Fotbolti.net
Besta deildin
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Sturlaðar. Þær gerast varla betri.
Stjarnan
Stjarnan
3 - 2
Valur
Valur
Jóhann Árni Gunnarsson 17'1 - 01 - 126' Patrick PedersenEmil Atlason 62'2 - 1Guðmundur Baldvin Nökkvason 68'3 - 13 - 277' Patrick Pedersen78' Bjarni Mark Antonsson
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Leik lokið!
Þetta er búið
ÞÞÞ flautar til leiksloka. Stjarnan vinnur hér Val 3-2 í frábærum knattspyrnuleik.

Eigið gott kvöld og takk fyrir mig.
Stjarnan
95. mín
Gult spjald

Adolf Daði Birgisson

Adolf Daði og Kiddi Freyr lenda eitthvað saman og fá báðir spjald.
Valur
95. mín
Gult spjald

Kristinn Freyr Sigurðsson

93. mín
Albin fær boltann eftir fyrirgjöf frá vinstri og nær skoti að marki en boltinn framhjá.
Stjarnan
92. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtEmil Atlason
90. mín
Fimm mínútur í uppbótartíma á Samsungvellinum
Valur
89. mín
InnTómas Bent Magnússon
ÚtJónatan Ingi Jónsson
88. mín
Adolf Daði gerir skemmtilega úti hægra megin og á fyrirgjöf inn á teiginn og Emil Atla ekki nálægt því að ná tökum á boltanum.

Horn Stjarnan.
Stjarnan
87. mín
InnAdolf Daði Birgisson
ÚtÖrvar Eggertsson
85. mín
Guðmundur Baldvin!
Fær boltann við vítateig Vals en skotið hans fer yfir.
81. mín
Bjarni Mark er ekki Team Samsung
Bjarni Mark líkar ílla við Samsung, hann var að fara í sturtu og var einnig rekinn útaf hér á sama velli á síðasta tímabili.
Stjarnan
81. mín
Gult spjald

Þorri Mar Þórisson

Stjarnan
79. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
Valur
78. mín
Bjarni Mark er sendur í sturtu!

Bjarni Mark Antonsson

Örvar Eggertsson fær boltann í gegn og Bjarni tekur hann niður.

Bjarni Mark er aftasti maður og það er samkvæmt bókinni beint rautt
Valur
77. mín
VIÐ FÁUM LEIK

Patrick Pedersen

Valur lyftir boltanum inn á teiginn. Orri Sigurður nær að skalla boltann í átt að marki. Patrick mætir á ferðinni og tæklar boltann í netið.
75. mín
Valur fær hornspyrnu
73. mín
Orri Sigurður fær boltann hátt uppi á vellinum og leggur boltann inn á teig en Adam Ægir með skot framhjá.
71. mín
Guðmundur Baldvin verið frábær í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur
70. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtTryggvi Hrafn Haraldsson
Valur
70. mín
InnAlbin Skoglund
ÚtOrri Hrafn Kjartansson
Valur
70. mín
InnSigurður Egill Lárusson
ÚtLúkas Logi Heimisson
Stjarnan
68. mín
STJARNAN LEIÐIR MEÐ TVEIMUR MÖRKUM!!!

Guðmundur Baldvin Nökkvason (stoðsending: Þorri Mar Þórisson)

Jóhann Árni fær boltann fyrir utan teig Vals. Þorri Mar tekur straujið upp hægri vænginn, fær boltann og á fyrirgjöf inn á hættusvæðið og þar mætir Guðmundur Baldvin og potar boltanum í netið.

3-1.
67. mín
Hvernig svara Valsmenn?
Stjörnumenn komust yfir í fyrri hálfleik og Valsmönnum tókst að jafna og eru lentir undir aftur og það verða athyglisverðar síðustu 20 mínútur hér í Garðabæ.
Stjarnan
62. mín
STJARNAN ER KOMIÐ YFIR AFTUR!

Emil Atlason (stoðsending: Jóhann Árni Gunnarsson)

Stjörnumenn vinna boltann á vallarhelmingi Vals. Jóhann Árni leggur boltann á Emil Atla sem snýr tekur hann örlítið með sér áður en á skot sem endar í netinu.

