Fotbolti.net
Besta deildin
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Sturlaðar. Þær gerast varla betri.
Stjarnan
Stjarnan
3 - 2
Valur
Valur
Jóhann Árni Gunnarsson 17'1 - 01 - 126' Patrick PedersenEmil Atlason 62'2 - 1Guðmundur Baldvin Nökkvason 68'3 - 13 - 277' Patrick Pedersen
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson

SKÝRSLAN: Alvöru Laugardagskvöld í Garðabænum

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan byrjaði þennan leik af rosalegum krafti eins og hefur einkennt liðið það sem af er leiktíð. Náðu inn verðskulduðu marki en svo tók Valur yfir leikinn og náðu inn jöfnunarmarki. Stjarnan byrjaði síðari hálfleikinn og komst liðið í 3-1. Valur reyndi að koma til baka og náðu að minnka muninn en lengra komust Valsmenn ekki og Stjarnan landaði sigri.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)

Guðmundur Baldvin var gjörsamlega frábær í dag. Var mjög áberandi í sóknarleik heimamanna í kvöld. Guðmundur skoraði og laggði upp í kvöld.

2. Patrick Pedersen (Valur)

Patrick lék sinn 200 leik fyrir Val í efstu deild í kvöld og skoraði tvö og rosalega erfitt að setja hann ekki í þennan glugga þrátt fyrir tap. Jóhann Árni Stjörnumegin var einnig mjög góður með mark og stóðsendingu.

Atvikið

Rauða spjaldið á Bjarna Mark - Bjarni fékk beint rautt spjald eftir að hafa togað Örvar Eggertsson niður í stöðunni 3-2 fyrir Stjörnunni.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan lyfti sér upp í fjórða sæti deildarinnar og er liðið aðeins stigi á eftir Val sem situr í því þriðja. Stjarnan er með 17 stig og Valur með 18.

Vondur dagur

Bjarni Mark - Fékk beint rautt og var sendur í sturtu og hjálpaði það ekki gestunum að koma til baka.

Dómarinn - 8

ÞÞÞ og hans menn voru mjög góðir í dag. Rauða spjaldið hárrétt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.