SKÝRSLAN: Öflug endurkoma hjá Njarðvíkingum
Hvað réði úrslitum?
Jafnræði með liðunum lengst af og bæði lið fengu fínustu færi til að skora. Þór kemst yfir en Njarðvíkingar jafna strax í næstu sókn. Þegar líða tók á urðu Þórsarar bara þreyttir og Njarðvíkingar náðu að komast fram fyrir þá og klára leikinn að lokum nokkuð sannfærandi.
Bestu leikmenn
1. Joao Ananias
Var úti um allt á miðjunni hjá Njarðvík. Orka og kraftur sem smitaði út frá sér. Var virkilega öflugur í dag.
2. Valdimar Jóhannsson
Skoraði gott mark og átti hörku skot stuttu áður sem var varið meistaralega. Átti mjög góðan leik í dag. Oumar Diocuk á líka skilið 'shout'
Atvikið
Fyrsta mark leiksins sem Þór skorar brýtur upp leikinn og Njarðvíkingar jafna strax í næstu sókn. Var búið að vera heldur lítið að gerast fram að því. Mörk breyta leikjum og það sannaðist í dag og við fengum fínasta síðata hálftíma eftir að ísinn brotnaði.
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvíkingar halda pressu á toppliði ÍR. Sitja í öðru sætinu tveimur stigum á eftir. Þór síga niður í 7.sætið eftir umferðina.
Vondur dagur
Mig langar ekki að gefa neinum þennan dálk í dag. Skila auðu.
Dómarinn - 7
Fínasta dómgæsla í dag að mínu viti. Ekkert út á teymið að setja svona á heldina litið. Ekki fullkomið en allt ekki slæmt heldur.



