Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
KR
KR
Besta-deild karla - Neðri hluti
Meistaravellir
Sjö gráður, grátt yfir og létt gola
2 - 1
ÍBV
ÍBV
Aron Sigurðarson (víti) 55'1 - 01 - 157' Oliver HeiðarssonEiður Gauti Sæbjörnsson 63'2 - 1
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
Lífsnauðsynlegur sigur KR-inga!
Helgi Mikael flautar til leiksloka, KR-ingar fara með sigur af hólmi. En Vestri jafnaði metin undir lok leiks í Mosfellsbæ, staðan er þó enn óbreytt fyrir KR-inga - Þeir þurfa sigur gegn Vestra um næstu helgi.
ÍBV
96. mín
Gult spjald

Nökkvi Már Nökkvason

Brýtur á Aroni Sig og uppsker gult spjald, nú hljóta KR-ingar að vera búnir að klára þetta!
95. mín
KR-ingar reyna að halda í boltann og svæfa leikinn.
94. mín
Gabríel Snær með þrumuskot af löngu færi en Zapytowski ver í marki gestanna.
ÍBV
93. mín
InnÞorri Heiðar Bergmann
ÚtOliver Heiðarsson
ÍBV
93. mín
InnNökkvi Már Nökkvason
ÚtJorgen Pettersen
92. mín
Amin Cosic dansar með boltann fyrir utan teig ÍBV og fer í skotið sem Zapytowski ver örugglega.
90. mín
Ef ÍBV jafnar...
Þá þarf KR sigur gegn Vestra um næstu helgi og að treysta á að Afturelding tapi gegn ÍA sem væru þá sloppnir við fall.
90. mín
Fimm mínútum bætt við
KR
90. mín
Gult spjald

Ástbjörn Þórðarson

Ástbjörn brotlegur utarlega á sínum eigin vallarhelmingi, ÍBV fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu. Boltinn endar í krumlunum á Halldóri Snæ, markverði KR.
ÍBV
89. mín
Gult spjald

Hermann Þór Ragnarsson

84. mín
ÍBV fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu. Boltinn fer manna á milli í og við teiginn. Gestirnir gefa fyrir og Alex Freyr skallar boltann framhjá.
83. mín
Aron Sig gefur fyrir úr aukaspyrnunni, boltinn á Finn Tómas sem skallar boltann á markið en Zapytowski ver örugglega.
ÍBV
83. mín
Gult spjald

Mattias Edeland

Brýtur af sér á miðjum velli.
80. mín
Afturelding komið yfir!
Tíðindi úr Mosfellsbæ. Heimamenn eru komnir yfir gegn Vestra. Þetta þýðir að ef leikar enda líkt og stendur mun KR vera í fallsæti fyrir lokaumferðina. Sigur gegn Vestra í lokaumferðinni myndi tryggja KR áfram í Bestu-deildinni á næsta tímabili.
KR
78. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtGuðmundur Andri Tryggvason
KR
78. mín
InnAmin Cosic
ÚtLuke Morgan Conrad Rae
77. mín
Aftur ver Zapytowski vel!
KR-ingar fá hornspyrnu, boltinn á Præst sem skallar á markið en Zapytowski ver frábærlega!
ÍBV
76. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtSverrir Páll Hjaltested
ÍBV
76. mín
InnBjarki Björn Gunnarsson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
75. mín
DAUÐAFÆRI KR-INGA!
Matthias Præst fær boltann við markteig eftir frábæran undirbúning Luke Rae, en Præst lætur verja frá sér. Illa farið með sannkallað dauðafæri!
72. mín
Aron Sig sker inn á völlinn og þrumar boltanum á markið en Zapytowski ver örugglega í marki ÍBV.
KR
70. mín
Gult spjald

Gabríel Hrannar Eyjólfsson

Gabríel fær gult fyrir dýfu.
ÍBV
68. mín
Láki rekinn af velli - „Veistu hvað leikmaðurinn sagði við mig?“

Þorlákur Már Árnason

Neitar í fyrstu að fara frá bekknum! Mótmælti eitthvað við dómarana. Í útsendingu Sýnar heyrist Láka segja: „Veistu hvað leikmaðurinn sagði við mig?“ við Arnar Þór, fjórða dómara leiksins.
66. mín
Staðan
Ef það endar jafnt í Mosfellsbæ og KR siglir hér stigunum þremur heim þá er KR í 11. sæti fyrir lokaumferðina. Sigur gegn Vestra um næstu helgi myndi tryggja þeim í Bestu-deildinni á næsta tímabili ef staðan helst svona.
ÍBV
65. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtFelix Örn Friðriksson
KR
65. mín
InnÁstbjörn Þórðarson
ÚtAlexander Helgi Sigurðarson
KR
63. mín
KR-ingar leiða á ný!

