Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetElíza Gígja Ómarsdóttir
Þróttur R.
Þróttur R.
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
2 - 0
Þór/KA
Þór/​KA
María Eva Eyjólfsdóttir 39'1 - 0Freyja Karín Þorvarðardóttir 59'2 - 0
Dómari: Hreinn Magnússon

SKÝRSLAN: Markmennirnir réðu úrslitum í Laugardalnum

Hvað réði úrslitum?

Ef við tölum bara tandurhreina íslensku þá voru það markmennirnir sem réðu úrslitum hér í dag. Jessica gaf tvö mörk á silfurfati á meðan Mollee varði eins og óð hinum megin. Nokkuð jafn leikur heilt yfir og þetta skar úr um úrslitin.

Bestu leikmenn

1. Mollee Swift (Þróttur)

Mollee Swift vann þennan leik fyrir Þróttara. Jóhann Kristinn, þjálfari Þór/KA sagði réttilega í viðtali eftir leik að sínir leikmenn hefðu mikið verið að skjóta beint í hana sem er alveg rétt en Mollee gerði þó vel líka í að gera sig stóra og loka markinu. Ég heyrði leikmenn Þróttar tala um að án hennar hefðu þær líklega tapað 2-6 og það er sennilega rétt.

2. María Eva Eyjólfsdóttir (Þróttur)

Var frábær og kom í veg fyrir það að Sandra María Jessen fengi úr nokkru að moða í leiknum. Skoraði einnig fyrsta mark Þróttar sem skemmdi ekki fyrir þessu vali. Jelena Tinna var einnig frábær í vörn Þróttar og tók við af Maríu þegar hún þurfti að fara af velli.

Atvikið

Markið sem Freyja Karín skorar klárar eiginlega leikinn. Þór/KA voru búnar að komast í góðar stöður fram að því og markið mikið högg, sérstaklega í ljósi þess hvernig það atvikaðist. Þór/KA reyndu og reyndu í stöðunni 0-2 en allt kom fyrir ekki.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttarar halda sínu sæti á toppnum og fara í 22 stig á meðan Þór/KA sitja sem fastast í 4. sæti með sín 15 stig.

Vondur dagur

Jessica Grace Berlin kostaði sitt lið heldur betur í dag. Gaf hornið sem fyrsta markið kom upp úr að óþörfu og fór svo í slakt úthlaup og fékk hann yfir sig í markinu sjálfu. Gaf líka annað markið en skot Freyju fór beint á hana og í raun ótrúlegt að boltinn hafi farið yfir línuna. Sandra María Jessen átti líka erfitt uppdráttar í leiknum

Dómarinn - 7

Þjálfararnir tveir voru mjög ósammála um gæði starfa Hreins í þessum leik en mér fannst hann bara komast ágætlega frá þessu heilt yfir. Þór/KA voru oft að pirra sig á honum en ég taldi hann gera þetta nokkuð vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.