Fotbolti.net
Besta deildin
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta-deild karla - Neðri hluti
Malbikstöðin að Varmá
Gervigrasið lítur vel út, og það gæti varla verið betra veður miðað við árstíma
Afturelding
Afturelding
1 - 1
Vestri
Vestri
Hrannar Snær Magnússon 76'1 - 01 - 196' Ágúst Eðvald Hlynsson
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Flautumark þýðir að Afturelding er mjög líklegt til að falla

Hvað réði úrslitum?

Afturelding var töluvert betra liðið í dag, en það gekk virkilega illa að koma boltanum yfir línuna. Það tókst loksins en þá gjörbreyttist leikurinn. Vestra liðið opnaði sig töluvert og fór að dæla boltum fram. Afturelding fékk þá nokkur afbragðs færi til að klára leikinn, en það tókst ekki. Það var svo með loka sparki leiksins þar sem Ágúst Eðvald náði að pota boltanum yfir línuna.

Bestu leikmenn

1. Eiður Aron Sigurbjörnsson (Vestri)

Eins og stendur hér fyrir ofan þá gekk Aftureldingu hrikalega illa að nýta sínar stöður sem þeir fengu og það var mikið þökk sé Eiðs og félaga hans í vörninni. Eiður skallaði ófáa bolta frá marki og var bara almennt fyrir.

2. Hrannar Snær Magnússon (Afturelding)

Skorar virkilega gott mark, og hefði líkast til átt að skora fleiri. Hins vegar gerði hann vel að koma sér í þau færi sem hann fékk þótt hann nýtti ekki öll.

Atvikið

Flautumarkið var hádramatískt. Aukaspyrna á miðjum vallarhelmingi Aftureldingar sem Jeppe Pedersen lyftir á fjærstöngina. Pétur Bjarnason nær skallanum í átt að marki en Jökull ver boltann, hann ýtir hins vegar boltanum beint aftur út í teig og Ágúst nær að pota boltanum í opið markið.

Hvað þýða úrslitin?

Vestri nær að halda sér stigi fyrir ofan KR og þeir eru því að fara í hreinan úrslitaleik við KR í næsta leik um að halda liðinu í efstu deild. Afturelding þarf hins vegar að treysta á jafntefli í leik Vestra gegn KR, og svo þurfa Mosfellingar að vinna upp á Skaga. Það er eina sviðsmyndin sem heldur Aftureldingu í efstu deild.

Vondur dagur

Færanýtingin hjá Aftureldingu sérstaklega seint í leiknum var ekki góð. Ef Luc-Martin Kassi hefði til dæmis nýtt stöðurnar sem hann fékk seint í leiknum hefði þetta mögulega verið sannfærandi sigur Aftureldingar. Arnór Gauti og Hrannar Snær fengu einnig góðar stöður þarna í lokin. Svo er spurning hvort Jökull Andrésson hefði getað gert betur í markinu, þar sem hann ýtir boltanum beint aftur út í teig þegar hann ver frá Pétri Bjarnasyni.

Dómarinn - 8

Nokkur smáatriði sem maður var ósammála en heilt yfir mjög vel dæmdur leikur hjá Ívari og teyminu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.