Leik lokið!
Hvað getur maður sagt?
97. mín
Gult spjald
Eiður Orri Ragnarsson
92. mín
Ég hef ekki hugmynd um hverju var bætt við. Vonandi sem mestu því þetta er auðvitað bara einhver þvæla.
89. mín
Þrír varamenn og þrjú mörk
Stefan Ljub með boltann úti til hægri, miklu sterkari en varnarmaður og stendur af sér tæklingu. Kemur boltanum fyrir markið þar sem nafni hans mætir og skorar af stuttu færi.
Þvílíkar mínútur.
Þvílík endurkoma!
Stefán Jón Friðriksson (stoðsending: Stefan Alexander Ljubicic )
Þrír varamenn og þrjú mörk
Stefan Ljub með boltann úti til hægri, miklu sterkari en varnarmaður og stendur af sér tæklingu. Kemur boltanum fyrir markið þar sem nafni hans mætir og skorar af stuttu færi.
Þvílíkar mínútur.
84. mín
Eftir hornspyrnuna er það Eiður Orri sem kemur boltanum í netið úr þéttri þvögunni.
Og það er enn nóg eftir af þessum leik!
Það er drama í þessu!
Eiður Orri Ragnarsson
Eftir hornspyrnuna er það Eiður Orri sem kemur boltanum í netið úr þéttri þvögunni.
Og það er enn nóg eftir af þessum leik!
83. mín
Keflvíkingar vinna horn.
Er drama í þessu?
Er drama í þessu?
82. mín
Boltinn fellur fyrir Edon vinstra megin í teignun sem skorar með hnitmiðuðu skoti niðri í hornið fjær.
Líflína?
Edon Osmani (stoðsending: Ígnacio Heras Anglada)
Með sinni fyrstu snertingu skorar hann.Boltinn fellur fyrir Edon vinstra megin í teignun sem skorar með hnitmiðuðu skoti niðri í hornið fjær.
81. mín
InnEdon Osmani
ÚtSindri Snær Magnússon
81. mín
InnStefán Jón Friðriksson
ÚtAxel Ingi Jóhannesson
79. mín
InnFjölnir Sigurjónsson
ÚtBjarni Þór Hafstein
78. mín
Boltinn fyrir markið frá vinstri, þar verður Frans Elvarsson því óláni að setja boltan í eigið net úr markteignum.
Var þetta rothöggið?
Frans Elvarsson (sjm)
Boltinn fyrir markið frá vinstri, þar verður Frans Elvarsson því óláni að setja boltan í eigið net úr markteignum.
73. mín
Keflvíkingar setja boltann í netið en það fær ekki að standa.
Dæmt brot á Keflvíkinga í aðdragandanum. Mér sýnist það hafa verið réttur dómur.
Dæmt brot á Keflvíkinga í aðdragandanum. Mér sýnist það hafa verið réttur dómur.
70. mín
InnSnorri Þór Stefánsson
ÚtSigurjón Daði Harðarson
Skipt um markmann. Það sér maður ekki á hverjum degi.
Sá ekki að Sigurjón væri að kveinka sér en það hreinlega hlýtur að vera.
Sá ekki að Sigurjón væri að kveinka sér en það hreinlega hlýtur að vera.
70. mín
InnRafael Máni Þrastarson
ÚtEgill Otti Vilhjálmsson
68. mín
InnEiður Orri Ragnarsson
ÚtKári Sigfússon
64. mín
Marin í dauðafæri fyrir Keflavík í teignum en setur boltann framhjá.
Reynir að setja hann innanfótar í fjær frá vinstri en boltinn framhjá stönginni.
Reynir að setja hann innanfótar í fjær frá vinstri en boltinn framhjá stönginni.
61. mín
Leikurinn mikið frekar að spilast eftir handriti Fjölnis þessar mínúturnar. Tilviljanakennt og Keflvíkingar ekki í miklum takti sóknarlega.
Fjölnismenn þó að falla nokkuð neðar á völlinn sem gæti verið hættulegur leikur.
Fjölnismenn þó að falla nokkuð neðar á völlinn sem gæti verið hættulegur leikur.
59. mín
InnMikael Breki Jörgensson
ÚtReynir Haraldsson
59. mín
InnOrri Þórhallsson
ÚtSölvi Sigmarsson
57. mín
Sölvi Sigmarsson situr á vellinu og þarf aðhlynningu. Fljótur á fætur og gengur af velli.
Fjölnismenn að undirbúa tvöfalda skiptingu.
Fjölnismenn að undirbúa tvöfalda skiptingu.
52. mín
Bjarni Þór með boltann vinstra megin í teignum. Leggur boltann fyrir hægri fótinn og reynir að snúa hann í fjær en Rúnar sér við honum.
Rúnar ver með tilþrifum.
Bjarni Þór með boltann vinstra megin í teignum. Leggur boltann fyrir hægri fótinn og reynir að snúa hann í fjær en Rúnar sér við honum.
49. mín
Boltinn fellur fyrir hann í markteig Fjölnis, hann nær skotinu en það er alls ekki gott. Beint á Sigurjón sem gerir þó vel að koma boltanum frá.
Stefan Ljub aftur í dauðafæri
Boltinn fellur fyrir hann í markteig Fjölnis, hann nær skotinu en það er alls ekki gott. Beint á Sigurjón sem gerir þó vel að koma boltanum frá.
46. mín
Fáum við viðlíka fjör þessar seinni 45?
Heimamenn sparka okkur af stað á ný.
Síðari hálfleikur hafinn.
Fáum við viðlíka fjör þessar seinni 45?
Heimamenn sparka okkur af stað á ný.
45. mín
Flautað til hálfleiks hér í Keflavík í mjög furðulegum fótboltaleik.
Nóg af mörkum sem gleður en bæði lið hefðu vel getað skorað fleiri mörk.
Nóg af mörkum sem gleður en bæði lið hefðu vel getað skorað fleiri mörk.
45. mín
Bjarni Þór með boltann vinstra megin í teig Keflavíkur. Lætur vaða á markið og fer boltinn í varnarmann í háum boga í slánna og yfir. Rúnar virtist sigraður en prísaði sig sælan að sjá boltann detta í ofanverða slánna.
41. mín
Stefán Ljubicic klúðrar óklúðranlegu færi!
Keflvíkingar vinna boltann hátt á vellinum. Stefan er einn gegn Sigurjóni og leikur á hann. Markið tómt en Stefan setur boltann yfir markið!