Eiður Gauti Sæbjörnsson (stoðsending: Hjalti Sigurðsson )

Hjalti Sigurðsson með fyrirgjöf á fjærsvæðið beint á Eið Gauta sem stýrir boltanum frábærlega yfir Zapytwoski og í fjærhornið. Það hefur heldur betur lifnað yfir þessu!
ÍBV
57. mín
ÞEIR SVARA STRAX!

Oliver Heiðarsson

Sverrir Páll með fyrirgjöf í teiginn sem Halldór Snær missir, Oliver Heiðars eins og hrægammur í teignum ræðst á boltann og þrumar honum í þaknetið. Ja hérna hér, þetta minnir mann á leikinn gegn Aftureldingu fyrir landsleikjahlé. Þetta mark skráist alfarið á Halldór Snæ.
KR
55. mín
FYRIRLIÐINN ÖRUGGUR!

Aron Sigurðarson

Smyr boltann út við stöng og sendir Zapytowski í rangt horn. KR leiðir!
ÍBV
54. mín
KR FÆR VÍTASPYRNU!!!

Marcel Zapytowski

Glórulaus Zapytowski! Hrindir og togar í Guðmund Andra í hornspyrnu KR.
53. mín
Guðmundur Andri í frábæru færi!
Guðmundur Andri með skot úr teignum sem fer af varnarmanni og þaðan aftur fyrir. KR fær hornspyrnu.
52. mín
Gabríel Hrannar með skot af löngu færi sem fer langt, langt framhjá marki gestanna.
ÍBV
50. mín
Sverrir í bókina

Sverrir Páll Hjaltested

Sverrir fer í fólskulega tæklingu á Alexander Helga sem liggur óvígur eftir. Stuðningsmenn KR ósáttir, vildu sjá það rauða fara á loft. Eftir stutta aðhlynningu getur Alexander haldið leik áfram.
49. mín
Heimamenn ógna!
KR-ingar keyra hratt upp, boltinn berst á Gabríel Hrannar sem á stórhættulega sendingu fyrir mark Eyjamanna en enginn KR-ingur mættur til að reka stóru tánna í boltann!
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Heimamenn byrja með boltann.
45. mín
ÍBV með flesta í liði ársins í neðri hlutanum
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var til gamans valið lið ársins úr liðum í neðri hluta Bestu deildarinnar. ÍBV á þar flesta fulltrúa, fjóra leikmenn auk þess sem Þorlákur Árnason var valinn þjálfari ársins í neðri hlutanum. Marcel Zapytowski, Sigurður Arnar Magnússon, Arnór Ingi Kristinsson og Alex Freyr Hilmarsson eru allir í liðinu. KR á einn fulltrúa en það er Aron Sigurðarson.
   16.10.2025 16:10
Völdu lið ársins úr neðri hlutanum - Hallgrímur bestur
45. mín
Staðan
Staðan er einnig markalaus í Mosfellsbæ, ef leikar enda þannig þýðir það að KR á enn möguleika á að halda sér uppi fyrir lokaumferðina.
45. mín
Hálfleikstölfræði af Sýn:
Með boltann: 74% - 26% Marktilraunir: 9-9 Skot á mark: 3-2 Hornspyrnur: 5-1 Rangstöður: 1-2 Heppnaðar sendingar: 241-53
45. mín
Markalaust í hálfleik
Helgi Mikael flautar til loka þessara fyrri hálfleiks, KR-ingar voru byrjaðir að banka fastar og fastar. Eyjamenn fengu þó engu að síður besta færi fyrri hálfleiks þegar Oliver Heiðars brenndi af er hann slapp einn í gegn.
45. mín
Einni mínútu bætt við.
45. mín
Frábær varsla Zapytowski!
Aron Sig lyftir boltanum í teiginn á Eið Gauta sem skallar boltann í nærhornið en Zapytowski er kvikur á fæti og ver vel.
42. mín
Aftur ógna KR-ingar!
Fyrirgjöf inn í teiginn og Aron Sig rís hæst og skallar boltann rétt framhjá marki gestanna.
41. mín
KR-ingar nálægt því að brjóta ísinn!
Góð sókn heimamanna endar með því að Luke Rae sker boltann út í teiginn á Præst sem setur boltann rétt framhjá marki ÍBV!
38. mín
Alex Freyr með þrumuskot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá marki KR-inga!
36. mín
KR fær hornspyrnu. Aron Sig kemur boltanum inn í teiginn en Zapytowski handsamar hann.
33. mín
Luke Rae sker inn á vinstri og lætur vaða við vítateigshornið, en boltinn hátt yfir mark gestanna.
29. mín
Hjalti Sigurðsson hangir utan í Oliver Heiðarssyni sem æðir upp völlinn, brýtur nánast á honum í tvígang. Loks dettur Oliver og brot dæmt. En af einhverjum óskiljanlegum ástæðum sleppir Helgi Mikael að spjalda Hjalta, og færir brotið aftur um þrjátíu metra. Sjálfur hef ég sjaldan séð jafn mikið gult spjald.
27. mín
KR fær hornspyrnu en ekkert kemur upp úr henni.
KR
25. mín
Gult spjald

