Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Tindastóll
Tindastóll
Besta-deild kvenna
Sauðárkróksvöllur
0 - 4
FH
FH
0 - 117' Berglind Freyja Hlynsdóttir0 - 220' Thelma Lóa Hermannsdóttir0 - 325' Margrét Brynja Kristinsdóttir0 - 455' Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Dómari: Hreinn Magnússon
Myndir: Sigurður Ingi Pálsson
Leik lokið!
FH taka þennan leik þægilega 0-4 á Sauðárkróksvelli Þær höfðu öll völdin á vellinum og Tindastóll í rauninni ekki líklegar að jafna Takk fyrir samfylgdina í dag, skýrsla og viðtöl koma inn á eftir
91. mín
Pettet er grimm í pressunni nær hörkuskoti á markið en fer í varnarmann, dómarinn þó ekki á því og markspyrna dæmd
90. mín
Harpa með hörkuskot sem Crenshaw þarf að hafa sig alla við að verja
88. mín
Dauðafæri og dauðafæri hér trekk í trekk, fyrst á Thelma Lóa skot í stöngina svo berst boltinn á Mayu Hansen sem setur hann svo hárfínt framhjá
86. mín
Laufey tekur spyrnu inn í teig, boltinn berst svo til Hranfhildar sem reynir skot en það er ekki alveg nógu fast og Enneking á ekki í vandræðum með að grípa
83. mín
Thelma Lóa kemur af aðeins og miklum krafti beint í Pettet sem flýgur um leið og hún sendir boltann, aukaspyrna dæmd sem ekkert verður úr
81. mín
Thelma Lóa fylgir eftir pressu og kemur í veg fyrir að Crenshaw nái að koma honum frá, munaði litlu að þetta myndi hreinlega enda með marki
79. mín
Birgitta með hörkutæklingu út á kannti
77. mín
Harpa nær skoti en það yfir
FH
70. mín
InnIngibjörg Magnúsdóttir
ÚtJónína Linnet
FH
70. mín
InnHarpa Helgadóttir
ÚtDeja Jaylyn Sandoval
FH
70. mín
InnAnna Heiða Óskarsdóttir
ÚtBerglind Freyja Hlynsdóttir
FH
70. mín
InnHildur Þóra Hákonardóttir
ÚtThelma Karen Pálmadóttir
68. mín
Alvöru dauuuuðafæri.... María nær sendingu á Guðrúnu sem setur hann fyrir þar siglir Elísa á auðum sjó og ætlar að dúndra honum í markið en Enneking er vel vakandi og tekur hann bara á bringuna í vörslunni... Liggur síðan eftir bara og getur ekki andað
66. mín
Crenshaw tekur aukaspyrnu við miðlínuna inn á teig en þar er engin tilbúin
Tindastóll
64. mín
InnGuðrún Þórarinsdóttir
ÚtAldís María Jóhannsdóttir
61. mín
Elísa Bríet tekur spyrnuna inn í teig, Hauk nær skallanum en vel framhjá
FH
61. mín
Gult spjald

Thelma Lóa Hermannsdóttir

Rífur Hrafnhildi niður
57. mín
Andrea Rán tekur hornspyrnuna beint á kollinn á Sandoval en nær ekki að stýra honum á markið
57. mín
Thelma Karen þeysist upp kanntinn ætlar að koma honum fyrir þar sem 2 FH stelpur eru nokkuð ódekkaðar en Pettet vel með á nótunum og kemur í veg fyrir sendinguna
FH
55. mín
MAAAARK!

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (stoðsending: Maya Lauren Hansen)

Alls konar vesen hjá Stólunum að koma boltanum frá, Maya setur hann svo einn, tveir á Andreu sem leggur hann snyrtilega niðri í fjærhornið
53. mín
Elisa Bríet reynir skot fyrir utan teig en það ekki nógu fast og rúllar útaf
FH
52. mín
InnValgerður Ósk Valsdóttir
ÚtMargrét Brynja Kristinsdóttir
48. mín
Thelma Lóa kemst í frábært færi en María kemst fyrir skotið
47. mín
Makal kemst inn í sendingu tilbaka kemur sér í fína fyrirgjafa stöðu en boltinn fer ekki á neinn
46. mín
Elísa Bríet sparkar seinni hálfleiknum á stað
45. mín
FH leiða hérna sanngjarnt 0-3 í hálfleik Tindastóll byrjaði betur fyrstu 10 mínúturnar og áttu 2 dauðafæri, eftir það tók FH öll völdin á vellinum og 3 mörk komu bara á færibandi Það verður fróðlegt að sjá hvernig seinni hálfleikur spilast! Fáum við fleiri mörk?
45. mín
a.m.k. 2 mínútum bætt við venjulegan leiktíma
43. mín
Thelma Lóa alein fær boltan út á vinstri kannti hún reynir skot en í hliðarnetið
41. mín
Þetta hefur verið nokkuð lokaður leikur síðan við fengum þessi þrjú mörk á færibandi en bæði lið hafa þétt línurnar aftur
37. mín
Thelma Karen kemst í ágætis stöðu en Pettet er mætt og kemur honum útfyrir hliðarlínu
33. mín
Thelma með ágætis tilraun frá vítateigshorninu en boltinn framhjá
27. mín
Það er hiti hérna á hliðarlínunni, Lara Margrét fær aðhlynningu og leikmenn hópast til Donna og co. Heyrist vel í Guðna og co. hjá FH þeir eru ekki sáttir með "fundinn" Lara hins vegar hefur lokið leik í dag og Hrafnhildur komin inn á
Tindastóll
27. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtLara Margrét Jónsdóttir
FH
25. mín
ÚFFFF

