Fotbolti.net
Besta deildin
@HilmarjokullHilmar Jökull Stefánsson
Hilmar Jökull Stefánsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Kópavogsvöllur
6 - 0
FHL
FHL
Samantha Rose Smith 14'1 - 0Agla María Albertsdóttir 45'2 - 0Barbára Sól Gísladóttir 50'3 - 0Birta Georgsdóttir 52'4 - 0Andrea Rut Bjarnadóttir 55'5 - 0Berglind Björg Þorvaldsdóttir 60'6 - 0
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson

SKÝRSLAN: Blikar völtuðu yfir FHL í seinni hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Breiðabliksliðið var miklu betra liðið á vellinum í dag en hér ber að hrósa Keelan Terrell markmanni FHL því hún kom í veg fyrir að Breiðabliksliðið skoraði á annan tug marka. FHL voru aldrei að fara að fá fyrstu stigin sín í deildinni á Kópavogsvelli.

Bestu leikmenn

1. Birta Georgsdóttir (Breiðablik)

Birta var frábær í dag. Var endalaust í boltanum og átti vörn FHL alveg í dag. Lagði upp 2 mörk og skoraði 1. Auðvelt val.

2. Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)

Berglind var flott í leiknum og báðir framherjar Breiðabliksliðsins eiga þetta í dag. Ég verð samt að segja að Keelan Terrell var líka mjög öflug en ég get ekki valið markmann sem fékk á sig 6 mörk.

Atvikið

3 mörk Breiðabliks á 5 mínútna kafla í seinni hálfleik. Þá gerðu heimakonur gjörsamlega út um leikinn og FHL sáu aldrei til sólar eftir að hafa lent 5-0 undir. Eiginlega magnað hvað Keelan Terrell varði mörg skot og kom þar af leiðandi í veg fyrir stærra tap gestanna.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik kemst á topp deildarinnar, eða þar til Þróttur hefur spilað við Þór/KA síðar í dag. FHL er ennþá með 0 stig á botni deildarinnar og það virðist þurfa kraftaverk, eða alvöru styrkingar, til þess að liðið haldi sér uppi í Bestu-deildinni.

Vondur dagur

Vörn FHL. Það er ekki þeim að þakka að Breiðablik hafi ekki skorað 20 mörk í leiknum í dag. Keelan Terrell fékk haug af skotum á sig og ansi mörg færi sem Breiðabliksliðið fékk sem hún náði að grípa inn í áður en verr fór.

Dómarinn - 9

Stefán Ragnar og hans teymi áttu stórfínan dag í dag. Einu vafaatriðin í leiknum voru hárrétt hjá þeim þannig ekkert við þá að klaga.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.