Fotbolti.net
@hoddi23Hörður Snævar Jónsson
Hörður Snævar Jónsson
Pepsi-deild karla
Stjörnuvöllur
Súld og gustur
Stjarnan
Stjarnan
3 - 2
ÍBV
ÍBV
Bjarki Páll Eysteinsson 4'1 - 01 - 117' Aaron SpearDaníel Laxdal 49'2 - 1Halldór Orri Björnsson (víti) 79'3 - 13 - 286' Tryggvi Guðmundsson
Dómari: Kristinn Jakobsson
Myndir: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir
0. mín
Verið velkominn í beina textalýsingu frá leik Stjörnunnar og ÍBV. Eyjamenn komust á toppinn í síðustu umferð með sigri á Þór en Stjarnan gerði jafntefli við Grindavík á útivelli.
0. mín
Það vekur athygli að bæði Tryggvi Guðmundsson og Finnur Ólafsson sem tóku út leikbann í síðasta leik eru á bekknum í dag en þeir hafa báðir verið lykilmenn hjá liðinu í sumar.
0. mín
Eyjamenn eiga eitt stig á KR-ingana sem mæta Grindavík á heimavelli í kvöld. Það þarf eflaust stórslys að eiga sér stað til að KR-ingar vinni ekki þann leik!
0. mín
Stjarnan hefur skorað 37 mörk í sumar á meðan Eyjamenn hafa skorað fimm mörkum minna. Eyjamenn hafa hinsvegar fengið 17 mörk á sig en Stjarnan 27 eða tíu meira!
0. mín
Valarþulurinn á Stjörnuvelli stingur uppá Þjóðhátiðarlaginu árið 2012 og spilar Stjörnulagið \"Við syngjum og dönsum og lyftum bikurum\" segir í laginu!
0. mín
Leikmenn ganga inn á völlinn og því styttist í að ballið byrji og við fáum vonandi góða skemmtnu á plastinu í dag!!
1. mín
Leikurinn er hafinn hérna í Garðabæ!
3. mín
Eyjamenn byrja að krafti og Rasmus Christansen skallaði að marki Stjörnunnar af stuttu færi en beint á Ingvar sem greip boltann.
Stjarnan
4. mín
MAAAARK!

Bjarki Páll Eysteinsson

Bjarki Páll er búinn að koma heimamönnum yfir með skalla, hann skallaði að marki ÍBV eftir hornspyrnu og Tryggvi Sveinn stóð fyrir Alberti sem sá boltann seint og illa og í netið fór boltinn!
8. mín
Stjörnumenn héldu að Tryggvi væri búinn að koma heimamönnum í 2-0 en hann var rangstæður en aftur sköpuðu Stjörnumenn hættu eftir hornspyrnu.
ÍBV
17. mín
MAAAARK!

Aaron Spear

Eyjamenn eru búnir að jafna, Aaron Spear var að verki. Matt Garner tók aukaspyrnu á vinstri kanti og setti boltann á fjær á Spear sem tók boltann í fyrsta og setti hann í netið.
22. mín
Stjarnan skapar hættu í hvert skipti sem þeir fá fast leikatriði hvort sem það sé innkast eða hornspyrna.
28. mín
Eyjamenn vilja fá vítaspyrnu þegar Þórarinn Ingi virtist skjóta í hendina á Tryggva Sveini en Kristinn Jakobsson var ekki á sama máli og lét leikinn halda áfram.
34. mín
Það er mikill hraði í leiknum hérna í Garðabæ, gervigrasð er blautt og því er hraðinn á boltanum mikill.
Stjarnan
38. mín
Gult spjald

Garðar Jóhannsson

Garðar fær gullt spjald fyrir að dýfa sér að mati Kristins en var ekki sammála honum.
39. mín
Andri Ólafsson liggur á vellinum og virðist nárinn vera farinn, Finnur Ólafsson er sendur að hita.
ÍBV
42. mín
InnGunnar Már Guðmundsson
ÚtAndri Ólafsson
Andri þarf að fara af velli vegna meiðsla og Finnur kemur inná í hans stað.
ÍBV
43. mín
Gult spjald

Þórarinn Ingi Valdimarsson

Þórarinn Ingi fer í svörtu bókina hjá Kidda Jak!
45. mín
Það er kominn hálfleikur hér í Garðabæ og er staðan jöfn!
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn hérna í Garðabæ en ekki nein breyting var gerð á liðunum, Tryggvi Guðmundsson situr enn á bekknum en hann hlýtur að fara að koma inná innan tíðar.
Stjarnan
49. mín
MAAAARK!

Daníel Laxdal

Frábært mark hjá Daníeli sem vann boltann af Guðmundi Þórarinssyni og sendi á Garðar Jóhannsson sem setti boltann í fyrsta inn fyrir vörnina og Daníel hélt hlaupinu áfram og stakk varnarmenn ÍBV og setti boltann framhjá Alberti í markinu.
58. mín
Eyjamenn eru ekki að ná að svara markinu frá Stjörnunni en það er nægur tími til stefnu. Þá eru KR-ingar komnir yfir í Vesturbæ.
ÍBV
64. mín
InnTryggvi Guðmundsson
ÚtGuðmundur Þórarinsson
Tryggvi er mættur inná!
67. mín
Tryggvi Guðmundsson nálægt því að jafna en varnarmaður Stjörnunnar komst fyrir boltann og í horn.
70. mín
Halldór Orri og Tony Mawejje áttust hérna við, Tony lá eftir á vellinum en Halldór viritsti setja hnéið viljandi í bakið á honum.
Stjarnan
75. mín
InnSindri Már Sigurþórsson
ÚtBjarki Páll Eysteinsson
78. mín
Stjarnan fær vítaspyrnu sem Eyjamenn eru afar óhressir með, Albert Sævarsson er dæmdur brotlegur.
Stjarnan
79. mín
MAAAARK!

Halldór Orri Björnsson

Halldór Orri skorar úr spyrnunni og fer langleiðina með að tryggja Stjörnunni stigin þrjú.
Stjarnan
82. mín
InnAtli Jóhannsson
ÚtÞorvaldur Árnason
ÍBV
86. mín
MAAAARK!

Tryggvi Guðmundsson

Tryggvi er búinn að jafna fyrir Eyjamenn og hefur þar með jafnað markametið sem Ingi Björn Albertsson átti sem eru 126 mörk. Nær Tryggvi að bæta metið í kvöld eða ná Eyjamenn að jafna.
ÍBV
87. mín
InnKjartan Guðjónsson
ÚtBrynjar Gauti Guðjónsson
90. mín
Það eru fjórar mínútur í uppbótartíma!
90. mín
Leik er lokið með 3-2 sigri Stjörnunnar, viðtöl og umfjöllun koma á síðuna innan skams.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.