Lengjudeild karla
Þróttur R.

36'
0
0
0

Lengjudeild karla
Fjölnir

62'
0
1
1

Lengjudeild karla
Selfoss

LL
3
0
0

Lengjudeild karla
Leiknir R.

91'
0
0
0

Lengjudeild karla
Keflavík

LL
4
0
0

Lengjudeild karla
Völsungur

LL
2
5
5

2. deild karla
KFA

LL
6
1
1

Besta-deild kvenna
Valur

LL
4
2
2


Leiknir R.
0
0
Fylkir

13.08.2025 - 18:00
Domusnovavöllurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Sól og blíða
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Domusnovavöllurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Sól og blíða
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)

3. Bogdan Bogdanovic

5. Daði Bærings Halldórsson (f)
7. Róbert Quental Árnason
('69)

8. Sindri Björnsson
('69)


17. Adam Örn Arnarson
19. Axel Freyr Harðarson
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
('69)

43. Kári Steinn Hlífarsson
('90)

44. Aron Einarsson
45. Djorde Vladisavljevic
('26)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Hilmar Örn Pétursson (m)
4. Patryk Hryniewicki
('26)

9. Jóhann Kanfory Tjörvason
14. Davíð Júlían Jónsson
('69)

22. Þorsteinn Emil Jónsson
('69)

23. Aron Skúli Brynjarsson
('69)

55. Anton Fannar Kjartansson
('90)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Ósvald Jarl Traustason
Gísli Friðrik Hauksson
Brynjar Hlöðvers
Nemanja Pjevic
Ari Þór Kristinsson
Þórkatla María Halldórsdóttir
Gul spjöld:
Sindri Björnsson ('67)
Bogdan Bogdanovic ('77)
Ólafur Íshólm Ólafsson ('83)
Rauð spjöld:
91. mín
Ásgeir Eyþórs með skalla að marki eftir hornspyrnu en Óli Íshólm nær að grípa hann.
90. mín
STÓRKOSTLEG VARSLA!
ÓLI ÍSHÓLM!
Halldór Jón kominn í dauðafæri en Óli Íshólm er í banastuði og nær að verja einhvern veginn. Hvernig eru Fylkismenn ekki búnir að skora?
Halldór Jón kominn í dauðafæri en Óli Íshólm er í banastuði og nær að verja einhvern veginn. Hvernig eru Fylkismenn ekki búnir að skora?
90. mín

Inn:Anton Fannar Kjartansson (Leiknir R.)
Út:Kári Steinn Hlífarsson (Leiknir R.)
89. mín
Fylkismenn að ógna!
Núna er Tumi kominn í gott skotfæri en Aron hendir sér fyrir og boltinn endar í höndunum á Óla Íshólm.
88. mín
DAUÐAFÆRI!!!
Fylkismenn með boltann á fjærstöngina þar sem Pablo er einn, en hann nær ekki nægilega góðu skoti. Fylkismenn virðast vera að koma boltanum yfir línuna í frákastinu en Óli Íshólm gerir frábærlega í að bjarga!

88. mín
Vel blokkað!
Pablo Aguilera að koma í mjög fína stöðu í teignum og reynir skotið en Patryk Hryniewicki gerir hrikalega vel í því að koma sér fyrir skotið!
86. mín
Eins og staðan er núna er hvorugt liðið búið að gera nóg til að vinna leikinn. Sigurmark á síðustu mínútum leiksins væri þó gríðarlega kærkomið fyrir bæði lið.
85. mín
Ömurlegt skot!
Langur bolti fram hjá Fylki. Óli Íshólm kemur út á móti og skallar boltann beint á Halldór Jón Sigurð. Hann er í eiginlegu dauðafæri þar sem Óli er langt út úr marki sínu en skotið hans er ömurlegt.
84. mín
Úfff!
Kári Steinn gerir vel og á hættulegan bolta fyrir en þar er enginn mættur til að koma boltanum yfir línuna!
81. mín
Fylkir fær hornspyrnu og stuðningsmennirnir taka við sér. Þeir taka hornspyrnuna stutt og senda hann fyrir, en Leiknismenn koma þessu frá.
78. mín
Hrikalegt
Þetta var hrikleg ákvörðun hjá Bogdan ef þetta var í raun og veru dýfa, sem ég held að sé rétt. Hann var að komast í frábært færi en ákvað að henda sér niður.
77. mín
Gult spjald: Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir)

