SKÝRSLAN: Fram fer létt með Stjörnuna á heimavelli
Hvað réði úrslitum?
Fram var miklu betri í þessum leik nánast allan leikinn. Stjarnan fékk ágætis kafla í loka mínútum leiksins eftir að þær skora eitt mark, en sá kafli kom allt of seint til þess að hafa áhrif á úrslit leiksins.
Bestu leikmenn
1. Murielle Tiernan
Kom Framörum í þægilega stöðu með tveim mörkum. Stendur á réttum stað eftir fyrirgjöf frá Söru í fyrsta marki og skallar boltann vel inn í markið frá horni í því seinna.
2. Elaina Carmen La Macchia
Hún var ótrúleg í markinu og átti alveg tvær til þrjár vörslur sem björguðu leiknum alveg.
Atvikið
Þetta var mjög rólegur leikur með lítið af atvikum, en það var aðallega áhugavert að sjá Fram komast þrem mörkum yfir gegn Stjörnunni. Maður bjóst alls ekki við þeirri staðreynd fyrir þennan leik.
Hvað þýða úrslitin?
Fram fer upp fyrir Val í 5. sæti deildarinnar og Stjarnan liggur en í 7 sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Stjörnu liðið í heild sinni átti hörmulega leik í dag. Þær nýttu færin sín alls ekki nógu vel og þrátt fyrir að vera slatta með boltann þá fór boltinn ekki oft á markið. Vörnin í fyrsta og öðru markinu var alls ekki góð og náði Framarar að setja boltann í teig og beint á liðsfélaga sem kom boltanum í markið.
Dómarinn - 7
Engin spjöld fóru upp í loftið í leiknum, en það var heldur engin ástæða fyrir því í þessum leik. Línan var smá 'soft' fyrir brot en Guðmundur hélt sömu línunni allan leikinn sem var mjög fínt.




