Mjólkurbikar karla
Afturelding

LL
0
1
1

Lengjudeild karla
Þróttur R.

LL
1
4
4

Mjólkurbikar karla
ÍBV

LL
0
1
1

Lengjudeild kvenna
Haukar

LL
2
3
3


Haukar
2
3
KR

0-1
Kara Guðmundsdóttir
'20
Rakel Lilja Hjaltadóttir
'41
1-1
1-2
Katla Guðmundsdóttir
'46
1-3
Kara Guðmundsdóttir
'55
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir
'70
2-3
19.06.2025 - 19:15
BIRTU völlurinn
Lengjudeild kvenna
Dómari: Ingibjartur Jónsson
BIRTU völlurinn
Lengjudeild kvenna
Dómari: Ingibjartur Jónsson
Byrjunarlið:
1. Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir (m)
4. Anna Rut Ingadóttir
6. Kristín Magdalena Barboza
('73)

7. Rakel Lilja Hjaltadóttir
('58)


8. Rut Sigurðardóttir
('88)

10. Berglind Þrastardóttir
11. Halla Þórdís Svansdóttir
19. Selma Sól Sigurjónsdóttir
21. Hekla Björk Sigþórsdóttir
23. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir

25. Ásdís Halla Jakobsdóttir
('88)
- Meðalaldur 19 ár

Varamenn:
12. Aníta Ösp Björnsdóttir (m)
6. Emilíana Guðrún Antonsdóttir
15. Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir
('73)

18. Kristín Erla Halldórsdóttir
('88)


20. Ragnheiður Tinna Hjaltalín
('88)

22. Elma Dís Ólafsdóttir
30. Glódís María Gunnarsdóttir
('58)
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Hörður Bjarnar Hallmarsson (Þ)
Kristín Fjóla Sigþórsdóttir
Emil Mæng Vestergaard
Helgi Valur Pálsson
Ísold Hallfríðar Þórisdóttir
Þorsteinn Magnússon
Rakel Róbertsdóttir
Gul spjöld:
Kristín Erla Halldórsdóttir ('93)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta er búið! KR-ingar vinna hér 3-2 sigur eftir fjörugan leik!
Viðtöl koma inn seinna í kvöld. Takk fyrir samfylgdina!
Viðtöl koma inn seinna í kvöld. Takk fyrir samfylgdina!
92. mín
KR næstum búnar að klára þetta! Katla í dauðafæri ein á móti markmannien vel varið hjá Viktoríu.
91. mín
Haukar að vinna aukaspyrnu á hættulegum stað. Fáum við drama?!
Flott vörn hjá KR og gestirnir hreinsa.
Flott vörn hjá KR og gestirnir hreinsa.
88. mín

Inn:Kristín Erla Halldórsdóttir (Haukar)
Út:Rut Sigurðardóttir (Haukar)
Tvöföld skipting hjá Haukum.
86. mín
Haukar að fá aukaspyrnu á vænlegum stað. Kjörið tækifæri til að koma boltanum inn á teiginn.
Kemur hættulegur bolti fyrir en sóknin rennur út í sandinn. Markspyrna frá marki KR.
Kemur hættulegur bolti fyrir en sóknin rennur út í sandinn. Markspyrna frá marki KR.
83. mín
Sjö mínútur eftir af hefðbundnum leiktíma og Haukar í leit af jöfnunarmarki. Mikil spenna í þessu!
77. mín
Maya liggur eftir og þarfnast aðhlynningar. Virðist kvalin, vonandi ekkert alvarlegt.
76. mín
Frábær fótboltaleikur og mikið fjör! Þetta mark Elínar búið að hleypa lífi í þennan leik
74. mín

Inn:Þórey Björk Eyþórsdóttir (KR)
Út:Anna Björk Kristjánsdóttir (KR)
Anna fer meidd útaf.
73. mín

Inn:Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir (Haukar)
Út:Kristín Magdalena Barboza (Haukar)
70. mín
MARK!

Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir (Haukar)
Geggjað mark!
Haukar að minnka munin!
Elín á harðaspretti upp hægri kanntinn. Hún gerir stórvel og prjónar sig framhjá varnarmönnum KR. Kemur sér í skotfæri og klárar með glæsivel í hornið! KR-ingar verið með nærri öll völd á vellinum í þessum seinni hálfleik en Haukar rækilega búnar að koma sér inn í þenann leik!
3-2!
Elín á harðaspretti upp hægri kanntinn. Hún gerir stórvel og prjónar sig framhjá varnarmönnum KR. Kemur sér í skotfæri og klárar með glæsivel í hornið! KR-ingar verið með nærri öll völd á vellinum í þessum seinni hálfleik en Haukar rækilega búnar að koma sér inn í þenann leik!
3-2!
68. mín
Framhjá
Ásdís á flotta sendingu upp völlinn á Höllu sem er á hörkuspretti! Halla kemur sér í skotfæri en setur boltann framhjá fjærstönginni.
63. mín
Berglind vinnur boltann inni á sínum vallarhelming og á flottann sprett upp völlinn. Prjónar sig framhjá varnarmönnum KR en fær litla hjálp. Haukar uppskera hornspyrnu.
Ekkert verður úr horninu.
Ekkert verður úr horninu.
62. mín

