Fotbolti.net
Besta deildin
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þór/KA
Þór/​KA
Besta-deild kvenna
Boginn
Þurrt og hlýtt
4 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
Agnes Birta Stefánsdóttir 28'1 - 01 - 142' Dagný Rún PétursdóttirAmalía Árnadóttir 46'2 - 1Sonja Björg Sigurðardóttir 62'3 - 1Sandra María Jessen 67'4 - 1
Dómari: Jovan Subic

SKÝRSLAN: Aftur fór það 4-1

Hvað réði úrslitum?

Þór/KA var ofan á heilt yfir úti á velli en Víkingur hefði svo sannarlga getað skorað fleiri mörk og með því gert lífið erfitt fyrir Þór/KA sem hafði tapað þremur leikjum í röð. Heimakonur spiluðu mjög heilsteyptan leik, voru vel tengdar og áttu skilið að vinna. Annar 4-1 sigur Þórs/KA á Víkingi í sumar staðreynd.

Bestu leikmenn

1. Sonja Björg Sigurðardóttir

Frábær í dag, eins og Jóhann Kristinn sagði getur Sonja Björg náð langt, hún er fædd 2006 og skoraði í dag sitt annað mark á tímabilinu. Hún er hávaxin og sterk, og kann að nota bæði, ofan á það er hún með mjög góða stjórn á boltanum og það er bara undir henni komið hvað hún fer langt. Mjög spennandi leikmaður.

2. Agnes Birta Stefánsdóttir

Margar sem gera tilkall, svo sem Amalía og Sandra María, en mér fannst Agnes Birta heilt yfir mjög góð og hafði mikil áhrif. Byrjaði í smá brekku varnarlega en vann sig úr henni hinu megin á vellinum þar sem hún skoraði tvö mörk, annað markið fékk ekki að standa og fékk ofan á það annað dauðafæri sem hún hefði getað nýtt. Mjög flottur leikur hjá miðverðinum.

Atvikið

Þriðja mark leiksins, strax á 30. sekúndu seinni hálfleiks. Má svo sannarlega tala um það sem þetta mikilvæga þriðja mark.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA er í fjórða sæti, fjórum stigum frá FH í 3. sætinu. Víkingu er í 9. sæti, þremur stigum frá öruggu sæti þegar deildin fer í rúmlega mánaðar pásu vegna EM. Átta umferðir eru eftir af deildinni.

Vondur dagur

Mér fannst varnarlína Víkings í miklum vandræðum í þessum leik, ef það var ekki Sonja Björg að búa til vesen þá voru það samherjar hennar í sókninni. SIgurborg í markinu átti vörslur en hún átti í miklum erfiðleikum með fyrirgjafir og aftasti þríhyrningurinn; Sigurborg, Gígja Valgerður og Áslaug Dóra fær þetta saman.

Dómarinn - 7

Mjög fínt, fimm gul spjöld, kannski pínu ódýr spjöld sum hver en ekkert alveg galið. Heilt yfir gott.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.