Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetElíza Gígja Ómarsdóttir
FH
FH
Besta-deild kvenna
Kaplakrikavöllur
1 - 2
Valur
Valur
0 - 160' Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir0 - 283' Helena Ósk HálfdánardóttirIngibjörg Magnúsdóttir 84'1 - 2
Dómari: Jens Elvar Sævarsson

SKÝRSLAN: Valsarar sóttu þrjá punkta í Kaplakrika

Hvað réði úrslitum?

Valsarar nýttu bara þau færi sem þær fengu. FHingar hefðu alveg getað skorað fleiri mörk en voru ekki nægilega klínískar fyrir framan markið.

Bestu leikmenn

1. Thelma Karen Pálmadóttir (FH)

Í leik þar sem enginn bar af var Thelma Karen líklega sú sprækasta. Fór oft á tíðum illa með varnarmenn Vals og var að koma með fína bolta inn í teiginn en liðsfélögum hennar brást bogalistin og tókst ekki að binda enda á þær sóknir með marki.

2. Arna Eiríksdóttir (FH)

Mér fannst Arna góð í dag. Margar sóknir sem stoppuðu á henni og Jordyn Rhodes komst sjaldan leiða sinna þar sem hún lenti á Örnu á leiðinni. Það er kannski ósanngjarnt að velja tvær úr tapliði en Valsarar þurfa bara að lifa með því í dag.

Atvikið

Fyrsta mark Vals var klárlega atvik leiksins. FH komu sprækar út í seinni hálfleikinn og voru búnar að vera að hóta marki en á 60. mínútu skora Valsarar en klisjan „mörk breyta leikjum“ átti vel við í dag!

Hvað þýða úrslitin?

Valsarar fara upp í 6. sæti deildarinnar með 12 stig og betri markatölu en Stjarnan sem eru líka með 12 stig. FH heldur 3. sætinu og eru með 22 stig eftir 10 leiki.

Vondur dagur

Í leik þar sem enginn leikmaður átti neitt sérstaklega slakan leik þá verð ég að setja spyrnur í föstum leikatriðum í þennan flokk í dag og þá sérstaklega hjá FH. Aukaspyrnur og Hornspyrnur voru ítrekað ekki að drífa yfir fyrsta mann og ég geri bara meiri kröfur á gæðamikla leikmenn á borð við Elísu Lönu t.d. í þessum efnum.

Dómarinn - 7

Jens Elvar dæmdi leikinn vel í dag fannst mér og hann flæddi nokkuð vel. Hefði gefið honum 8 nema hvað að skóbúnaðurinn hans gefur honum mínus stig. Ég geri bara þær kröfur á dómara sem eru að dæma í efstu deild að þeir séu í takkaskóm en ekki hlaupaskóm.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.