2-1.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
61. mín
KIDDI FREYR
Jónatan Ingi gerir vel úti hægramegin og finnur Kidda Frey sem á skot réttframhjá.
59. mín
Stuðningsmenn Stjörnunnar vilja víti
Warén með fyrirgjöf frá hægri inn á teiginn verður ekkert úr. Örvar Eggertsson fellur inn á teignum eftir samskipti sín við Bjarna Mark en ekkert dæmt.
58. mín
Stjarnan fær hornspyrnu
Stjarnan fengið rosalegan fjölda af hornspyrnum í kvöld.
56. mín
Örvar Eggertsson fær boltann út til hægri og á fyrirgjöf sem Orri Sigurður setur afturfyrir endamörk og Stjarnan fær hornspyrnu.

Ekkert verður úr henni.
52. mín
Frábært spil hjá Stjörnunni
Örvar Eggertsson fær boltann og á skot sem fer af Guðmundi Baldvini og aftufyrir.
50. mín
Stjarnan byrjar betur líkt og í fyrri hálfleik og eru líkegri en Valsmenn þessa stundina.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað.
Stjarnan
45. mín
InnÞorri Mar Þórisson
ÚtKjartan Már Kjartansson
45. mín
Það er kominn hálfleikur
Þórður Þorsteinn flautar til hálfleiks. Skemmtilegum fyrri hálfleik lokið.

Tökum okkur korter.
45. mín
Tvær mínútur í uppbót
Valur
43. mín
Gult spjald

Markus Lund Nakkim

Alltof seinn í Guðmund Baldvin.
39. mín
Valur fær hornspyrnu
Tryggvi Hrafn fer inn á völlinn og á sendingu yfir á Jónatan sem vinnur hornspyrnu fyrir Val.

Ekkert kemur upp úr hornspyrnunni.
37. mín
Eins og borðtennisleikur síðustu mínútur
Liðin skiptast á að sækja og það er ekkert sem kemur í veg fyrir að við fáum að sjá fleiri mörk hér í kvöld.
35. mín
Kjartan Már fær boltann vinstra megin eftir langt innkast frá hægri og á skot sem fer yfir markið.
Stjarnan
33. mín
Gult spjald

Emil Atlason

Sparkar aftan í Jónatan Inga sem var á leið upp völlin.
30. mín
Frábærar fyrstu 30 mínútur
Það hefur verið gríðarlega mikið líf í þessu og ég fagna því!
Valur
26. mín
VALUR JAFNAR OG HVER ANNAR Í SÍNUM 200 LEIK!!!

Patrick Pedersen (stoðsending: Orri Hrafn Kjartansson)

Orri Sigurður fær boltann úti til hægri og leggur boltann á Orra Hrafn sem fær boltann inn á vítateig Stjörnunnar. Orri fær allan tíman í heiminum til að finna sendinguna á Patrick sem á skot sem fer í Samúel Kára og í netið.

1-1 !

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


WHAT A PLAYER!
Stjarnan
17. mín
Þetta er bara verðskuldað!!

Jóhann Árni Gunnarsson (stoðsending: Guðmundur Baldvin Nökkvason)

Jónatan Ingi fær boltann á vallarhelmingi Stjörnunnar. Örvar Logi og Stjörnumenn pressa Valsmenn gríðarlega hátt, vinna boltann. Örvar Logi færir boltann á Guðmund Baldvin sem framlengir boltanum á Jóhann Árna sem hamrar boltann í nær frá D-boganum.

1-0 STAR!!


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
16. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu á hættulegum stað
Gummi Kri sem spilar í hægri bakverðinum hjá Stjörnunni í kvöld fær boltann upp hægra megin og brotið er á honum.

Warén tekur spyrnuna og Samúel Kári fær boltann inn á teignum en á máttlaust skot sem fer yfir.
12. mín
Stjarnan fær hornspyrnu
10. mín
Meðbyr með heimamönnum
Stjörnumenn hafa byrjað þennan leik töluvert betur og hafa fengið tvö dauðafæri í byrjun leiks.

