Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 09:46
Elvar Geir Magnússon
Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford
Powerade
Alexander Isak.
Alexander Isak.
Mynd: EPA
Rashford til Newcastle?
Rashford til Newcastle?
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Joao Pedro.
Joao Pedro.
Mynd: EPA
Liverpool er tilbúið að versla meira, Newcastle hefur áhuga á að fá leikmann Manchester United og Viktor Gyökeres hótar verkfallsaðgerðum. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins.

Liverpool gefst ekki upp á að reyna að fá sænska framherjann Alexander Isak frá Newcastle og er tilbúið að slá breskt félagaskiptamet. (GiveMeSport)

Newcastle vill fá enska framherjann Marcus Rashford (27) að láni en Manchester United vill frekar selja hann til frambúðar. (Sun)

Viktor Gyökeres (27), sóknarmaður Sporting Lissabon, vill ekki ræða frekar við portúgalska félagið. Hann hótar að fara í verkfall og vill yfirgefa félagið. Arsenal og Manchester United hafa áhuga á honum. (Mirror)

Fulham hefur hafnað 26 milljóna punda tilboði, með möguleika á 6 milljónum punda í viðbót, frá nýliðum Leeds United fyrir brasilíska framherjann Rodrigo Muniz (24). (Standard)

Fulham er að íhuga að fá Ricardo Pepi (22), bandarískan framherja PSV Eindhoven. Nokkur spænsk og ítölsk félög hafa áhuga. (Fabrizio Romano)

Myles Lewis-Skelly (18), varnarmaður Arsenal og enska landsliðsins, er nálægt því að skrifa undir nýjan samning sem mun gera hann að einum best launaða unga leikmanni heims. (Athletic)

Aðstoðarþjálfarinn Carlos Cuesta er að fara frá Arsenal til að taka við fyrsta stjórastarfi sínu hjá Parma. (Guardian)

Áhugi Chelsea á Morgan Rogers (22) hefur ekki dvínað og félagið vonar að Aston Villa sé opið fyrir sölu. (Mail)

Aston Villa er tilbúið að selja argentínska miðjumanninn Emi Buendía (28) félagið fær tilboð yfir 20 milljónir punda. (Caught Offside)

Chelsea hefur haft samband við Brighton vegna brasilíska framherjans Joao Pedro (23) en Newcastle vill einnig fá hann. (Fabrizio Romano)

Chelsea hefur átt í frekari viðræðum við West Ham um miðjumanninn Mohammed Kudus (24) en er með í forgangi að fá enska vængmanninn Jamie Gittens (20) frá Borussia Dortmund. (Guardian)

Leeds er meðal félaga sem hafa áhuga á brasilíska miðjumanninum Douglas Luiz (27) en búist er við því að hann yfirgefi Juventus í sumar. (Tuttosport)

Brentford hefur sett 50 milljóna punda verðmiða á famherjann Yoane Wissa (28) sem er á blaði hjá Nottingham Forest, Tottenham, Arsenal, Fenerbahce og Galatasaray. (Teamtalk)

Evann Guessand (23), framherji Nice og Fílabeinsstrandarinnar, hefur vakið áhuga frá Leeds og Tottenham. Bæði félög hafa haft samband við umboðsmann leikmannsins. (TBR Football)

Enski markvörðurinn Nick Pope (33) vill ekki fara frá Newcastle þrátt fyrir áhuga frá Leeds. Tilraunir Newcastle til að fá enska markvörðinn James Trafford (22) frá Burnley gætu tafist. (TBR Football)
Athugasemdir
banner
banner