Alexander Helgi Sigurðarson

Stöðvar skyndisókn og fer í bókina góðu.
24. mín
SLÁIN!
KR fær aukaspyrnu um 25 metrum frá marki gestanna. Aron Sig lætur vaða og hamrar boltanum í þverslána og þaðan fer hann yfir. Þetta hefði verið eitthvað, þvílíkt skot!
21. mín
Gestirnir fá hornspyrnu, boltinn dettur fyrir fyrirliðann, Alex Frey, í teignum og hann hamrar boltanum hátt yfir mark KR-inga.
20. mín
Frábær tækling!
Vicente Valor með frábæra takta og skeiðir upp völlinn, hann þræðir Oliver Heiðars í gegn sem er við það að sleppa í gegn en Finnur Tómas á frábæra tæklingu og kemur hættunni frá.
17. mín
ÍBV í góðri sókn, boltinn berst á Oliver Heiðarsson í teig KR sem tekur skot á lofti en boltinn langt framhjá marki heimamanna.
KR
12. mín
Fyrirliðinn fær fyrsta spjaldið

Aron Sigurðarson

Aron rífur Hermann Þór niður og uppsker gult spjald að launum.
12. mín
KR-ingar fá tvær hornspyrnur en nýta þær illa.
10. mín
KR-ingar fá aukaspyrnu á besta stað
Rétt fyrir utan D-bogann. Aron Sig þrumar boltanum á markið en Zapytowski ver frábærlega. Boltinn dettur fyrir Guðmund Andra sem skýtur í varnarmann og yfir.
8. mín
ÍBV Í DAUÐAFÆRI!
Oliver Heiðarsson sleppur einn í gegn, keyrir að markinu og tekur sér dágóðan tíma. Hann fer loks í skotið en Halldór Snær lokar vel og ver frábærlega!
8. mín
KR-ingar fá hornspyrnu, Aron Sig tekur en Eyjamenn koma boltanum frá.
7. mín
Eiður Gauti fellur við í teignum eftir að Hermann Þór stjakaði örlítið við honum og KR-ingar heimta vítaspyrnu, voðalega lítið í þessu.
6. mín
Pollrólegur Halldór Snær
Halldór Snær, markvörður KR, fær sendingu til baka og er svellkaldur á boltanum. Bíður eftir pressunni og gefur á samherja rétt áður en að Oliver Heiðarsson nær að komast í boltann.
2. mín
KR ógnar!
Frábært uppspil heimamanna endar með að Gabríel Hrannar á stórhættulega fyrirgjöf inn í teiginn en varnarmaður ÍBV kemur boltanum frá. Boltinn dettur út á Aron Sig sem lætur vaða en skotið framhjá. Helgi Mikael stoppar því næst leikinn vegna meiðsla Zapytowski.
1. mín
Gestirnir hefja leik!
Þetta er farið af stað, ÍBV sækir í átt að KR-heimilinu. Svarthvítir heimamenn gegn bláklæddum Eyjamönnum.
Fyrir leik
Heyr mína bæn ómar hér á Meistaravöllum, liðin ganga til vallar og stuðningsmennirnir þegar byrjaðir að syngja. Það er eitthvað í loftinu!
Fyrir leik
Epic early á KR-inga hér í dag. 1.60 ef KR-ingar komast yfir á einhverjum tímapunkti.
Fyrir leik
ÍBV endurheimtir fyrirliðann
Alex Freyr Hilmarsson snýr aftur í lið gestanna eftir að hafa verið utan hóps í síðasta leik. Þá gerir Þorlákur Árnason tvær aðrar breytingar, en inn í liðið koma jafnframt þeir Felix Örn Friðriksson og Sverrir Páll Hjaltested. Þeir Elvis Bwomono, Þorlákur Breki Baxter og Arnar Breki Gunnarsson víkja úr byrjunarliði Eyjamanna. Þorlákur Breki er í leikbanni og því er hann utan hóps.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Óskar gerir fjórar breytingar
Óskar Hrafn gerir fjórar breytingar á sínu liði, inn koma þeir Alexander Helgi Sigurðarson, Guðmundur Andri Tryggvason, Matthias Præst og Hjalti Sigurðsson koma allir inn í liðið. Úr liðinu víkja þeir Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Aron Þórður Albertsson, Orri Hrafn Kjartansson og Amin Cosic. Júlíus Mar Júlíusson situr enn á bekknum. Þá hefur KR endurheimt Stefán Árna Geirsson sem er á bekknum í dag. Stefán bæði fótbrotnaði og fór úr ökklalið seint á undirbúningstímabilinu og hefur ekkert spilað síðan þá.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
