Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
Besta-deild karla
KR
LL 3
2
FH
Besta-deild karla
Víkingur R.
LL 2
1
Afturelding
Besta-deild karla
Fram
LL 2
0
ÍBV
Besta-deild karla
Vestri
LL 0
2
ÍA
Fram
2
0
ÍBV
Freyr Sigurðsson '18 1-0
Jakob Byström '29 2-0
29.06.2025  -  17:00
Lambhagavöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Sigurjón Rúnarsson
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
10. Fred Saraiva
12. Simon Tibbling
15. Jakob Byström ('63)
16. Israel Garcia
19. Kennie Chopart (f)
23. Már Ægisson
25. Freyr Sigurðsson ('71)
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('87)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Bjarki Arnaldarson (m)
4. Arnar Daníel Aðalsteinsson
6. Tryggvi Snær Geirsson ('71)
11. Magnús Þórðarson ('63)
17. Adam Örn Arnarson
18. Anton Ari Bjarkason
21. Óliver Elís Hlynsson ('87)
32. Hlynur Örn Andrason
33. Kajus Pauzuolis
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Gareth Thomas Owen
Friðgeir Bergsteinsson
Kirian Elvira Acosta

Gul spjöld:
Sigurjón Rúnarsson ('82)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Framarar sigra ÍBV Sanngjarn sigur Framara staðreynd.

Þakka samfylgdina í dag og minni á viðtöl og skýrslu sem koma inn á næstunni. Þangað til næst, takk fyrir mig.
94. mín
Spyrnan tekin stutt en Eyjamenn ná að hreinsa að lokum.
93. mín
Fram að fá hornspyrnu
90. mín
Inn:Þorri Heiðar Bergmann (ÍBV) Út:Hermann Þór Ragnarsson (ÍBV)
89. mín
613 áhorfendur á Lambhagavellinum
88. mín
Fram í færi! Langur bolti upp völlinn á Magnús Inga sem er kominn einn í gegn. Jovan Mitrovic gerir vel í að elta hann og nær góðri tæklingu þar sem hann tæklar boltann í Magnús. Marcel kemur úr markinu og er á undan Magnúsi í boltann.

Framarar eru ósáttir og vilja meina að Marcel hafi handsamað boltann fyrir utan vítateiginn.
87. mín
Inn:Óliver Elís Hlynsson (Fram) Út:Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
84. mín
ÞVÍLÍK ATBURÐARÁS! Felix tekur aukaspyrnu inn á teiginn sem fer á fjærsvæðið. Þar er Milan Tomic mættur og skallar boltann á markið en þar er Kennie Chopart mættur og nær einhvernveginn að bjarga á línu með því að skalla boltann burt. Eyjamenn ráðast á boltann og það myndast mikill barningur á teignum.

Gunnar dæmir hendi á ÍBV að lokum en margir á vellinum, meðal annars blaðamannastúkan, hélt að hann væri að dæma mark. Eyjamenn eru að hóta og hóta!
82. mín Gult spjald: Sigurjón Rúnarsson (Fram)
82. mín
Fred tekur boltann inn á teiginn sem Marcel kýlir út í innkast.
81. mín
Fram að fá hornspyrnu!
77. mín
Sláin! Israel kemur með boltann inn á teiginn sem fer á Magnús, hann tekur skotið á markið sem Marcel ver í slána. Boltinn rúllar meðfram slánni og Framarar halda sóknarpressunni áfram en ná ekki inn marki.
75. mín
Birgir kemur með góðan bolta inn á teiginn á Sverri Pál sem skallar boltann rétt framhjá markinu.

Birgir Ómar er að koma með mikinn kraft inn í leik Eyjamanna.
71. mín
Inn:Tryggvi Snær Geirsson (Fram) Út:Freyr Sigurðsson (Fram)
71. mín
Inn:Nökkvi Már Nökkvason (ÍBV) Út:Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)
68. mín
Eyjamenn að vakna til lífsins hér. Eru hættulegri þessa stundina og það styttist í mark frá þeim.
63. mín
Inn:Magnús Þórðarson (Fram) Út:Jakob Byström (Fram)
63. mín
Inn:Birgir Ómar Hlynsson (ÍBV) Út:Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV)
63. mín
Inn:Víðir Þorvarðarson (ÍBV) Út:Vicente Valor (ÍBV)
61. mín
ÞVÍLÍK MARKVARSLA! Langur bolti upp völlinn beint frá Viktori í markinu sem skoppar yfir Jovan Mitrovic, virtist hafa misreiknað skoppið á boltanum.

