Fotbolti.net
Besta deildin
@danielmagg77Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
Besta-deild karla - Neðri hluti
Greifavöllurinn
4° hiti og skýjað. Flottar aðstæður!
KA
KA
5 - 1
ÍA
ÍA
0 - 17' Baldvin Þór BerndsenBirgir Baldvinsson 18'1 - 1Hallgrímur Mar Steingrímsson 22'2 - 1Ingimar Torbjörnsson Stöle 66'3 - 1Ásgeir Sigurgeirsson 83'4 - 1Hallgrímur Mar Steingrímsson 85'5 - 1
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Öruggir Skagamenn heillum horfnir á Akureyri

Hvað réði úrslitum?

KA menn voru heilt yfir betri í leiknum. Eftir stórkostlegt mark Baldvins svöruðu heimamenn eins vel og hægt var með tveimur mörkum á skömmum tíma. Í seinni hálfleik reyndu gestirnir frá Akranesi hvað þeir gátu að banka á dyrnar, en KA liðið var þétt til baka og hefðu svo hæglega getað skorað fleiri mörk.

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)

Stórkostlegur í dag. Tvö mörk og stoðsending frá galdramanninum. Seinna markið er eitt af mörkum ársins.

2. Ingimar Torbjörnsson Stöle (KA)

Átti glimrandi leik í dag. Lúsiðinn án boltans, ásamt því að skora og leggja upp. Frábær.

Atvikið

Það er ekki hægt að horfa framhjá seinna marki Hallgríms. Þvílík gæði.

Hvað þýða úrslitin?

Eftir flautumark Vestra gegn Aftureldingu er það staðfest að ÍA er öruggt með sæti sitt í Bestu-deild karla. Þær voru því býsna blendnar tilfinningarnar í leikslok, en höfuðmarkmiði Lárusar Orra og teymi hans er náð. KA menn fara til Vestmannaeyja og spila þar við ÍBV. KA er með 36 stig í efsta sæti neðri hlutans, en Eyjamenn eru með 33 stig í 2. sætinu eftir tap gegn KR í dag.

Vondur dagur

Skagaliðið í heild sinni fær þennan stimpil. Mörkin tvö sem að liðið fær á sig í fyrri hálfleik voru afar ódýr, en þeim er líkast til alveg sama svona þegar á heildarmyndina er litið. Liðið er öruggt með sæti sitt og getur horft til framtíðarinnar núna.

Dómarinn - 8

Flottur í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.