Leik lokið!
Fram taka 3 stigum gegn Val í seinasta leik fyrir skiptingu.
Viðtöl og skýrsla koma inn seinna í dag, takk fyrir mig!
95. mín
Fram vinnur boltann og MUrielle fer með boltann beint á hornfánann.
93. mín
Valur er að fara í sína seinustu sókn og verða líklegast einu færri í henni þar sem Nadía þarf að vera meidd utan velli.
91. mín
InnThelma Lind Steinarsdóttir
ÚtLily Anna Farkas
90. mín
+3 til uppbótar!
84. mín
InnGuðrún Elísabet Björgvinsdóttir
ÚtBerglind Rós Ágústsdóttir
84. mín
InnÓlína Ágústa Valdimarsdóttir
ÚtAlda Ólafsdóttir
80. mín
HVERSU MIKIÐ KLÚÐUR?!?!?
Hvað var ég að sjá? Nadía og Jordyn eru komar upp með aðeins Dominiqe til að verjaast gegn þær báðar. Nadía sendir til hliðar á Jordyn og klobbar Dominiqe í leiðinni. Þær fara svo báðar upp teigin og Jordyn sendir svo á Nadíu sem er með opið mark fyrir framan sig. Nadia tekur skotið en það er svo laust að Ashley hefur tíma til að stökkva og rétt svo ná tak í boltan áður en hann færi inn markið.
Þvílika kæruleisin.
79. mín
Lily með skot sem leit út fyrir að var ætlað sem sending. SKotið fer þó beint á markið og Tinna þarf að kyla boltann yfir markið.
73. mín
InnÓlína Sif Hilmarsdóttir
ÚtEyrún Vala Harðardóttir
72. mín
Jasmín með skot sem endar á slánna og út.
70. mín
Fanndís með skot sem endar langt yfir markið.
69. mín
Fram aftur með hornspyrnu
Kemur ekkert út úr þessu.
68. mín
Fram fær hornspyrnu
Hornið tekið stutt sem endar á Lily. Lily finnur pláss og tekur skot sem endar á markið en Tinna nær að verja.
65. mín
VÁÁÁÁ!
Murielle Tiernan
Fram með aukaspyrnu frá hálfvallar línunni sem lendir inn í teigin. BOltinn lendir á Murielle sem tekur boltann niður og skorar svo með álvöru volley beint inn í netið.64. mín
InnNadía Atladóttir
ÚtHelena Ósk Hálfdánardóttir
64. mín
InnAnna Rakel Pétursdóttir
ÚtBryndís Eiríksdóttir
62. mín
Alda með ákaflega laust skot á Tinnu.
55. mín
Olga ýtir í bakið á Jasmínu sem skallar svo hausinn á Mackenzie sem ligggja niðri. Jasmín alls ekki sátt við varadómaran eftir atvikið.
53. mín
Helena Ósk með aukaspyrnu sem endar beint á Ashley Brown í markinu.
52. mín
Gult spjald
Mackenzie Elyze Smith
47. mín
Fram fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teig
Spyrnan sent stutt og sentur svo lágt inn í teig og Valur koma boltanum léttilega í burtu. Fáranleg nýting á þessu færi.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Fram sparka þeim seinni í gang!
45. mín
Mikið af færum í þessum leik, sértaklega hjá Fram. Það er þó engin mörk komin og liðin fara jöfn inn í klefan. Vonum eftir marka meiri seinni hálfleik!
45. mín
Gult spjald
Eyrún Vala Harðardóttir
45. mín
Fanndís með skemmtilega takta rétt fyrir utan teig og tekur svo skotið sem endar á markið en Ashley grípur þetta.
40. mín
Una Rór ákveður að senda boltann inn í tegin í staðinn fyrir að skjóta úr þessu frábæru stöðu. Leimaður Fram skallar svo á Murielle sem á skot á markið sem Tinna handsamar.
39. mín
Gult spjald
Málfríður Anna Eiríksdóttir
Alltaf gult á Málfríði sem brýtur Murielle sem er nánast komin í gegn og inn í teigin.36. mín
Gult spjald
Dominiqe Evangeline Bond-Flasza
35. mín
Hvenær endar boltinn inni?
Fram aftur með svakalegt færi þar sem Eyrún nær boltanum á línunni við hornfánan. Sendir svo boltann inn í teigin á Murielle, en varnamann Val komast í sendinguna.
31. mín
Fram aftur með risa tækifæri!
Dominiqe með skot á markið sem fer í varnamann. BOltinn dettur svo á Öldu sem reyni svo seinna skot á opið mark, en Lillý Rút nær að koma sér fyrir skotið og bjargar marki!
25. mín
Þvílik varsla!
Fram með gullið tækifæri eftir aukaspyrnu. Boltinn lendir á Öldu sem á svo skotið og boltinn virðist vera á leiðinni inn. Tinna Brá er með rosa skutlu og nær að verja boltann.
23. mín
InnKolbrá Una Kristinsdóttir
ÚtArnfríður Auður Arnarsdóttir
19. mín
Skipting deildar
Nánast staðfest hvaða lið enda í efri og neðri hluta fyrir skiptingu. Þór/KA og Víkingur eru að keppast um sæti, en þar sem Víkingur er að vinna FHL og Breiðablik að vinna Þór/KA, þá myndi ég staðfesta það að Víkingur spilar í efri og Þór/KA í neðri hluta.
16. mín
Málfríður bjarga boltanum nánast á línunni með að sparka honum í burtu. Fram í góðri sókn.
15. mín
Tvær Vals konur liggja niðri eftir að þær rákust í hvort annað í teig Framara. Þær standa upp fljótt aftur.
12. mín
Helena með alvöru séns sem endar bænt á fæturnar á varnamanni Framara.
10. mín
Valur vinnur aukaspyrnu
Ekkert kemur úr þessu.
9. mín
Jordyn með skalla rétt yfir markið
5. mín
Fram fær hornspyrnu
Fram ná að skapa smá færi úr horninu, en ekkert á markið.
3. mín
Valur fær aukaspyrnu á vallarhelming Framara. Boltinn fer í tegin en Ashley handsamar boltann.
1. mín
Leikurinn er farinn í gang!
Fyrir leik
Styttir í spennuna!
Leikmenn labba hér inn á völlinn og leikurinn fer að hefjast!
Fyrir leik
Byrjunarlið komin!
Óskar gerir tvær breytingar eftir tap gegn Stjörnmunni í seinustu umferð.
Olga Ingibjörg og Eyrún Vala kom báðar inn í byrjunarliðið fyrir Katrínu Erlu og Hildi Maríu.
Matthías gerir eina breytingu eftir sigri gegn Tindastól í seinustu umferð.
Helena Ósk kemur inn í byrjunarliðið fyrir Ragnheiði Þórunni.
Fyrir leik
Dómarateymið
Aðaldómari leiksins er Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson og með honum til aðstoðar eru Ásgeir Viktorsson og Tijana Krstic. Varadómari leiksins er Ronnarong Wongmahadthai. Eftirlitsmðaur leiksins frá KSÍ er Skúli Freyr Brynjólfsson.


Fyrir leik
Valur
Þetta tðímabil hefur verið algjört klúður miða við seinustu tímabil hjá Val. Valur liggur þó í 4. sæti, þannig það er skrítið að vera segja að sá árangur er alls ekki góður. Pétur hætti með liðinuu eftir seinasta tímabil og Kristján og Matthías Guðmunds tóku við liðinu. Kristján hætti svo nýlega sem þjálfari Val eftir léglegt gengi og fór í sólina til þess að þjálfa kvennaliði í Portúgal og Matthías tók þá alfarið við liðinu. Valur hefur verið að spýtta í sig lofana nýlega og er með 4 sigra í seinustu 5 leikjum.
Valur sigraði Tindastól 6-1 í seinustu umfer, þar sem Fanndís skoraði sína fyrstu þrennu í tíu ár.


Fyrir leik
Fram
Nýliðarnir í ár komu öllum á óvartr í byrjun tímabilsins og voru í efri hluta í 5. sæti eftir 10 umferðir. Gengið hjá Fram hefur dvalað seinustu umferðir og Fram liggur nú í 8. sæti. Það væri hinsvegar mjög flottur árangur hjá Fram að halda sér í Bestu deildinni í ár.
Fram tapaði 3-1 gegn Stjörnunni í seinustu umferð.


Fyrir leik
Seinasta umferð fyrir skiptingu deildar
Góðan daginn gott fólk og verið hjartanlega velkomin á þessa þráð beinu textalýsingu frá Lambhagavellinum þar sem Fram býður Val velkomin. Fram er að fara spila í neðri hluta á meðan Valur í efri hluta þegar deidlin skiptist eftir leikina í dag.
Leikurinn hefst 14:00.