Inn:Anna María Bergþórsdóttir (KR)
Út:Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir (KR)
Ólöf getur ekki haldið leik áfram.
61. mín
Ólöf Freyja er löggst í grasið og þarfnast aðhlynningar. Vonandi ekkert alvarlegt.
60. mín
Rétt framhjá!
Enn sækja gestirnir. Katla Guðmunds á skot sem sleikir stöngina og fer rétt framhjá.
58. mín

Inn:Glódís María Gunnarsdóttir (Haukar)
Út:Rakel Lilja Hjaltadóttir (Haukar)
Fyrsta skipting leiksins er Haukamegin. Sjáum hvort Heimakonur geti rifið þennann seinni hálfleik sinn í gang.
57. mín
KR verið dómínerandi í þessum seinni hálfleik og halda áfram að ógna. Lina með góðan bolta inn á teig Hauka. Skallinn framhjá.
55. mín
MARK!

Kara Guðmundsdóttir (KR)
KR-ingar komnar í 3-1!
Gestirnir verið miklu sterkari í þessum seinni hálfleik. Haukar tapa boltanum í uppspili og berst á Köru. Hún á skot í átt að marki, á viðkomu í varnarmanni og í netið! KR komnar í 3-1!
52. mín
Hætta
Haukar komast í vænlega stöðu og eru 3 á móti 3. Berglind rekur boltann upp völlinn og ákveður að skjóta. Skotið fast en Helena ver.
50. mín
Darraðadans inni á teig heimakvenna. Rakel með boltann og á skot sem fer af varnarmanni til Viktoríu í marki Hauka.
47. mín
Rut vinnur boltann á miðjum velli og ætlar að gefa hann inn fyrir varnarlínu KR-inga en sendingin ekki nægilega góð. Boltinn endar í höndum Helenu.
46. mín
MARK!

Katla Guðmundsdóttir (KR)
Ekki lengi gert!
Seinni hálfleikurinn nýhafinn og KR-ingar strax komnar yfir. Heimakonur ekki mættar til leiks og Katla kemur KR-ingum yfir á ný!
45. mín
Hálfleikur
Skemmtilegur hálfleikur að baki!
Fjörugur leikur hér í Hafnafirðinum. KR-ingar sterkari framan af en leikurinn jafnast út og staðan 1-1 er liðin ganga til búningsherbergja. Verið stuð í stúkunni sem er alltaf gaman að sjá! Fáum vonandi jafn fjörugan seinni hálfleik.
Tökum okkur korterspásu og komum svo með seinni hálfleikinn.
Tökum okkur korterspásu og komum svo með seinni hálfleikinn.
44. mín
Góður sprettur hjá Elínu sem gefur boltann inn á teig KR-inga en sóknin rennur út í sandinn.
41. mín
MARK!

Rakel Lilja Hjaltadóttir (Haukar)
Stoðsending: Rut Sigurðardóttir
Stoðsending: Rut Sigurðardóttir
ALLT ORÐIÐ JAFNT!
Sturlaður bolti inn fyrir vörn KR-inga frá Rut. Rakel gerir vel og skallar boltann framhjá Helenu í markinu! Smá rangstæðulykt af þessu en flaggið helst niðri og staðan 1-1!
39. mín
Hætta!
Góð skyndisókn hjá Haukum og berst boltinn á Berglindi sem tekur skot í fyrsta. Hún hittir boltann ekki vel og endar framhjá.
38. mín
Skemmtileg tilraun!
Maya gefur boltann inn á teig Hauka og Katla nær til boltanns. Katla kemur með skemmtilega tilraun og sparkar boltanum afturfyrir sig í átt að marki en Viktoría ver.
37. mín
Haukar vinna hornspyrnu sem Rut tekur. Góður bolti inn á teiginn en hann svífur yfir allan pakkann og aftur fyrir endamörk.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Halla á hálfgerða skot/fyrirgjöf og Haukar uppskera horn.
HÆTTA! Mikil hætta skapast eftir darraðadans inn á teig gestanna. Haukar fá annað horn.
HÆTTA! Mikil hætta skapast eftir darraðadans inn á teig gestanna. Haukar fá annað horn.
27. mín
Haukar verið að leita af svari við marki gestanna en KR-ingar a' gera vel og ná að stöðva sóknir þeirra í fæðingu.
20. mín
MARK!

