Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetGuðmundur Jónasson
Vestri
Vestri
Besta-deild karla - Neðri hluti
Kerecisvöllurinn
7 gráður sól og smá vindur
0 - 4
ÍA
ÍA
0 - 149' Gísli Laxdal Unnarsson0 - 259' Viktor Jónsson (víti)0 - 375' Baldvin Þór Berndsen0 - 479' Haukur Andri Haraldsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Leik lokið!
Þetta er búið!
Skagamenn vinna hér 0-4 á Ísafirði! Skýrsla og viðtöl koma inn seinna í dag
ÍA
93. mín
InnAlbert Hafsteinsson
ÚtÍsak Máni Guðjónsson
90. mín
Skagamenn komnir upp en gera illa og Guy Smit nær boltanum
88. mín
Baldvin Berndsen með skot lengst fyrir utan teig beint á Guy Smit
87. mín
Steinar Þorsteinsson kominn í góða stöðu en á skot rétt framhjá marki Vestramanna
Vestri
83. mín
Gult spjald

Jeppe Pedersen

Jeppe fær gult fyrir dýfu en það var klárlega snerting á Jeppe þarna
ÍA
80. mín
InnSteinar Þorsteinsson
ÚtÓmar Björn Stefánsson
ÍA
79. mín
4-0!!!

Haukur Andri Haraldsson (stoðsending: Gísli Laxdal Unnarsson)

Fall á skelfilega fyrirgjöf sem fer beint á skagamenn og Gísli Laxdal keyrir upp völlinn kemur boltanum fyrir Fall reynir að bjarga þessu en boltinn endar á Hauk Andra sem setur boltann í autt markið
78. mín
Vestri í góðri sókn en ná ekki að nýta þetta en fá hornspyrnu
Vestri
76. mín
InnJohannes Selvén
ÚtThibang Sindile Theophilius
Vestri
76. mín
InnGuðmundur Arnar Svavarsson
ÚtAnton Kralj
ÍA
75. mín
MAARKK!!!

Baldvin Þór Berndsen

Skagamenn fá hornspyrnu sem fer á Eið Aron sem nær ekki að skalla í rétta átt og boltinn fer á Baldvin sem potar boltanum inn
70. mín
Vestri fá hornspyrnu
68. mín
Vestri vilja aftur víti eftir að það er aðeins ýtt í Cafu Phete en ekkert dæmt sem er rétt ákvörðun að mínu mati
ÍA
67. mín
InnGuðfinnur Þór Leósson
ÚtMarko Vardic
64. mín
Vestri vilja óbein aukaspyrnu en fá ekki neitt eftir að Árni Marínó grípur boltann lætur hann frá sér og tekur hann svo aftur upp
Vestri
60. mín
InnEmmanuel Agyeman Duah
ÚtVladimir Tufegdzic
ÍA
59. mín
MAAAARK!

Viktor Jónsson

Guy Smit fer í rétt horn en nær ekki að verja spyrnuna frá Viktori sem var nokkuð örugg
57. mín
VÍTI!!
Eiður Aron tekur hér Marko Vardic niður og Skagamenn fá víti
55. mín
ÍA fær hornspyrnu
54. mín
Vestri vilja víti eftir að Gunnar Jónas dettur inni í teig skagamanna en lítið í þessu
ÍA
49. mín
VÁÁÁÁÁÁ!!

Gísli Laxdal Unnarsson

Gísli Laxdal fær hér boltann og smellir honum í skeitin Guy Smit á ekki séns í þetta en spurning um rangstæðu þarna Vestri vilja rangstæðu á Gísla Laxdal sem virkar rangstæður en aðstoðardómarinn flaggar ekki og Gísli klárar þetta vel
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað Vestri byrja með boltann
45. mín
0-0 í hálfleik vonandi fáum við skemmtilegri leik í seinni hálfleik
45. mín
3 mínútum bætt við
Vestri
43. mín
Gult spjald

Thibang Sindile Theophilius

ÍA
43. mín
Gult spjald

Gísli Laxdal Unnarsson

Menn að rífast og ýta hver öðrum eftir að Gísli Laxdal lætur Anton Kralj heyra það fyrir að henda sér niður
Vestri
39. mín
InnSergine Modou Fall
ÚtFatai Adebowale Gbadamosi
38. mín
Fatai liggur hér eftir þarf aðhlynningu og börur, fer í tæklingu snertir hann enginn og Fatai heldur aftan um hnéið
36. mín
Gunnar Jónas með skot fyrir utan teig með vinstri en það er lélegt og fer framhjá
ÍA
35. mín
Gult spjald