Þessi leikur er vægast sagt stórfurðulegur.
Þessi leikur er vægast sagt stórfurðulegur.
39. mín
Muhamed með lúmskan bolta fyrir mark Fjölnis. Sýnist það vera Marin á þrennunni sem er að reyna teygja sig í boltann en er skrefinu of seinn.
33. mín
Varnarleikur ekki í hávegum hafður hér á HS Orkuvellinum í kvöld.
Einhver köll um rangstöðu úr stúkunni í aðdragandanum en af sjónvarpsmyndum að dæma var það aldrei raunin.
Hvað er að gerast hérna?
Bjarni Þór Hafstein
Fjölnismenn ná að halda boltanum sín á milli inn í teig Keflavíkur. Boltinn að endingu á Bjarna sem að skorar með góðu skoti úr teignum.Varnarleikur ekki í hávegum hafður hér á HS Orkuvellinum í kvöld.
Einhver köll um rangstöðu úr stúkunni í aðdragandanum en af sjónvarpsmyndum að dæma var það aldrei raunin.
32. mín
Stefán Ljub með snilldar tilþrif í miðjuboganum og þræðir Kára í gegn. Það vantar þó aðeins upp á hraðan hjá Kára sem er hlaupin uppi. Hann nær þó skoti sem Sigurjón ver.
Keflavík í dauðafæri!
Stefán Ljub með snilldar tilþrif í miðjuboganum og þræðir Kára í gegn. Það vantar þó aðeins upp á hraðan hjá Kára sem er hlaupin uppi. Hann nær þó skoti sem Sigurjón ver.
29. mín
Kári Sigfússon með skot rétt yfir markið.
28. mín
Sindri Snær á heiðurinn að stoðsendingunni en hann vinnur boltann á miðjunni og þræðir Marin í gegn.
Það vantar ekki mörk!
Marin Mudrazija (stoðsending: Sindri Snær Magnússon)
Marin sleppur einn í gegnum vörn Fjölnis og er einn gegn Sigurjóni. Honum verða á engin mistök og skilar boltanum af öryggi í netið úr teignum.Sindri Snær á heiðurinn að stoðsendingunni en hann vinnur boltann á miðjunni og þræðir Marin í gegn.
26. mín
Aftur Kristófer. Nú úr D-boganum en Rúnar kemst fyrir boltann og handsamar hann.
25. mín
Kristófer Dagur fær boltann við teig Keflavíkur. Með tíma og pláss til að leggja boltann fyrir sig og klárar undir Rúnar í markinu sem átti þó líklega að gera betur.
Keflvíkingar gjafmildir í dag.
Kristófer Dagur Arnarsson
Ernir tapar boltanum á miðjum vellinum og Fjölnismenn keyra fram.Kristófer Dagur fær boltann við teig Keflavíkur. Með tíma og pláss til að leggja boltann fyrir sig og klárar undir Rúnar í markinu sem átti þó líklega að gera betur.
22. mín
Leikurinn í algjöru jafnvægi sem stendur.
Þá á Daníel Ingvar hörkuskot af vítateigslínu sem siglir yfir mark Keflavíkur.
Þá á Daníel Ingvar hörkuskot af vítateigslínu sem siglir yfir mark Keflavíkur.
14. mín
Marin í góðri stöðu í teignum fær boltann og klárar vel af stuttu færi vinstra megin í markteignum.
Arkitektinn Ásgeir Páll sem átti glæsilega sendingu yfir vörn Fjölnis á Kára sem lagði boltann fyrir Marin.
Allt jafnt.
Marin Mudrazija (stoðsending: Kári Sigfússon)
Keflvikingar hafa verið að hóta þessu.Marin í góðri stöðu í teignum fær boltann og klárar vel af stuttu færi vinstra megin í markteignum.
Arkitektinn Ásgeir Páll sem átti glæsilega sendingu yfir vörn Fjölnis á Kára sem lagði boltann fyrir Marin.
13. mín
Ásgeir Páll með hörkusprett upp vinstri vænginn fyrir Keflavík. Kemur sér upp að endamörkum og nær boltanum fyrir en Fjölnismenn hreinsa í horn.
12. mín
Kristófer Dagur með góðan sprett og skot sem Rúnar slær í horn.
Hornið tekið frá hægri yfir á fjærstöng. Þar slær Frans Elvarsson boltann.... sem var alveg í lagi enda farinn útaf
Hornið tekið frá hægri yfir á fjærstöng. Þar slær Frans Elvarsson boltann.... sem var alveg í lagi enda farinn útaf
11. mín
Stefán Ljub með skot af vítateig, boltinn víðsfjarri markinu.
Heimamenn aðeins að vakna
Stefán Ljub með skot af vítateig, boltinn víðsfjarri markinu.
5. mín
Heimamenn í Keflavík ekki verið sannfærandi hér í upphafi, markið eflaust slegið þá vel út af laginu.
Fjölnismenn aftur í færi en mér sýnist Rúnar hafa hönd á boltanum enda fær Fjölnir horn.
Fjölnismenn aftur í færi en mér sýnist Rúnar hafa hönd á boltanum enda fær Fjölnir horn.
3. mín
Leikurinn er í beinni á Livey!
1. mín
Hvar voru miðverðir Keflavíkur?
Þetta tók 34 sekúndur!
Árni Steinn Sigursteinsson (stoðsending: Bjarni Þór Hafstein)
Boltinn settur út til vinstri. Fyrirgjöfin kemur inn á teiginn þar sem Árni Steinn er aleinn og óvaldaður og skallar boltann í hornið úr markteignum.Hvar voru miðverðir Keflavíkur?
1. mín
Þetta er farið af stað hér í Keflavík. Það eru gestirnir sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Skoraði í Evrópu í gær og spáir í dag
li Þór Jónasson, sem keyptur var frá HK til Víkings í vetur, spáir í leiki umferðarinnar. Atli skoraði sitt fyrsta Evrópumark í gær þegar hann skoraði í risasigri Víkings gegn Malisheva.
Keflavík 4 - 0 Fjölnir
Alltaf erfitt að fara í Keflavík að spila þannig þetta verður easy sigur. Kári Sigfússon verður með þrennu.