Margrét Brynja Kristinsdóttir

Slæm sending til baka sem Margrét Brynja kemst inn í, hún hleypur með hann sjálf bara og leggur hann í fjærhornið framhjá Crenshaw í markinu
24. mín
Andrea Rán með hornspyrnu inn í teig en Crenshaw vel á verði og grípur þennan
FH
20. mín
MAAAARK!

Thelma Lóa Hermannsdóttir

Flóðgáttirnar að opnast hérna... svipað mark og áðan bara, boltinn berst á Thelmu Lóu sem setur hann auðveldlega framhjá Crenshaw í markinu
FH
17. mín
MAAAARK!

Berglind Freyja Hlynsdóttir (stoðsending: Thelma Karen Pálmadóttir)

Rétt kona á réttum stað, boltinn berst til hennar frá Thelmu og hún svoleiðis smellhittir hann upp í þaknetið bara
16. mín
Andrea Rán tekur aðra spyrnu inn á fjær, sé ekki hver náði skallanum en alls konar vesen í teignum hérna hjá Stólunum endar þó að lokum í höndunum á Crenshaw
15. mín
Andrea Rán tekur horn og setur hann inn í en brotið á Crenshaw
12. mín
Makala hleypur upp og pressar á Kötlu Maríu en endar á að brjóta
10. mín
ANNAAAÐ Dauðafæri hérna
Elísa átti stungu úr efstu hillu á Makalu sem er nokkurn vegin komin ein gegn markmanni, hún hins vegar virðist ekki treysta hægri fætinum... setur hann út á Birgittu sem tekur skotið og hann syngur í þverslánni!
7. mín
úúúúúffffff
Dauuuuuðafæriiiii! Aldís María nær boltanum setur hann upp á Makölu sem sendir Birgittu eina í gegn, hún setur hann á markið en örfínt framhjá markinu... Þarna munaði engu
6. mín
Thelma Lóa setur boltann upp í horn á nöfnu sína Thelmu Karen en Pettet mætir henni vel
4. mín
Andrea Rán tekur aukaspyrnu á miðjum helmingi Stólanna, fyrirgjöf en Laufey skallar hann aftur fyrir
1. mín
Berglind Freyja sparkar þessu af stað fyrir gestina
Fyrir leik
FH
FH situr í 2. sæti deildarinnar með 35 stig, 11 stigum á eftir toppliði Breiðabliks og 2 stigum á undan Þrótti sem situr í 3. sætinu. FH tapaði fyrir Víking á heimavelli sínum 1-2 í síðustu umferð og þar áður fyrir Breiðablik. FH er öruggt í efri hlutanum fyrir skiptinguna en heyir baráttu um 2. sætið í deildinni við Þrótt sem nartar í hælana á þeim. FH-liðið hlýtur því að mæta sigurþyrstar til leiks, í leit að stigum eftir 2 tapleiki í röð.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Fyrir leik
Tindastóll
Tindastóll situr í dag í næst neðsta sætinu með 17 stig, 1 stigi á eftir Fram í 8. sætinu og 4 stigum á eftir Þór/KA, sem sitja í 7. sætinu. Tindastóll tapaði stórt í síðustu umferð þegar þær steinlágu 6-2 fyrir Val, þar sem Fanndís Friðriksdóttir skoraði meðal annars sína fyrstu þrennu í mörg ár. Tindastóll á ekki möguleika á að koma sér upp í efri hlutann fyrir leikinn í dag en með sigri í dag komast þær upp fyrir Fram ef þær tapa sínum leik. Öll stig eru mikilvæg í þessum síðustu leikjum ef Tindastóll ætlar að spila áfram í deild þeirra bestu að ári, þær hljóta því að mæta vel gíraðar í þennan leik!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarar dagsins
Á flautunni í dag verður Hreinn Magnússon og honum til halds og traust verða Kristofer Bergmann og Jón Reynir Reynisson aðstoðardómarar. Eftirlitsmaður er Garðar Örn Hinriksson og varadómari í kvöld er Ómar Eyjólfsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Besta deildin heilsar
Góðan daginn og veriði hjartanlega velkomin í beina textalýsingu hér frá Sauðárkróki þar sem Tindastóll tekur á móti FH í 18. og síðustu umferðinni áður en deildinni verður skipt upp í efri og neðri hluta. Leikurinn hefst á slaginu 14:00!
Mynd: Snæbjört Pálsdóttir
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.