Vuk er skyndilega kominn einn í gegn á móti Marcel sem ver stórglæsilega.
54. mín
Eyjamenn í færi Arnór Ingi kemur með boltann inn á teiginn á Sverri sem skallar boltann fyrir markið á Jovan Mitrovic. Hann tekur við honum og nær skotinu sem fer langt yfir.

Ekki alveg nógu yfirvegaður þarna og minnti mann alls ekki á nafna hans.
53. mín
Alex Freyr tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer Framarar skalla frá en sóknarpressa Eyjamanna heldur áfram.
53. mín
Eyjamenn að fá hornspyrnu!
51. mín
Seinni hálfleikurinn byrjar eins og sá fyrri, afar rólega. Lítið sem ekkert um færi og bæði lið skiptast á að halda í boltann.
46. mín
Seinni hálfleikurinn hafinn! Gestirnir úr Eyjum koma okkur í gang á ný!
46. mín
Inn:Þorlákur Breki Þ. Baxter (ÍBV) Út:Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
Ein breyting í hálfleik Bjarki sem kom aftur inn í byrjunarlið ÍBV fyrir þennan leik kemur af velli fyrir Þorlák í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Framarar leiða í hálfleik Flottur fyrri hálfleikur að baki hjá heimamönnum sem hafa byrjað leikinn betur og leiða 2-0 í hálfleik sanngjarnt.
40. mín
Eyjamenn í hættulegu færi! Bjarki Björn kemur með stórhættulega sendingu inn á fjærsvæðið þar sem Hermann Þór er mættur en hittir bara ekki boltann. Þarna fannst mér hann átt að gera betur en vissulega líka óheppinn.
39. mín
Freyr í góðu færi Framarar keyra upp í skyndisókn og Már Ægisson kemur boltanum inn á teiginn þar sem Freyr er mættur. Freyr gerir vel í að vera fyrstur í boltann og hvað þá ná skot á markið. Marcel gerir hins vegar líka vel að loka á hann og sóknin fjarar svo út.
35. mín
Alex Freyr tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer beint á Sigurð Arnar en hann skallar boltann yfir markið.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
34. mín
Eyjamenn að fá hornspyrnu! Jovan kemur boltanum upp á Sverri Pál sem keyrir í átt að markið. Hann reynir skotið úr frekar þröngu færi sem fer í varnarmann og aftur fyrir.
29. mín MARK!
Jakob Byström (Fram)
Stoðsending: Fred Saraiva
Fred hneigðu þig! Glæsileg sending hjá Fred inn á teiginn sem fer á Byström. Byström potar honum á markið, boltinn fer framhjá Marcel en Eyjamenn ná að bjarga á línu áður en boltinn fer aftur til Byström sem kemur honum að lokum í netið.

Frábærlega gert hjá Frömurum, þá sérstaklega Fred, sem höfðu lítið fyrir því að komast í 2-0.
28. mín
Eyjamenn í færi! Vicente gerir vel á boltanum og skyndilega eru Eyjamenn komnir 3 á móti tveimur. Vicente kemur boltanum á Sverri Pál sem reynir einhverja skot sendingu sem fer út í innkast.

L+aki langt frá því að vera sáttur.
27. mín Gult spjald: Hermann Þór Ragnarsson (ÍBV)
Fer í hörkutæklingu á Má Ægis og fær réttilega gult spjal.
23. mín
Vicente kemur boltanum inn á teiginn þar sem Sverrir Páll er mættur. Hann er í baráttu við varnarmann Fram sem hefur betur en Sverrir nær engu að síður skot á markið sem var laflaust og Framarar sækja nú hratt!
18. mín MARK!
Freyr Sigurðsson (Fram)
Stoðsending: Már Ægisson
Framarar hafa tekið forystuna! Flott spil upp völlinn hjá Frömurum sem endar með fyrirgjöf inn á teiginn frá Má Ægissyni á Frey. Boltinn á viðkomu í tveimur varnarmönnum áður en hann ratar á Frey. Freyr gerir mjög vel og nær að pota boltanum framhjá Marcel í markinu.