Keflavík 4 - 0 Fjölnir
Alltaf erfitt að fara í Keflavík að spila þannig þetta verður easy sigur. Kári Sigfússon verður með þrennu.

Fyrir leik
Tríóið
Sveinn Arnarsson er með flautuna hér í Keflavík í kvöld. Guðmundur Ingi Bjarnason og Jovan Subic eru honum til aðstoðar.
Ólafur Ingi Guðmundsson sinnir svo eftirliti fyrir hönd KSÍ.

Ólafur Ingi Guðmundsson sinnir svo eftirliti fyrir hönd KSÍ.

Fyrir leik
Lið Keflavíkur hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til þeirra fyrir mót. Liðið situr í dag í sjötta sæti deildarinnar og er langt í frá úr leik í baráttunni en talsvert þarf að breytast til batnaðar ætli liðið sér að taka af alvöru þátt í baráttu um efsta sæti deildarinnar.
Gabríel Aron Sævarsson sem á dögunum samdi við Breiðablik er ekki í leikmannahópi Keflavíkur í dag en hann er samningsbundinn liðinu til loka tímabils og gengur þá í raðir Breiðabliks.
Ég veit ekki til þess að Gabríel glími við meiðsli og kemur fjarvera hans úr leikmannahópi Keflavíkur undirrituðum nokkuð á óvart.

Keflavík

Fjölni sem ekki var spáð góðu gengi í mótinu hefur því miður staðið undir þeim spám til þessa. 11. og næst neðsta sæti deildarinnar er þeirra sem stendur og aðeins markatala skilur þá frá botnliði Leiknis en bæði lið eru með 9 stig.
Varnarleikur Grafarvogsbúa hefur verið til vandræða en liðið hefur fengið á sig 27 mörk til þessa í deildinni. Þeir vonast þó til að það lagist en Fjölnir samdi á dögunum við danska varnarmanninn Laurits Nørby. Hann fær þó ekki leikheimild fyrr en á morgun og er því ekki með í dag.
Fjölnir

Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Fjölnis í þrettándu umferð Lengjudeildar karla.
Lengjudeildarkvöld á föstudegi
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Fjölnis í þrettándu umferð Lengjudeildar karla.

Þvílíkur leikur. Þvílík dramatík.
Viðtöl og skýrsla væntanleg.