Sá ekki Ívar lyfta gula spjaldinu en held örugglega að hann hafi gefið honum gult. Hræðileg tækling þegar Leiknir sótti.
77. mín
Gult spjald: Bogdan Bogdanovic (Leiknir R.)

Dýfa!
Bogdan fer niður í teignum en Ívar Orri er viss í sinni sök og gefur honum gult spjald fyrir dýfu. Ekki mikil mótmæli.
74. mín
Theodór Ingi fer inn á völlinn og reynir skot en það er auðvelt fyrir Óla Íshólm.
73. mín

Inn:Máni Austmann Hilmarsson (Fylkir)
Út:Eyþór Aron Wöhler (Fylkir)
Máni mætir á sinn gamla heimavöll.
71. mín
Arnór Breki með skot úr aukaspyrnu sem Ólafur Íshólm nær að grípa. Þessi spyrna leit ágætlega út en auðvelt fyrir Óla.
69. mín

Inn:Davíð Júlían Jónsson (Leiknir R.)
Út:Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Leiknir R.)
67. mín
Gult spjald: Sindri Björnsson (Leiknir R.)

Togar í Pablo og Fylkir fær aukaspyrnu á fínum stað.
65. mín
Menn léttir
Leikurinn stöðvaður eftir að Patryk Hryniewicki fær höfuðhögg. Arnar Grétars ekki sáttur og Gústi Gylfa vill meina að um olnbogaskot hafi verið að ræða. Heyrist Arnar segja að Gústi þurfi styrk í sólgleraugun sín.
61. mín
Hættulegt!
Róbert sendir Axel Frey í gegn og það myndast hættuleg staða en hann er kominn í of þrönga vinkil þegar hann sendir fyrir. Dagur Ingi mætir ekki og Ólafur Kristófer handsamar boltann.
59. mín
Ég hef ekki hugmynd hvað gestirnir eru að reyna sóknarlega. Ekkert gott allavega.
56. mín
Arnar Grétars augljóslega pirraður á hliðarlínunni og ætlar að gera skiptingu. Hann er alls ekki sáttur með gang mála hjá sínum mönnum.
55. mín
Afskaplega rólegt
Lítið um færi og lítið um gæði fyrstu tíu mínúturnar í þessum seinni hálfleik. Bæði lið eru varkár.
54. mín
,,Fylkir rífa sig í gang!" öskrar Arnar Grétars inn á völlinn í þann mund er Leiknir tekur aukaspyrnuna. Boltinn inn á teiginn og Ólafur Kristófer grípur.
53. mín
Gult spjald: Emil Ásmundsson (Fylkir)

Brýtur á Aroni og fær réttilega gult spjald.
51. mín
Sindri Björns fær boltann fyrir utan teig og mundar skotfótinn, en skot hans fer yfir markið. Það er meiri kraftur í Leiknismönnum í byrjun seinni hálfleiks.
48. mín
Róbert Quental keyrir á vörnina og fer yfir á vinstri fótinn. Hann er kominn í ágætis skotstöðu og lætur vaða, en boltinn svífur yfir markið.
46. mín
Fylkismenn með sendingu fyrir frá hægri en það nær enginn til hans. Pablo rennir sér á fjærstönginni en missir af boltanum.
45. mín
Hálfleikur
Það verður mun ítarlegri textalýsing frá seinni hálfleik
Fylgjumst grannt með gangi mála eftir hlé. Þá verður vonandi meira fjör!
45. mín
Emil Ásmunds með skot
Fer af af varnarmanni og afturfyrir. Ekkert kemur úr horninu.
45. mín
Leiknismenn alveg bitlausir
Gengur herfilega hjá þeim að halda í boltann og þeir komast lítt áleiðis.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
44. mín
Fylkir miklu meira með boltann
Ekki mikið um færi í þessum leik og það sést vel á spilamennskunni að hér mætast lið með lítið sjálfstraust.
15. mín
Markalaust eftir fimmtán mínútur
Því miður erum við ekki með hefbundna textalýsingu hér í dag en við munum vera með svokallaða úrslitaþjónustu og uppfærum stöðuna um leið og eitthvað gerist.
Fyrir leik
Emil Ásmunds snýr til baka eftir leikbann
Fylkir tapaði 1-2 á heimavelli gegn Þór í síðustu umferð. Arnar Grétarsson gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá þeim leik.
Inn koma: Pablo Aguilera Simon, Þórður Ingi Ingimundarson, Guðmundur Tyrfingsson og Emil Ásmundsson sem snýr til baka úr banni.
Út fara: Birkir Eyþórsson, Guðmar Gauti Sævarsson, Theodór Ingi Óskarsson og Máni Austmann Hilmarsson.

Fylkir tapaði 1-2 á heimavelli gegn Þór í síðustu umferð. Arnar Grétarsson gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá þeim leik.
Inn koma: Pablo Aguilera Simon, Þórður Ingi Ingimundarson, Guðmundur Tyrfingsson og Emil Ásmundsson sem snýr til baka úr banni.
Út fara: Birkir Eyþórsson, Guðmar Gauti Sævarsson, Theodór Ingi Óskarsson og Máni Austmann Hilmarsson.
Fyrir leik
Leiknir hefur sótt tvo leikmenn síðustu daga
Sóknarmaðurinn Aron Skúli Brynjarsson er nýkominn frá Augnabliki og byrjar á bekknum í kvöld. Binni Hlö er svo mættur aftur heim en hann er skráður í liðsstjórn í kvöld.
12.08.2025 19:34
Aron Skúli í Leikni (Staðfest)
13.08.2025 10:23
Binni Hlö heim í Leikni (Staðfest)
Fyrir leik
Shkelzen Veseli ekki með Leikni
Leiknir tapaði 3-2 fyrir Grindavík í síðustu umferð eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir. Shkelzen Veseli skoraði og lagði upp í þeim leik en er að glíma við smávægileg meiðsli og tapaði kapphlaupinu um að geta spilað þennan leik.
Það eru alls þrjár breytingar á byrjunarliði Leiknis. Dusan Brkovic er meiddur og Patryk Hryniewicki sest á bekkinn. Inn í byrjunarliðið koma Róbert Quental Árnason, Bogdan Bogdanovic og Sindri Björnsson.

