Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjarerlusonBrynjar Ingi Erluson
Brynjar Ingi Erluson
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta-deild kvenna
Víkingsvöllur
1 - 4
FH
FH
0 - 123' Deja Jaylyn Sandoval0 - 229' Thelma Karen Pálmadóttir0 - 379' Elísa Lana SigurjónsdóttirArna Ísold Stefánsdóttir 85'1 - 31 - 493' Thelma Karen Pálmadóttir
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: FH-ingar á siglingu

Hvað réði úrslitum?

Frammistaða FH var nálægt fullkomnun. Sandra var frábær í markinu, varnarleikurinn flottur og sóknarleikurinn öflugur svona stærstan hluta leiks. FH-ingar spiluðu sig vel út úr pressu og áttu oft of auðvelt með að hlaupa framhjá varnarmönnum Víkings. Í seinni leyfðu þær Víkingum eiginlega að vera með boltann og beittu öguðum varnarleik. Víkingar ekki sannfærandi á síðasta þriðjungi vallarins í dag.

Bestu leikmenn

1. Thelma Karen Pálmadóttir (FH)

Thelma Karen með tvennu. Fyrra markið ótrúlega gott skot eftir ágætis sprett, sem fór í stöng og inn og seinna eftir frábært samspil.

2. Maya Hansen (FH)

Maya var frábær. Lagði upp bæði mörkin fyrir Thelmu í leiknum, en seinna var í hæsta klassa með hælsendingu. Mikilvægi hennar í liðinu er gríðarlegt og treysta FH-ingar mikið á framlag hennar á vellinum. Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Sandra Sigurðardóttir fá líka tilnefningu, en gat því miður bara valið tvær.

Atvikið

Atvikin voru í raun tvö. Fyrsta atvikið var mögnuð varsla Söndru undir lok hálfleiksins, sem átti eftir að reynast mikilvæg. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir átti skot úr miðjum teignum sem stefndi í vinstra hornið, en viðbrögð Söndru voru á heimsmælikvarða. Mark hjá Víkingum þarna hefði getað gjörbreytt leiknum. Seinna atvikið er auðvitað sturlað samspil FH-inga í fjórða markinu. Samba-bolti, hælsending Mayu og yfirveguð afgreiðsla Thelmu.

Hvað þýða úrslitin?

FH-ingar unnu annan leik sinn í röð og eru áfram í 3. sætinu í toppbaráttu við Breiðablik og Þrótt, en þetta tap Víkings er vont. Liðið er í næst neðsta sæti og ekki unnið leik síðan í apríl. Það er farnið að hitna verulega undir sæti John Andrews.

Vondur dagur

Varnarleikurinn hjá Víkingum var alls ekki nógu góður. Erfitt að velja einhvern einn leikmann, en dekkningin í hornspyrnunum var slök. Andrews gerði eina breytingu snemma í síðari hálfleik og voru Víkingar að eiga góða spil kafla, en ekki ná að skapa færi. Það þurfti þriðja mark frá FH-ingum áður en hann gerði fleiri breytingar og þá tókst Víkingum að skora. Spurning hvort hann hefði átt hrófla liðinu fyrr.

Dómarinn - 8

Ásmundur átti flottan leik á flautunni. Leyfði honum að fljóta og var ekkert að dæma að óþörfu. Hann reif ekki upp eitt einasta spjald í leiknum, enda voru mjög fá atvik þar sem það var möguleiki á spjaldi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.