósu rauðaspjaldi. Twana fær tækifæri í dag til að stroka það út.

Twana til aðstoðar verða þeir Þórður Arnar Árnason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage. Fjórði dómari er enginn annar en Þórður Þorsteinn Þorsteinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin á fullri ferð Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomnir með okkur á Avisvöllinn í Þróttheimum þar sem KR tekur á móti Vestra í Bestu deild arla.

Flautað verður til leiks klukkan 14:00. Það er rosalegur dagur framundan í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Leikir dagsins.

14:00 KR-Vestri (AVIS völlurinn)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
18:00 ÍA-ÍBV (ELKEM völlurinn)
18:00 FH-Afturelding (Kaplakrikavöllur)
19:15 Breiðablik-Víkingur R. (Kópavogsvöllur)

Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
3. Anton Kralj
4. Fatai Gbadamosi
5. Thibang Phete ('43)
6. Gunnar Jónas Hauksson ('74)
7. Vladimir Tufegdzic ('57)
8. Daði Berg Jónsson
10. Diego Montiel
28. Jeppe Pedersen
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson (f)
40. Gustav Kjeldsen
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
1. Benjamin Schubert (m)
2. Morten Ohlsen Hansen ('43)
15. Guðmundur Arnar Svavarsson
19. Emmanuel Duah ('57)
22. Elmar Atli Garðarsson
23. Silas Songani
77. Sergine Fall ('74)
- Meðalaldur 29 ár

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Jón Hálfdán Pétursson
Guðmundur Páll Einarsson
Vladan Djogatovic
Kristoffer Grauberg
Vignir Snær Stefánsson
Ferran Montes I. Corominas

Gul spjöld:
Vladimir Tufegdzic ('28)
Thibang Phete ('36)
Jeppe Pedersen ('54)
Emmanuel Duah ('86)

Rauð spjöld: