Fotbolti.net
Besta deildin
@GunnarBjarturGunnar Bjartur Huginsson
Valur
Valur
Besta-deild karla - Efri hluti
N1-völlurinn Hlíðarenda
4 - 4
FH
FH
0 - 16' Sigurður Bjartur Hallsson0 - 215' Sigurður Bjartur HallssonAdam Ægir Pálsson 23'1 - 2Sigurður Egill Lárusson (víti) 40'2 - 2Tryggvi Hrafn Haraldsson 45'3 - 23 - 364' Ísak Óli ÓlafssonLúkas Logi Heimisson 84'4 - 34 - 486' Sigurður Bjartur Hallsson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Siggarnir settu mark sitt á átta marka leik á Hlíðarenda

Hvað réði úrslitum?

FH-ingar gerast auðvitað sekir um einstaklingsmistök varnarlega í leiknum. Í fyrsta lagi mistökin sem Grétar Snær gerði, þegar Valsmenn fengu víti. Svo þegar boltinn lak í gegnum fætur Arngríms í þriðja marki Vals. Varð til þess að Valur kom til baka og jafntefli niðurstaðan.

Bestu leikmenn

1. Sigurður Bjartur Hallsson

Sigurður Bjartur Hallsson var augljóslega besti maður vallarins. Þrenna. Þarf að segja eitthvað meira?

2. Sigurður Egill Lárusson

Hann var ótrúlega góður í dag. Þetta eru svo sannarlega skilaboð til Vals, sem tóku ákvörðun um að endurnýja ekki samstarfið við hann. Skorar og leggur upp.

Atvikið

Atvikið var klárlega þegar Sigurður Bjartur Hallsson skoraði fyrsta markið. Það kom algerlega gegn gangi leiksins og kom þá til með að galopna leikinn. Leiddi til þess að leikurinn varð skemmtilegri en þetta var einnig gríðarlega mikilvægt fyrir FH. Fram að markinu voru heimamenn töluvert líklegri aðilinn.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Valsarar haldi sem þéttast í annað sætið en eru ekki búnir að tryggja það endanlega. FH-ingar sitja enn í 5. sæti og keppast við Fram um það.

Vondur dagur

Skrifast auðvitað á vörn FH í leiknum. Hægt að taka Grétar Snæ út fyrir sviga í þeim efnum. Hann gerist sekur um einstaklega heimskulegt brot þegar hann braut á Hólmari Erni, sem leiddi til þess að Valsarar fengu víti og jöfnuðu leikinn. Fá í þokkabót á sig þrjú mörk.

Dómarinn - 9

Þetta var mjög vel dæmdur hjá Sigurði Hirti. Dæmdi réttilega vítaspyrnu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.