Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
KA
0
0
Víkingur R.
22.06.2025  -  19:15
Greifavöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Dómarinn Það er Gunnar Oddur Hafliðason sem að dæmir leik dagsins. Honum til aðstoðar eru Guðmundur Ingi Bjarnason og Antoníus Bjarki Halldórsson. Valdimar Pálsson er eftirlitsmaður og varadómari er Elías Ingi Árnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Oddur mundar flautuna.
Fyrir leik
Evrópudrátturinn áhugaverður Bikarmeistarar KA sitja hjá í 1. umferð Sambandsdeildar Evrópu, en þeirra bíður athyglisvert verkefni í 2. umferðinni - danska liðið Silkeborg IF. Liðið endaði í 7. sæti Superliga, en vann umspilsleik við Randers um Evrópusæti og komst því í Sambandsdeildina.

Víkingar mæta til leiks í 1. umferð Sambandsdeildarinnar og etja þar kappi við FC Malisheva frá Kósovó. Liðið hafnaði í 3. sæti í efstu deildinni í Kósovó. Ef Víkingar komast áfram þá bíða þeirra annaðhvort Vllaznia frá Albaníu eða Daugavpils frá Lettlandi.

Mynd: EPA

Víkingar voru grátlega nálægt því að slá út gríska stórliðið Panathinaikos í Sambandsdeildinni á síðasta tímabili.
Fyrir leik
Stígur Diljan frá í átta vikur Víkingar urðu fyrir blóðtöku þegar ljóst var að vængmaðurinn öflugi Stígur Diljan Þórðarson væri rifbeinsbrotinn og yrði frá keppni í allt að 8 vikur.

Stígur hefur tekið þátt í öllum deildarleikjum Víkings til þessa og skorað í þeim eitt mark.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stígur mun missa af allavega sjö deildarleikjum og forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.
Fyrir leik
Gulur og blár þá - rauður og svartur í dag Það var Sveinn Margeir Hauksson, núverandi leikmaður Víkings R., sem að skoraði sigurmark KA þegar að liðin mættust á þessum velli í fyrra. Hann fór að honum loknum í nám til Bandaríkjanna og söðlaði svo um ásamt KA manninum Daníel Hafsteinssyni og skipti yfir í Fossvoginn.

,,Þetta var gaman! Leiðinlegt að vera að fara, en geggjað að enda þetta á þessum nótum,'' sagði Sveinn Margeir eftir leikinn.

Hann er þó fjarri góði gamni í dag, þar sem að hann er að glíma við leiðinleg hnémeiðsli.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sveinn Margeir skoraði sigurmark KA í leik liðanna á Greifavellinum í fyrra.
Fyrir leik
Andað ofan í hálsmál hvert sem litið er Hvort sem að horft er á KA liðið eða gestina úr Fossvoginum er óhætt að fullyrða að lítið svigrúm sé fyrir töpuð stig. KA mönnum bráðvantar stig í blóðugri botnbaráttu þar sem að liðið lafir stigi fyrir ofan fallsæti og á sama tíma tróna Víkingar á toppi deildarinnar - stigi fyrir ofan ríkjandi Íslandsmeistara Breiðabliks.

Það er því ljóst að lítið verður gefið eftir í leik dagsins, en rimmur þessara liða hafa oftar en ekki verið harðar og tíðindamiklar hér á Akureyri.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir leik
Góðan daginn! Hér mun fara fram textalýsing á leik KA og Víkings R. Leikurinn er liður í 12. umferð Bestu-deildar karla og fer fram á Greifavellinum - heimavelli KA.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Úr síðasta leik liðanna á Greifavellinum. Hér eigast Danijel Dejan Djuric, þáverandi leikmaður Víkings R. og núverandi leikmaður Istra 1961, og Jakob Snær Árnason, leikmaður KA.
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: