Leik lokið!
Þá flautar Sigurður Hjörtur til leiksloka.
97. mín
Bjarni Guðjón á skot en það fer framhjá markinu.
96. mín
Bjarni Guðjón á fína takta en FH-ingar negla boltanum svo yfir.
93. mín
Liðin virðast ætla að skilja að með jafntefli.
90. mín
Sjö mínútum bætt við
90. mín
Er sigurmark í loftinu?
89. mín
InnBirkir Jakob Jónsson
ÚtAlbin Skoglund
89. mín
InnBragi Karl Bjarkason
ÚtDagur Örn Fjeldsted
86. mín
Nei þetta er ekki búið!!
Sigurður Bjartur Hallsson (stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson)
Kjartan Kári með frábæra fyrirgjöf beint á hausinn á Sigga Hall sem skorar!!84. mín
Eru þeir að klára þetta?!
Lúkas Logi Heimisson
Lúkas Logi fær boltann út á vinstri, kemur inn á völlinn og afgreiðir þetta ótrúlega vel í fjær!!81. mín
Dauðafæri!!
Rétt fyrir þessar skiptingar fengu Valsarar færi til að gera út af við leikinn. Albin Skoglund skallaði rétt yfir.
81. mín
InnEinar Karl Ingvarsson
ÚtTómas Orri Róbertsson
81. mín
InnAhmad Faqa
ÚtGrétar Snær Gunnarsson
81. mín
InnBirkir Valur Jónsson
ÚtArngrímur Bjartur Guðmundsson
77. mín
Gult spjald
Bjarni Mark Antonsson
74. mín
InnOrri Sigurður Ómarsson
ÚtMarius Lundemo
74. mín
InnLúkas Logi Heimisson
ÚtAdam Ægir Pálsson
74. mín
InnBjarni Mark Antonsson
ÚtJakob Franz Pálsson
73. mín
Valsarar sækja horn.
72. mín
Leikurinn hefur róast töluvert og kannski bara eðlilegt.
70. mín
InnBjörn Daníel Sverrisson
ÚtBaldur Kári Helgason
64. mín
Þeir eru búnir að jafna!
Ísak Óli Ólafsson
Kjartan Kári með hornspyrnu inn á teiginn sem Stefán kýlir burt á Baldur Kára sem á skot sem fer af vörn Vals og endar með því að Ísak Óli skallar knöttinn inn.62. mín
Gult spjald
Marius Lundemo
Rífur Sigga Hall niður sem var á alvöru siglingu upp völlinn.56. mín
Nakkim liggur eftir og fær aðhlynningu.
53. mín
Það eru heimamenn sem byrja þetta betur. Þeir halda vel í boltann.
51. mín
Stefán stendur upp og heldur áfram.
48. mín
Stefán Þór Ágústsson liggur eftir og fær aðhlynningu.
46. mín
Þá er þetta farið af stað aftur!
45. mín
Þá flautar Sigurður Hjörtur til hálfleiks! Ansi viðburðaríkur hálfleikur að baki.
45. mín
Hvað er að gerast í þessum leik?!
Tryggvi Hrafn Haraldsson (stoðsending: Sigurður Egill Lárusson)
Sigurður Egill á frábæra sendingu í gegn sem lekur einhvern veginn í gegnum Arngrím en hann gerist sekur um mistök þarna. Boltinn endar svo hjá Tryggva Hrafni sem afgreiðir þetta vel. Þeir eru búnir að snúa þessu við!40. mín
Hann jafnar metin!
Sigurður Egill Lárusson
Goðsögnin á Hlíðarenda skorar af miklu öryggi gegn Rosenörn! Rosenörn fór í rétt horn en spyrnan óverjandi,39. mín
Valsarar eru að fá víti!!
Grétar Snær rífur niður Hólmar Örn inn í teignum eftir aukaspyrnu! Mjög heimskulegt brot hjá Grétari sem býður hættunni heim með þessu. Augljóst víti.
34. mín
Bjarni Guðjón fær boltann vel fyrir utan teig og lætur vaða en skotið vel yfir.
32. mín
Gestirnir fá horn.
30. mín
Adam Ægir fær hann og gefur hann til vinstri á Jónatan Inga sem kemur á mikilli siglingu en skotið frá honum rétt framhjá!
25. mín
Þvílík skemmtun sem við erum að fá hérna á N1-vellinum. Þetta er eins og borðtennisleikur.
23. mín
Þvílíkur leikur!!
Adam Ægir Pálsson
Tryggvi Hrafn gefur boltann út á vinstri á Adam Ægi sem hafði allt pláss í heiminum. Hann kemur svo inn á völlinn og slúttar þessu alveg út við stöng fjær. Sýndist þetta fara í einhverja varnarmenn FH.21. mín
Þetta reyndist vera Sigurður Egill en hann er kominn á lappir aftur.
19. mín
Það er einhver leikmaður Vals sem liggur eftir og fær aðhlynningu. Sé ekki nákvæmlega hver þetta er.
15. mín
Þeir tvöfalda forystuna!!
Sigurður Bjartur Hallsson (stoðsending: Tómas Orri Róbertsson)
Tómas Orri vinnur boltann á miðjunni og kemur með fastan bolta meðfram jörðinni beint á Sigurð Bjart sem slúttar þessu frábærlega! Hvað er að gerast í varnarleik Vals? Sigurður Bjartur er að jarða þá.10. mín
Ekki langt frá því að tvöfalda forystuna
Það kemur góður in-swing boltinn inn á teiginn eftir hornspyrnu og eftir smá darraðardans nær Siggi Hall að pota í boltann en Valsarar hreinsa nánast af línunni.
8. mín
Valsmenn eru búnir að vera miklu betri og nánast allan tímann með boltann en svo kemur ein opnun og FH-ingar refsa.
6. mín
Þruma úr heiðskíru lofti!
Sigurður Bjartur Hallsson (stoðsending: Baldur Kári Helgason)
Djöfull var þetta vel tekið hjá Sigga Hall maður lifandi! Arngrímur lyftir boltanum inn fyrir á Sigurð Bjart sem neglir þessu í netið!5. mín
Valsarar komast í góða stöðu inni á teignum en Tryggvi skallar framhjá.
4. mín
Valsarar fá horn.
1. mín
Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Lítið undir í þessum leik og vonandi fáum við opinn og skemmtilegan markaleik. Tryggi Hrafn Haraldsson er líklegur til að skora og einnig vítaskytta valsliðsins. Stuðullinn á hann er 2.50 á Epic.
Fyrir leik
Heimir Guðjónsson gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu. Mathias Rosenörn kemur aftur í markið eftir leikbann. Einnig koma Grétar Snær Gunnarsson og Arngrímur Bjartur Guðmundsson inn í byrjunarlið FH. Daði Freyr Arnarsson, Birkir Valur Jónsson og Ahmad Faqa fá sér sæti á bekknum.
Rosenörn snýr aftur í markið