Rúnar Már S Sigurjónsson

Brýtur á Tufa sem var að fara komast framhjá honum
30. mín
Dauðafæriiii!!
Anton Kralj með fyrirgjöf sem fer á Gunnar Jónas sem á lélegan skalla sem endar á Tufa sem þarf bara pota boltanum inn en hittir ekki á markið þetta var dauðafæri
28. mín
Ómar Björn með skot frá vinstri sem fer framhjá
25. mín
Marko Vardic með skot fyrir utan teig en það er langt framhjá
20. mín
Gott færi!
Vestri kemst hratt upp Fatai sleppur í gegn og Árni Marínó rennur Fatai reynir að koma boltanum fyrir markið en það er enginn Vestramaður þar og Skagamenn hreinsa boltann í innkast
16. mín
Lítið að gerast þessa stundina, liðin að skiptast á að vera með boltann
11. mín
Vestri sækir hratt Gunnar Jónas kominn upp vinstra meginn kemur boltanum fyrir markið á Tufa sem nær rétt að pota í boltann en Árni Marínó ver þetta
8. mín
Ísak Máni með fyrirgjöf inn í teig Vestra þar sem Viktor Jónsson er en Guy Smit grípur boltann
5. mín
Skagamenn fá sína fyrstu hornspyrnu
3. mín
Jeppe Pedersen með langt innkast sem Eiður skallar beint á Árna Marínó í marki skagamanna
1. mín
Þetta er farið af stað!
Skagamenn byrja með boltann, góða skemmtun!
Fyrir leik
Liðin að gera sig klár
Þetta fer að fara af stað! Gott veður á Ísafirði 7 gráður og smá vindur
Fyrir leik
KR gæti verið komið í fallsæti í kvöld
Fyrir leik
Lárus Orri breytir ekki sigurliði
ÍA stillir upp sama liði og vann Aftureldingu í síðustu umferð.
Mynd: Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Sama byrjunarlið og í bikarúrslitaleiknum
Vestri stillir upp sama byrjunarliði og vann Val í bikarúrslitaleiknum.
Mynd: Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Eiður Aron: Hópurinn staðráðinn í að svara fyrir þá frammistöðu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Leikurinn leggst bara hrikalega vel í mig, vont tap í síðasta leik (gegn KA) og það hefur sést i þessari æfingaviku að hópurinn er staðráðinn í að svara fyrir þá frammistöðu," segir Eiður Aron Sigurbjörnsson.
Fyrir leik
Gleymdu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bikarmeistararnir hafa aðeins náð í eitt stig úr fjórum síðustu leikjum og umræða um bikarþynnku hefur verið vinsæl. Davíð Smári þjálfari liðsins gagnrýndi sína menn eftir 4-1 tap gegn KA í síðustu umferð og sagði þá hafa gleymt fyrir hvað Vestri stendur. Fyrir bikarsigurinn hafði Vestri mest fengið á sig tvö mörk í sama leiknum en eftir hann hefur liðið tapað tveimur leikjum 4-1. Vestramenn þurfa að ræsa sig í gang aftur ef þeir ætla ekki að sogast í verulega fallhættu.
   14.09.2025 18:20
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
Fyrir leik
ÍA getur komist upp úr fallsæti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sparkspekingar höfðu dæmt Skagamenn dauða og grafna en með tveimur sigurleikjum í röð hefur kviknað von á Akranesi. Skyndilega er liðið komið upp úr neðsta sætinu og leikmenn fara á koddann utan fallsvæðisins ef sigur vinnst á Ísafirði.
   18.09.25 12:57
Rúnar Már: Býst ekki við að festast þarna
Fyrir leik
Fatai snýr aftur eftir leikbann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrri leikir á tímabilinu: ÍA 0-2 Vestri, Vestri 0-2 ÍA. Stuðlar Epic: Vestri 2,25 - Jafntefli 3,75 - ÍA 3,05. Leikmaður til að fylgjast með: Ómar Björn Stefánsson er heitur hjá Skaganum með þrjú mörk í tveimur síðustu leikjum. Mikið mun mæða á: Fatai Gbadamosi varnartengiliður Vestra var í banni gegn KA og var sárt saknað.
Fyrir leik
Velkomin til Ísafjarðar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vestri og ÍA mætast í fyrsta leik eftir tvískiptingu. 23. umferð, neðri hluti. Pétur Guðmundsson dæmir leikinn, aðstoðardómarar eru Kristján Már Ólafs og Bryngeir Valdimarsson. Fjórði dómari: Arnar Þór Stefánsson.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.