Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla - Neðri hluti
Meistaravellir
Sjö gráður, grátt yfir og létt gola
KR
KR
2 - 1
ÍBV
ÍBV
Aron Sigurðarson (víti) 55'1 - 01 - 157' Oliver HeiðarssonEiður Gauti Sæbjörnsson 63'2 - 1
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: KR-ingar eru með örlögin í sínum eigin höndum

Hvað réði úrslitum?

KR-ingar voru með yfirhöndina meirihluta leiks þó svo að gestirnir höfðu fengið góð færi snemma leiks. Zabitowski í marki ÍBV var í ham í marki Eyjamanna en lét þó plata sig út í nokkurt rugl er hann togaði í og hrinti Guðmundi Andra í vítadómnum, sem KR skoraði svo úr. ÍBV svaraði þó um hæl eftir mistök hjá markverðinum hinum megin á vellinum. Það var þó Eiður Gauti sem skoraði sigurmarkið með laglegum skalla. Eyjamenn ógnuðu lítið eftir það og niðurstaðan sanngjarn og nauðsynlegur sigur KR-inga.

Bestu leikmenn

1. Aron Sigurðarson

Aron auðvitað potturinn og pannan í sóknarleik KR-inga í dag og hefur verið það í allt sumar. Átti sláarskot í fyrri hálfleik, skoraði úr víti og var mjög skapandi.

2. Finnur Tómas Pálmason

Gef Finni þessa nafnbót. Eftir að hafa verið harðlega gagnrýndur eftir síðustu umferð steig hann upp í dag og var virkilega flottur og öruggur í sínum aðgerðum í vörn KR. Guðmundur Andri fær tilnefningu fyrir að sækja vítið en hann átti einnig þátt í rauða spjaldinu á Þorlák Árnason, þjálfara ÍBV.

Atvikið

Þorlákur Árnason var rekinn af velli um miðbik síðari hálfleiks. Hann segir Guðmund Andra hafa látið einhver ófögur orð falla við sig en hvorugur þeirra vildi greina frá hver orðin voru. Við það reiddist Þorlákur sem mótmælti vítadómnum sem Eyjamenn fengu á sig og í kjölfarið fékk hann að líta rauða spjaldið. Þorlákur var vægast sagt ósáttur við dóminn og í viðtali eftir leik sagði hann að það væri allt í lagi að fá smá virðingu og að hún ætti að ganga í báðar áttir, frá dómurum til þjálfara.

Hvað þýða úrslitin?

Það verður úrslitaleikur á Ísafirði næsta laugardag. KR þarf sigur en Vestra gæti dugað jafnteflið skyldi Afturelding ekki vinna ÍA.

Vondur dagur

Zapytowski, markvörður ÍBV, lét Guðmund Andra komast í hausinn á sér og gerðist brotlegur í sínum eigin teig þegar reiðin náði hámarki. KR-ingurinn hafði náð að æsa í markverðinum í upphafi leiks eftir að hann fór létt í Zapytowski í upphafi leiks. Guðmundur er eflaust ekki skemmtilegasti mótherji sem hægt er að mæta, en hann gerði vel þarna og uppskar vítaspyrnu.

Dómarinn - 6

Helgi Mikael gat ekki sleppt því að dæma vítaspyrnu á Zapytowski eftir að hann togaði og hrinti Guðmundi Andra í teig ÍBV. Guðmundur Andri lét einhver orð falla í garð Láka Árna, þjálfara ÍBV, og misstu þeir af því. Miðað við viðbrögð Láka hlýtur að vera eitthvað til í þessu hjá honum og því dreg ég þá niður fyrir það. Heilt yfir ágætis leikur þrátt fyrir skrýtna dóma á köflum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.