KR fellur í dag ef...
- KR tapar - KR gerir jafntefli og Vestri vinnur Aftureldingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Hverjar yrðu fjárhagslegar afleiðingar af falli KR?
Fjárhagslegar afleiðingar af mögulegu falli KR er spurning sem eflaust margir velta fyrir sér þessa dagana. Okkar maður Sævar Þór Sveinsson á Utan vallar tók saman skýrslu um væntanlegar afleiðingar færi svo að Stórveldið falli. KR hefur mátt muna fífil sinn fegurri. Ef félagið fellur niður úr Bestu deild karla kemur það ekki til með að gera fjárhagsstöðuna betri en mögulega mun það hreyfa við velunnurum félagsins. Í ljósi fjárhagsstöðu knattspyrnudeildarinnar hljóta velefnaðir Vesturbæingar að hlaupa undir bagga og bæta upp tekjumissinn sem félagið verður af ef það fellur niður úr Bestu deild karla. Lesa má greinina í heild sinni hér að neðan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
KR einu sinni fallið áður
KR hefur aðeins einu sinni fallið úr efstu deild en það var sumarið 1977. KR hefur verið lengst allra núverandi félaga í efstu deild. Athyglisvert er að örlög KR 1977 réðust eftir 1-2 tap, einmitt gegn ÍBV, á Laugardalsvelli 4. ágúst það ár. Liðið átti reyndar enn tölfræðilega möguleika á að forðast fall en alls ekki raunhæfa. Fallvofan hefur lagzt sem mara yfir leikmenn „Vesturbæjarliðið KR er nú á þröskuldi falls í 2. deild - hyldýpi 2. deildar blasir við eftir ósigur gegn ÍBV á Laugardalsleikvangi í gærkvöld, 1-2. KR hafði ekkert fram að færa - ekkert, ekki einu sinni baráttu," sagði í dagblaði Vísis fyrir 48 árum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
„Eyjamenn dauðlangar að fella KR-inga“
ÍBV er í öruggu sæti en það sem drífur þá áfram er eflaust baráttan um hinn eftirsótta Forsetabikar. Eyjamenn eru efstir í neðri hlutanum með jafn mörg stig og KA en betri markatölu. Valur Gunnarsson, sérfræðingur Fótbolta.net sagði í útvarpsþættinum Fótbolti.net að gestirnir séu ekki ólíklegri í þessum leik þrátt fyrir að hafa lítið til að keppa upp á. „Miðað við hvernig mótið er að spilast getur maður ekki sagt að Eyjamenn séu eitthvað ólíklegri í þessum leik. Að því sögðu hljóta KR-ingar að mæta dýrvitlausir í þennan leik. Ég bara trúi ekki öðru.“ „Ég veit að Eyjamenn dauðlangar að fella KR-inga. Þeim er ekki vel við KR-inga," sagði Valur og Elvar Geir bætti við: „Þeir líta á KR-inga sem sína erkióvini þó það sé ekki endilega í hina áttina." „Ef ég væri stuðningsmaður ÍBV vildi ég alltaf frekar fá KR úr deildinni en Vestra eða Aftureldingu. Það er miklu meiri ógn af þeim. Við höfum séð það milljón sinnum að lið sem er að brillera, eins og ÍBV hefur gert, hefur tekið niðursveiflur. Manni finnst KR frekar getað spýtt í lófana og styrkt sig," sagði Valur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Allra augu á Meistaravöllum
Heilir og sælir lesendur góðir, verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign KR og ÍBV. Skyldi KR tapa hér í dag, fellur liðið niður í B-deild í fyrsta sinn í 48 ár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
   18.10.2025 06:00
Helgi Mikael dæmir leik KR og ÍBV
Leikir dagsins - Neðri hluti 14:00 Afturelding-Vestri (Malbikstöðin að Varmá) 14:00 KR-ÍBV (Meistaravellir) 14:00 KA-ÍA (Greifavöllurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.