Fotbolti.net
19.06.25 - 10:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stígur Diljan frá í átta vikur

Stígur Diljan frá í átta vikur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stígur Diljan Þórðarson, leikmaður Víkings, verður frá næstu átta vikurnar þar sem hann er með brotið bein í ristinni.

Hann varð fyrir þessum meiðslum í leiknum gegn KR á mánudag, fór í myndatöku í gær og niðurstaðan sú að hann verður frá í um tvo mánuði.
Stígur, sem er 19 ára, mun því missa af forkeppni Sambandsdeildarinnar með Víkingi og líklegast allavega sjö deildarleikjum.

Hann kom inn á sem varamaður gegn KR en gat ekki klárað leikinn vegna meiðslanna. Inn í hans stað kom Ali Basem Almosawe - Almo - sem Víkingur keypti frá Danmörku undir lok gluggans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.