Það liggur Stjörnumark í loftinu.
8. mín
HVAÐ GERÐIST ÞAARNA!?!?!
Frederik tekur útspark og setur boltann upp á Kidda Frey sem gefur boltann beint á Örvar Eggertsson sem er allt í einu aleinn gegn Frederik en Schram lokar.
7. mín
Stjarnan fær hornspyrnu
Guðmundur Baldvin fær boltann inn á teignum en á skot sem fer framhja.
6. mín
Orri Hrafn fær boltann og framlengir boltanum áfram á Lúkas Loga sem reynir að vinna Patrick inn á teignum en Stjörnumenn koma boltanum í burtu.
2. mín
Frederik Schram þarf að hafa fyrir þessu
Jóhann Árni fær boltann og leggur hann til hliðar á Örvar sem á skot frá vítateigshorninu hægra megin og Schram ver í hornspyrnu sem ekkert verður úr.
1. mín
Þetta er farið af stað
ÞÞÞ flautar til leiks og vonandi er veisla framundan.

Góða skemmtun.
Fyrir leik
Liðin ganga til leiks
Þórður Þorsteinn leiðir liðin til til leiks og búið er að kynna liðin og bjóða vallargesti velkomna á Samsungvöllin. Mætingin er vonbrigði en það er líklega vegna útskrifta.

Það fer allt að verða til reiðu í Garðabæ.
Fyrir leik
Tveir fæddir 2009 á bekknum
Tveir strákar á sextánda aldursári, Alexander Máni Guðjónsson og Aron Freyr Heimisson, eru á bekknum hjá Stjörnunni. Eins og fjallað var um í dag er Alexander Máni á leið til Midtjylland í sumar.
Fyrir leik
Gott veður.og sólin skín á höfuðborgarsvæðinu. Laugardagskvöld og fullur völlur á Samsung vellinum.3,5 á Epic á Stjörnusigur er vel boðið, fagfjárfestar í Garðabæ segja að þetta sé jafnvel betur boðið en útboðið hjá Íslandsbanka.
Fyrir leik
Byrjunarlið
Það eru þrjár breytingar á liði Stjörnunnar sem gerði jafntefli gegn KA á Akureyri í síðustu umferð. Guðmundur Kristjánsson, Örvar Eggertsson og Guðmundur Baldvin Nökkvason koma inn í liðið.

Þorri Mar Þórisson og Haukur Örn Brink setjast á bekkinn en Alex Þór Hauksson er í banni eftir að hafa verið rekinn af velli gegn KA.

Það er ein breyting á liði Vals eftir 2-1 sigur á Fram. Orri Hrafn Kjartansson kemur inn fyrir Aron Jóhannsson sem er ekki í hópnum. Tómas Bent Magnússon kemur inn á bekkinn eftir að hafa verið fjarverandi vegna meiðsla.
Fyrir leik
Peder­sen í tvö hundruð leikja klúbbinn
Eins og kom fram á Vísi.is í dag þá er sóknarmaðurinn Patrick Pedersen að fara leika leik númer 200 fyrir Val í efstu deild og er það risa áfangi.

„Þetta skiptir mig miklu máli, er stór áfangi að ná. Eitt­hvað sem ég er mjög stoltur af. Ég bjóst klár­lega ekki við því að spila tvö hundruð leiki hér. En hérna erum við þó. Tvö hundruð leikjum síðar.“ sagði Pedersen við Vísi.is.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Hinrik spáir markaleik!
Hinrik Harðarson, sóknarmaður Odd í Noregi er spámaður Fótbolta.net fyrir komandi umferð sem hefst í kvöld. Þetta hafði hann að segja um leik kvöldsins.

Stjarnan 2 - 3 Valur (19:15 í kvöld)
Það er ekki nóg fyrir Stjörnuna að fá Gumma Baldvin og Kjartan Má aftur frá ævintýrunum í Kaíró. Það er eitthvað í loftinu í Vals klefanum eftir að Arnór Smára fékk lyklakippuna að Hlíðarenda. Það er ekki nóg að hafa lyklana heldur hefur hann opnað hurðirnar sem þurfti að opna og læsa í vetur.