Framarar leiða 1-0!
12. mín
Sama sagan Mjög mjög lítið að frétta úr Úrfarsárdalnum. Fyrir utan kannski að þeir mega eiga það að þeir gera góða hamborgara. Mjög góða.
6. mín
Byrjar rólega Ekki mikið að frétta þessar upphafsmínútur. Bæði lið skiptast á að halda í boltann án þess að ná að skapa sér eitthvað færi.
1. mín
Það eru heimamennirnir sem koma okkur í gang hér í dag!
Fyrir leik
Styttist Þá ganga liðin til vallar og gera sig klár í slaginn!
Fyrir leik
Fram hafa verið öflugir í markaskorun á heimavelli og munu halda því áfram í dag, yfir 1,5 mörk Fram á Epic er gott veðmál.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi úr Úlfarsárdalnum! Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir þrjár breytingar á sínu liði eftir 1-1 jafntefli við Breiðablik á Kópavogsvelli í síðustu umferð. Kyle McLagan, Haraldur Einar Ásgrímsson og Róbert Hauksson koma úr liðinu fyrir þá Jakob Byström, Israel Garcia Moreno og Má Ægisson.

Eyjamenn gera tvær breytingar á sínu byrjunarliði eftir 2-1 tapið gegn Aftureldingu í síðustu umferð. Bjarki Björn Gunnarsson og Jovan Mitrovic koma inn í liðið fyrir þá Mattias Edeland og Víði Þorvarðarson.
Fyrir leik
Ási Haralds spáir í spilin Ásmundur Haraldsson, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins, fékk það verkefni að spá í leikina sem framundan eru. Ási hefur verið aðstoðarþjálfari landsliðsins í yfir 100 leiki og er á leið á sitt þriðja stórmót með liðinu. Í kvöld spilar kvennalandsliðið æfingaleik gegn Serbíu, en það er síðasti leikur liðsins fyrir EM í Sviss.



Fram 2 - 0 ÍBV (17:00 á sunnudag)
Það verður strembið fyrir Eyjamenn að koma á gervigrasið og Framarar skora bæði mörkin í fyrri hálfleik. Loka síðan leiknum án vandræða.
Fyrir leik
Tríóið Dómari leiksins er enginn annar en Gunnar Oddur Hafliðason en honum til halds og trausts verða þeir Ragnar Þór Bender og Guðmundur Ingi Bjarnason. Varadómari leiksins er Jóhann Ingi Jónsson en eftirlitsmaður KSÍ er Viðar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Eyjamenn berjast fyrir hverju stigi ÍBV hefur verið óheppið með meiðsli í byrjun sumars. Í seinasta leik töpuðu þeir 2-1 gegn Aftureldingu á heimavelli eftir að hafa tekið forystuna í leiknum. Leiknum á undan töpuðu þeir 2-0 fyrir Breiðablik í Vestmannaeyjum. Í hinum tveimur leikjunum á undan þessum leikjum unnu þeir báða þá leiki.

ÍBV er í 9. sæti deildarinnar með 14 stig, tveimur stigum frá falli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Framarar klífa upp töfluna Framarar voru óheppnir og klaufalegir í seinasata leik þegar þeir gerðu 1-1 jafntefli við Breiðablik á Kópavogsvelli. Fram fékk dauðafæri í stöðunni 1-0 fyrir Fram til þess að gera út um leikinn en þeir fengu í staðinn á sig mark á 90. mínútu úr vítaspyrnu. Í leiknum á undan unnu þeir FH 2-0 á heimavelli.

Fram er í 7. sæti deildarinnar með 16 stig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sú lang Besta! Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Fram og ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Marcel Zapytowski (m)
25. Alex Freyr Hilmarsson (m) ('71)
2. Sigurður Arnar Magnússon
6. Milan Tomic
8. Bjarki Björn Gunnarsson ('46)
10. Sverrir Páll Hjaltested
23. Arnór Ingi Kristinsson ('63)
24. Hermann Þór Ragnarsson ('90)
26. Felix Örn Friðriksson
30. Vicente Valor ('63)
44. Jovan Mitrovic
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
31. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
4. Nökkvi Már Nökkvason ('71)
5. Mattias Edeland
11. Víðir Þorvarðarson ('63)
21. Birgir Ómar Hlynsson ('63)
45. Þorlákur Breki Þ. Baxter ('46)
77. Þorri Heiðar Bergmann ('90)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Þorlákur Már Árnason (Þ)
Óskar Elías Zoega Óskarsson
Jón Ingason
Elías J Friðriksson
Arnar Gauti Grettisson
Elías Árni Jónsson
Kristian Barbuscak

Gul spjöld:
Hermann Þór Ragnarsson ('27)

Rauð spjöld: