Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Þróttur R.
Þróttur R.
Mjólkurbikar karla
AVIS völlurinn
3 - 1
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Adam Árni Róbertsson 18'1 - 0Aron Snær Ingason 55'2 - 02 - 159' Naim Aaras EL HmaidiBaldur Hannes Stefánsson 65'3 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Þróttarar áfram í Mjólkurbikarnum eftir öruggan sigur

Hvað réði úrslitum?

Víkingar börðust vel, en Þróttarar höfðu einfaldlega meiri gæði á vellinum. Bæði lið eru ennþá að undirbúa sig fyrir deildina sem byrjar ekki strax og því sást alveg að hvorugt lið var komið á fulla ferð.

Bestu leikmenn

1. Sigurður Egill Lárusson (Þróttur)

Sigurður Egill sýndi það strax í fyrsta mótsleik hversu mikill svindlkall hann á eftir að vera í Lengjudeildinni. Tvær frábærar stoðsendingar, svo var hann allt í öllu í færunum sem enduðu ekki í marki líka.

2. Baldur Hannes Stefánsson (Þróttur)

Baldur var sterkur á miðjunni, þetta var baráttu leikur og hann þurfti á köflum að standa í ströngu við Víkingana. Svo skoraði hann eitt gott skalla mark.

Atvikið

Þriðja mark Þróttara kom frekar skömmu eftir að Víkingar minnkuðu muninn í 2-1. Það var mjög mikilvægt fyrir Þróttara að hleypa gestunum ekki inn í leikinn og eftir það var frekar augljóst hvaða lið myndi vinna.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttarar fara áfram í Mjólkurbikarnum og byrja tímabilið sitt vel. Víkingar fara í páskafrí með tap á bakinu, en stutt í æfingaferð hjá þeim.

Vondur dagur

Hægri kantur Víkinga var í veseni varnarlega. Gabríel Þór Þórðarson sem var í hægri bakverði á líkast til eftir að dreyma um Sigurð Egil sem var að hrella hann allan leikinn.

Dómarinn - 8

Engin stór atriði í leiknum, það færðist smá harka í leikinn seint í seinni hálfleiknum en Twana leyfði leiknum að fljóta vel og var ekkert að veifa spjaldinu að óþörfu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.