Leiknir tapaði 3-2 fyrir Grindavík í síðustu umferð eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir. Shkelzen Veseli skoraði og lagði upp í þeim leik en er að glíma við smávægileg meiðsli og tapaði kapphlaupinu um að geta spilað þennan leik.
Það eru alls þrjár breytingar á byrjunarliði Leiknis. Dusan Brkovic er meiddur og Patryk Hryniewicki sest á bekkinn. Inn í byrjunarliðið koma Róbert Quental Árnason, Bogdan Bogdanovic og Sindri Björnsson.
Fyrir leik
Spáin
Í kvöld hefst 17. umferðin og tók Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, að sér það verkefni að spá í leikina. Magnús er mikill fótboltaaðdáandi, stuðningsmaður ÍR og Liverpool.
Leiknir R. 2 - 1 Fylkir
Baráttan um Elliðárdalinn sem er auðvitað perla Reykjavíkur. Eins mikill sex stiga leikur í fallbaráttunni og hægt er að hafa. Tveir reynsluboltar við stjórnvölinn hjá liðunum sem munu þurfa að fara djúpt í taktíkbækurnar til að koma í veg fyrir að liðin verði ekki í 2.deildinni næsta ár. Leiknismenn þekkja þennan slag betur og það virðist vera rosalega erfitt hjá Fylkismönnum að klára leiki, vantar upp á afgerandi þætti varnar- og sóknarlega þó að spilamennskan sé fín. Þetta verður drama, Quental setur Breiðholtssleggju í blálokin!
Leiknir R. 2 - 1 Fylkir
Baráttan um Elliðárdalinn sem er auðvitað perla Reykjavíkur. Eins mikill sex stiga leikur í fallbaráttunni og hægt er að hafa. Tveir reynsluboltar við stjórnvölinn hjá liðunum sem munu þurfa að fara djúpt í taktíkbækurnar til að koma í veg fyrir að liðin verði ekki í 2.deildinni næsta ár. Leiknismenn þekkja þennan slag betur og það virðist vera rosalega erfitt hjá Fylkismönnum að klára leiki, vantar upp á afgerandi þætti varnar- og sóknarlega þó að spilamennskan sé fín. Þetta verður drama, Quental setur Breiðholtssleggju í blálokin!
Fyrir leik
Dómarinn
Ívar Orri Kristjánsson verður með flautuna í kvöld en honum til aðstoðar verða Arnþór Helgi Gíslason og Ronnarong Wongmahadthai. Eftirlitsmaður KSÍ er Jóhann Gunnarsson.

Fyrir leik
Gengið illa hjá nýju stjórunum
Bæði þessi lið hafa gert þjálfaraskipti á tímabilinu en það hefur ekki haft áhrifin sem óskaðist. Leiknismenn voru á undan í skiptunum þar sem Ágúst Gylfason tók við liðinu 3. júní. Hann fór vel af stað og vann fyrstu tvo leikina sína en síðan þá hafa Leiknismenn aðeins náð í þrjú stig, með þremur jafnteflum úr níu leikjum.
Fylkismenn létu Árna Frey Guðnason fara og réðu í staðinn Arnar Grétarsson. Addi hefur núna stýrt fjórum leikjum, en aðeins náð í eitt stig. Það var 3-3 jafntefli gegn Fjölni.

Fylkismenn létu Árna Frey Guðnason fara og réðu í staðinn Arnar Grétarsson. Addi hefur núna stýrt fjórum leikjum, en aðeins náð í eitt stig. Það var 3-3 jafntefli gegn Fjölni.

Fyrir leik
Sex stiga leikur!
Þessi leikur er gríðarlega miklvægur fyrir bæði lið. Það eru sex leikir eftir af tímabilinu og þessi lið eru í tveimur neðstu sætum deildarinnar. Leiknir er í því síðasta með 10 stig og Fylkir í því næst síðasta með 11 stig.
Liðið sem vinnur í kvöld, er líklegt að koma sér upp úr fallsæti.
Liðið sem vinnur í kvöld, er líklegt að koma sér upp úr fallsæti.

Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
3. Arnór Breki Ásþórsson
5. Orri Sveinn Segatta
7. Tumi Fannar Gunnarsson
9. Eyþór Aron Wöhler
('73)

11. Pablo Aguilera Simon
13. Þórður Ingi Ingimundarson

18. Nikulás Val Gunnarsson
('77)


70. Guðmundur Tyrfingsson
('57)

88. Emil Ásmundsson
('77)
- Meðalaldur 25 ár


Varamenn:
12. Hilmar Þór Kjærnested Helgason (m)
6. Þorkell Víkingsson
19. Arnar Númi Gíslason
20. Theodór Ingi Óskarsson
('57)

23. Máni Austmann Hilmarsson
('73)

34. Guðmar Gauti Sævarsson
('77)

80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson
('77)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Arnar Grétarsson (Þ)
Daði Ólafsson
Arnór Gauti Brynjólfsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Ólafur Engilbert Árnason
Gul spjöld:
Emil Ásmundsson ('53)
Þórður Ingi Ingimundarson ('75)
Nikulás Val Gunnarsson ('77)
Rauð spjöld: