Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Grindavík
Grindavík
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
2 - 4
Völsungur
Völsungur
0 - 126' Jakob Héðinn Róbertsson0 - 239' Jakob Héðinn RóbertssonElvar Baldvinsson (sjm) 68'1 - 21 - 370' Gestur Aron SörenssonIngi Þór Sigurðsson 91'2 - 32 - 492' Jakob Héðinn Róbertsson
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Völsungur í umspilssæti

Hvað réði úrslitum?

Þetta byrjaði afar rólega, bæði lið fengu sín færi en Völsungur nýttu sín færi og leiddu sanngjarnt í hálfleik 2-0. Bæði lið skoruðu tvö mörk í seinni hálfleik en í bæði skiptin þegar Grindavík skoraði svöruðu Völlararnir strax með marki sem gerði út um þetta í dag.

Bestu leikmenn

1. Jakob Héðinn Róbertsson

Hefur sjaldan verið auðveldara. Skorar frábæra þrennu og tryggir stigin þrjú sem fara norður á Húsavík í dag. Frábær dagur hjá kappanum sem mun vonandi fyrir Húsvíkinga halda áfram að skora eftir þessa frammistöðu.

2. Gestur Aron Sörensson

Kannski auðvelt val þar sem hann skoraði eitt í dag en mér fannst alltaf einhver hætta skapast þegar Gestur fékk boltann. Var sífellt að ógna inn fyrir varnarlínu Grindvíkinga og hefði hæglega getað skorað fleiri í dag.

Atvikið

Seinasta mark leiksins. Jakob innsiglar þrennuna og sigur Húsvíkinga. Grindvíkingar voru nýbúnir að skora og áttu 3 mínútur eftir af uppbótartímanum þegar hann klárar þetta í lokin 4-2 með stórglæsilegri afgreiðslu.

Hvað þýða úrslitin?

Völsungur stekkur upp í 5. sætið með 13 stig og skilur Grindavík eftir í 7. sætinu með 7 stig.

Vondur dagur

Árni Salvar var í allskonar veseni í fyrsta marki gestanna í dag sem gaf þeim blóð á tennurnar. Það er alveg hægt að nefna fleiri leikmenn hjá Grindavík sem voru ekki góðir. Töpuðu oft boltanum og það voru mikið af misheppnuðum sendingum í dag hjá heimamönnum. Árni Salvar fær þetta fyrir mistökin í fyrsta markinu.

Dómarinn - 9

Það er í raun og veru ekki mikið hægt að setja út á frammistöðu Ella í dag. Ekki beint erfiðasti leikurinn en sömuleiðis ekki sá léttasti. Bara frábærlega gert hjá honum og sínu teymi í dag og fá góða einkunn frá mér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.