Fotbolti.net
@fotboltinetEinar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
PCC völlurinn Húsavík
Sól og blíða
Völsungur
Völsungur
1 - 1
Keflavík
Keflavík
Jakob Héðinn Róbertsson 40'1 - 01 - 167' Stefan Alexander Ljubicic (víti)
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Stórskemmtilegt jafntefli á Húsavík

Hvað réði úrslitum?

Báðum liðum gekk illa að klára sín færi sem að er ástæða þess að ekki voru skoruð fleiri mörk en nóg var um færin. Báðum liðum finnst eflaust að þau hafi átt sigur skilinn sem er rétt metið hjá báðum.

Bestu leikmenn

1. Rafnar Máni Gunnarsson

Var frábær í dag og ógnaði stöðugt í framlínu Völsungs.

2. Kári Sigfússon

Var að sama skapi frábær í sóknarlínu Keflavíkur. Ótrúlega skemmtilegur leikmaður!

Atvikið

Rauða spjaldið á Marin Brigic. Hefði verið miklu betra fyrir Völsung ef að Jakob hefði sloppið í gegn og mögulega skorað því leikurinn gjörbreyttist við þetta rauða spjald. Keflvíkingar urðu nánast betri við að verða manni færri.

Hvað þýða úrslitin?

Völsungur fara uppí 10 stig og eru í 8. sæti deildarinnar. Keflavík fara uppí 11 stig og eru í 5. sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Stefán Ljubicic. Þó að pabbi hans hafi þjálfað Völsung hér áður fyrr og að hann hafi skorað úr víti þá bara fékk hann alltof mikið af góðum færum sem hann nýtti ekki. Hann á að gera betur.

Dómarinn - 8

Allar stóru ákvarðanir réttar og fín stjórn á leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.