Fyrir leik
Valur sigraði Stjörnuna 3-2 fyrir landsleikjagluggann og Túfa stillir upp sama byrjunarliði. Það þýðir að Sigurður Egill Lárusson byrjar í sínum síðasta heimaleik fyrir félagið.
Sigurður Egill tilkynnti á föstudag að félagið hefði ákveðið að bjóða honum ekki nýjan samning og hann yfigefur því Val eftir tímabilið. Hann varð í sumar leikjahæsti leikmaður í sögu Vals í efstu deild karla.
Sá leikjahæsti byrjar í síðasta heimaleiknum

17.10.2025 19:50
Siggi Lár: Ég sá fyrir mér að enda ferilinn með Val en því miður stjórna ég því ekki
Fyrir leik
FH-ingar
FH-ingar sitja í 5. sæti deildarinnar og hafa því litlu að keppa, nema þá bara að halda í þetta fimmta sæti. Framarar eru nefnilega jafnir þeim að stigum. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig þessi tvö lið mæta til leiks í kvöld.

Fyrir leik
Valsarar
Valur siglir lygnan sjó í Bestu deild karla en þeir sitja í öðru sæti - tíu stigum á eftir Víkingi en eru samt sem áður með tryggt evrópusæti. Þeir eru því ekki að keppa um neitt, nema annað sætið en Stjarnan er þremur stigum á eftir Val.

Fyrir leik
Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá N1-vellinum á Hlíðarenda á þessum fína sunnudegi!