Kara Guðmundsdóttir (KR)
MARK!!!
Klúður í uppspili hjá Haukum. Viktoría gefur boltann beint á Köru sem er sultuslök og klárar laglega fram hjá henni í markinu. KR leiðir!
16. mín
Enn skjóta KR-ingar á mark Hauka. Kara á lúmskt skot meðfram jörðinni sem Viktoría gerir vel í að verja.
13. mín
Ólöf Freyja á skot á mark rétt fyrir utan d-bogann. Boltinn beint á Viktoríu sem ver.
12. mín
Leikurinn aðeins jafnast eftir hörku byrjun KR-inga. Heimakonur að vinna sig inn í þetta.
10. mín
Skot á mark
Flottur sprettur hjá Rakel upp hægri kantinn. Hún gefur á Köru sem á skot fyrir utan teig. Boltinn tiltölulega beint á Viktoríu sem ver.
8. mín
RÉTT FRAMHJÁ!
Rakel Lilja vinnur boltann fyrir Hauka og gefur hann á Höllu. Halla ein á móti markmanni og vippar honum hátt yfir Helenu. Boltinn sleikir stöngina og fer rétt framhjá. Dauðafæri!
7. mín
Víti?
Viktoría nær ekki að spila boltanum út og gefur boltann á KR-ing. sóknamaðurinn spörkuð niður inn í teig. Fannst þetta nú mega vera víti, en dómarinn segir nei.
6. mín
Maya með bolta inn á teig Hauka en Viktoría kemur úr marki sínu og hrifsar til sín boltann.
Fyrir leik
Fínustu aðstæður!
Styttist í upphafsflautið hér í Hafnarfirðinum. Hér eru 11°C, skýjað og gola. Fáum vonandi hörkuleik hér í kvöld!
Fyrir leik
Staðan!
Svona lítur deildin út fyrir leiki kvöldsins:
ÍBV - 16 stig
Grindavík/Njarðvík - 16 stig
HK - 15 stig
Grótta - 12 stig
KR - 10 stig
Keflavík - 9 stig
Haukar - 7 stig
ÍA - 6 stig
Fylkir - 6 stig
Afturelding - 3 stig
ÍBV - 16 stig
Grindavík/Njarðvík - 16 stig
HK - 15 stig
Grótta - 12 stig
KR - 10 stig
Keflavík - 9 stig
Haukar - 7 stig
ÍA - 6 stig
Fylkir - 6 stig
Afturelding - 3 stig

Fyrir leik
Dómarateymið
Ingibjartur Jónsson er aðaldómari hér í kvöld. Honum til halds og trausts eru þeir Elías Baldvinsson og Hrannar Björn Arnarsson.

Fyrir leik
KR
KR-ingum var fyrir tímabilið spáð 8. sæti Lengjudeildarinnar en þær eru eins og er í 5. sæti með tíu stig eftir fimm umferðir. KR tapaði gegn Gróttu í síðustu umferð en leikurinn fór 4-2. Anna María er markahæst í liði KR það sem af er sumri en hún er hingað til komin með fjögur mörk á tímabilinu.

Fyrir leik
Haukar
Heimakonur kvöldsins eru eins og er í 7. sæti Lengjudeildarinnar. Haukum var fyrir tímabilið spáð 9. sætinu af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar. Haukar tóku á móti ÍA í síðustu umferð þar sem leikar enduðu 1-1 en það var Halla Þórdís Svansdóttir sem var á skotskónum fyrir Hauka.

Byrjunarlið:
29. Helena Sörensdóttir (m)
2. Rakel Grétarsdóttir
3. Anna Björk Kristjánsdóttir
('74)

7. Kara Guðmundsdóttir


8. Kristín Anna Smári
10. Katla Guðmundsdóttir

14. Maya Camille Neal
('79)

15. Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir
('62)

16. Eva María Smáradóttir (f)
19. Lina Berrah
20. Makayla Soll
- Meðalaldur 22 ár
Varamenn:
1. Matthildur Eygló Þórarinsdóttir (m)
6. Emilía Ingvadóttir
('79)

9. Anna María Bergþórsdóttir
('62)

12. Íris Grétarsdóttir
13. Koldís María Eymundsdóttir
18. Ragnheiður Ríkharðsdóttir
21. Þórey Björk Eyþórsdóttir
('74)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Einarsson (Þ)
Ívar Ingimarsson (Þ)
Jamie Paul Brassington
Bergþór Snær Jónasson
Hildur Guðný Káradóttir
Telma Ýr Unnsteinsdóttir
Gul spjöld:
Rauð spjöld: