SKÝRSLAN: Þróttarar sækja stigin þrjú á Selfossi
Hvað réði úrslitum?
Þróttarar betri í dag og áttu sigurinn skilið. Selfoss reyndi að liggja til baka og beita skyndisóknum en það fór ekki alveg eins og þeir vildu. Selfoss þarf að fara að nýta færin sín ef þeir ætla að eiga einhvern séns að halda sér uppi
Bestu leikmenn
1. Aron Snær Ingason (Þróttur)
Það var engin frammistaða sem að stóð upp úr en hann náði að gera lífið leitt fyrir Selfyssinga í dag og pressaði vel á meðan að hann var á vellinum
2. Liam Daði Jeffs (Þróttur)
Liam og Aron náðu báðir að berjast og pressa varnarlínu Selfoss vel í dag. Hefði Baldur ekki fengið rautt og Liam spilað allan leikinn hefði Liam mögulega skoraði eitt mark en honum var fórnað til að koma auka varnarmanni í staðinn fyrir Baldur
Atvikið
Rauða spjaldið hjá Baldri var atvik dagsins. Kemur sér í bann fyrir næsta leik fyrir klaufaskap og heimsku
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur fer upp í þriðja sætið með fjórtán stig en Selfyssingar haldast í fallsæti með sex stig, þremur meira en Fjölnir sem eru neðstir
Vondur dagur
Hornspyrnur Selfoss í dag voru ekki góðar. Alltof margar spyrnur sem að fóru ekki yfir fyrsta mann eða enduðu beint hjá Þórhalli. Margir góðir skallamenn hjá Selfossi sem að fá ekki tækifæri að koma höfðinu á boltann
Dómarinn - 6
Maður fékk það á tilfinninguna að hann var ekki alveg viss í hvert sinn sem að hann dæmdi á eitthvað og línan var ekki alveg sú besta en var samt ágætur í dag


