SKÝRSLAN: Blikar taka þrjú stig með sér í fríið langa
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik sterkara liðið í upphafi leiks, þar til að Samantha braut ísinn eftir rúmlega 20 mínútur. Þá tók Stjarnan til sín en gæðaleysi fyrir framan markið og Telma Ívarsdóttir í stuði komu í veg fyrir að Stjarnan skoraði. Þá gáfu Blikar í síðari hálfleik og uppskáru sanngjarnan 0-3 sigur rétt fyrir EM-fríið.
Bestu leikmenn
1. Samantha Rose Smith
Samantha ótrúleg í dag, ógnaði sífellt marki Stjörnunnar og skoraði frábært mark.
2. Telma Ívarsdóttir
Telma örugg í öllum sínum aðgerðum og kom í veg fyrir að Stjarnan kæmist inn í leikinn.
Atvikið
Þriðja mark Breiðabliks sem Berglind skoraði gerði alveg út um leikinn og var einnig stórkostlega gert hjá Blikaliðinu.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik jafnar Þrótt að stigum en er í toppsæti deildarinnar vegna markatölu. Þá er Stjarnan í 6. sæti deildarinnar með 12 stig.
Vondur dagur
Birna Jóhannsdóttir framherji Stjörnunnar hefur átt betri daga. Mér fannst þetta vera næstum því frammistaða þar sem hún kom sér á köflum í fínar stöður en alltaf vantaði upp á herslumuninn.
Dómarinn - 8
Kvartettinn með góð tök á leiknum, ekkert við þá að sakast.




