Fotbolti.net
@fotboltinetLárus Ingi Magnússon
Lárus Ingi Magnússon
Pepsi-deild karla
Nettóvöllurinn
Rigning og þétt gola
Keflavík
Keflavík
1 - 1
Breiðablik
Breiðablik
0 - 119' Tómas Óli Garðarsson Jóhann Birnir Guðmundsson 43'1 - 1
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson. Mjög góður
0. mín
Góðan dag kæru knattspyrnufíklar. Hér fer að hefjast á Nettóvellinum í Keflavík leikur heimamanna og Breiðablik og við verðum að sjálfsögðu með beina textalýsingu. Ve\'rið er afleitt og ólíklegt að það verði margt um manninn á vellinum í dag en hver veit.
0. mín
Kristinn steindórsson var rétt í þessu að haltra til búningsherbergja en við vonum að það sé ekki alvarlegt.
0. mín
Kristinn er tilbúinn í slaginn ef marka má síðustu fréttir.
1. mín
Leikurinn hafinn og það eru heimamenn sem byrja með boltann.
6. mín
leikurinn fer rólega af stað og liðin í vandræðum með að hemja knöttinn á blautu grasinu
10. mín
Blikar eru mikið að fara upp vinstri kantinn þar sem Kristinn Jónsson er að fara illa með Guðjón Árna hvað eftir annað en það vantar allann kraft í menn að gera eitthvað úr því í teignum.
15. mín
Guðmundir steinarsson með gott skot af löngu færi beint úr aukaspyrnu en Sigmar í marki Blika ver vel.
17. mín
Guðmundur Steinarsson með annað hörku skot úr aukaspyrnu en aftur ver Sigmar
Breiðablik
19. mín
MAAAARK!

Tómas Óli Garðarsson

Tómas Óli skorar úr miðjum vítateignum eftir sendingu frá Kristni Jónssyni
28. mín
Blikar bjarga á á línu eftir skot beint úr hornspyrnu frá Guðmundi Steinars. Það var Tómas Óli markaskorari Blika sem bjargaði.
Breiðablik
36. mín
Gult spjald

Ernir Bjarnason

brot og mótmæli í kjölfarið
37. mín
Andri Steinn með gott skot úr aukaspyrnu að marki Blika en enn er það Sigmar sem er rétt staðsettur
40. mín
Keflvíkingar með góða sókn sem endar á skalla í mark Blika frá Hilmari Geir en hann réttilega dæmdur rangstæður
43. mín
Guðmundur Steinars enn að reyna á Sigmar úr aukaspyrnu.
Keflavík
43. mín
MAAAARK!

Jóhann Birnir Guðmundsson

Jóhann átti hörkuskot utarlega úr vítateignum. Boltinn breytti um stefnu af Tómasi Óla og Sigmar kom engum vörnum við.
45. mín
Kominn hálfleikur hér í Keflavík. Staðan er jöfn 1-1 í heldur bragðdaufum leik.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn í myrkrinu í Keflavík.
50. mín
Gunnar Jarl dómari leiksins virtist hafa dæmt vítaspyrnu en Sigurður Óli aðstoðarmaður hans breytti dómnum að því er virðist og Jóhann Birnir fékk gult spjald fyrir leikaraskap.
Keflavík
50. mín
Gult spjald

Jóhann Birnir Guðmundsson

Keflavík
55. mín
Gult spjald

Einar Orri Einarsson

Brot
59. mín
Kristinn Steindórsson í fínu færi en Ómar ver
59. mín
Hilmar Geir í dauðafæri nánast á markteig en Sigmar markmaður Blika ver vel.
60. mín
Hér er allt í gangi. Tómas Óli átti hörkuskalla sem var varinn á marklínu , þaðan barst boltinn til Kristins Steindórssonar sem átti skot í slá. Þrjú dauðafæri á 2 mínútum. Vonandi að þetta sé komið til að vera til enda.
63. mín
Kári Ársælsson með skot að marki Keflavíkur eftir hornspyrnu, en skotið vel framhjá markinu
Breiðablik
64. mín
Gult spjald

Þórður Steinar Hreiðarsson

67. mín
Kristinn Jónsson er enn og aftur að fara illa með Guðjón Árna vinstri bakvörð Keflavíkur. Hann sólaði hann upp úr skónum og átti gott skot en rétt framhjá markinu.
Breiðablik
68. mín
InnElvar Páll Sigurðsson
ÚtAndri Rafn Yeoman
Keflavík
68. mín
InnArnór Ingvi Traustason
ÚtÍsak Örn Þórðarson
Breiðablik
76. mín
Gult spjald

Kristinn Steindórsson

82. mín
Keflvíkingar með þétta pressu við mark Blika þessar mínútur en ná ekki að klára færin
82. mín
Keflvíkingar með þétta pressu við mark Blika þessar mínútur en ná ekki að klára færin
Breiðablik
83. mín
InnOlgeir Sigurgeirsson
ÚtTómas Óli Garðarsson
83. mín
Kristinn Steindórsson í dauðafæri en skot hans slappt og langt framhjá. Þessi hefði dottið í Kópavoginum
Keflavík
86. mín
InnMagnús Sverrir Þorsteinsson
ÚtGuðmundur Steinarsson
Keflavík
86. mín
InnGrétar Ólafur Hjartarson
ÚtJóhann Birnir Guðmundsson
Keflavík
90. mín
Gult spjald

Brynjar Örn Guðmundsson

Breiðablik
90. mín
InnArnar Már Björgvinsson
ÚtÁrni Vilhjálmsson
90. mín
Leik lokið
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.