Mynd: Odd

Fyrir leik
Alex Þór tekur út leikbann í kvöld
Alex Þór Hauksson leikmaður Stjörnunnar verður ekki með í kvöld en hann tekur út leikbann eftir að hafa fengið beint rautt spjald á Akureyri í síðustu umferð í jafnteflinu gegn KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Tufa talar um öðruvísi nálgun hjá Stjörnunni
Steinke ræddi einnig við Tufa þjálfara Vals en liðið hefur verið að sýna stöðuleika í síðustu leikjum og er liðið tveimur stigum frá toppnum.

„Ég er meðvitaður um að þetta verður hörku leikur. Þetta er flott lið, á góðum aldri, og með mikinn kraft; ferskleiki og hraði í liðinu. Þeir spila yfirleitt betur heima og það bíður okkur hörku leikur."

„Mér finnst þeir spila aðeins öðruvísi í ár en í fyrra, þá fannst mér þeir mikið byggja á því að halda í boltann. Núna, inn á milli, finnst mér þeir vera beinskeyttari; langir boltar fram á Emil (Atlason), Örvar (Eggertsson) og Benó (Benedikt Warén). Það er aðeins öðruvísi, hvernig ég upplifi það að minnsta kosti, nálgun á hlutina. Við höfum stúderað þá vel og höfðum góðan tíma til að fara yfir hvað við þurfum að stoppa og hvaða veikleika þeir hafa sýnt hingað til - og hvernig við viljum reyna nota þá. Við erum klárir í slaginn."

Tufa talar um að liðið sé á fínum stað.

„Heilt yfir held ég að við séum á fínum stað, tíu leikir búnir í deildinni og tveir í bikar. Það er alltaf hægt og við tölum alltaf hreint út við leikmenn, það voru hlutir sem við gátum gert betur, en heilt yfir þá held ég að við séum á fínum stað. Við erum áfram í bikar og erum við toppinn. Við verðum bara að halda áfram."


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Jökull er peppaður fyrir kvöldinu!
Steinke ræddi við Jökul Elísarbetarson þjálfara Stjörnnunar í aðdragenda leiksins í kvöld.

„Valsliðið er gott og vel þjálfað líka, Túfa hefur gert vel. Þeir eru mjög agaðir, vel skipulagðir og sterkir varnarlega. Þeir fá ekki mikið af færum á sig þegar þeir eru komnir í varnarformið sitt, eru mjög fastir á sínum varnar-prinsippum í sínum varnarleik. Þeir eru svo með afburðasóknarlínu; allir mjög fljótir og miklir markaskorarar. Við erum búnir að fara vel yfir þá og sjáum tækifæri á móti þeim, fullt af tækifærum, sem við vonandi náum að nýta á morgun."

Jökull segir að Guðmundur Kristjánsson sé orðinn klár í slaginn eftir að hafa misst af leiknum gegn KA. „Gummi er klár, Örvar (Eggertsson) var ekki heldur með fyrir norðan, hann er klár. Daníel Finns fékk högg, hefur verið aðeins frá og er aðeins lengur að ná sér af því en við héldum."

„Andri Adolphsson er farinn að æfa á fullu eftir höfuðhöggið inni í Akraneshöllinni. Það er frábært. Staðan er bara mjög góð."


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Staðan?
Stjarnan situr fyrir leik kvöldsins í fimmta sæti deildarinnar með 14.stig. Stjarnan fór norður á Akureyri í síðustu umferð og gerði liðið 1-1 jafntefli við KA þar sem Benedikt V. Warén skorði mark Stjörnunnar.

Valur situr í öðru sæti deildarinnar með 18.stig, tveimur stigum á eftir toppliði Víkings R. Valur vann Fram á Hlíðrenda 2-1 í síðustu umferð. Patrick Pedersen og Tryggvi Hrafn Haraldsson gerðu mörk Vals í þeim leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Dómarar
Þórður Þorsteinn Þórðarson verður á flautunni í kvöld og honum til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson.

Varadómari í kvöld er Jóhann Ingi Jónsson og eftirlitsmaður KSÍ er Hjalti Þór Halldórsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Saturday night á Samsungvellinum
Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur í Garðabæinn þar sem Stjarnan og Valur mætast í Bestu deild karla.

Landsleikjahléið er á enda og við keyrum Bestu af stað aftur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Frá leik liðanna á síðasta tímabili.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.