Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Breiðablik
Breiðablik
Úrslit Lengjubikars kvenna
Kópavogsvöllur
Vindur og kuldi í loftinu, -1 gráður hérna í Kópavoginum.
4 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
Barbára Sól Gísladóttir 6'1 - 0Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 7'2 - 02 - 19' Emma Steinsen JónsdóttirLíf Joostdóttir van Bemmel 34'3 - 1Edith Kristín Kristjánsdóttir 48'4 - 1
Dómari: Bergrós Lilja Unudóttir

SKÝRSLAN: Blikar Lengjubikarmeistarar í óveðri

Hvað réði úrslitum?

Breiðablik voru bara miklu öflugri, þá sérstaklega í seinni hálfleik. Liðin voru frekar jöfn í fyrri hálfleik og áttu bæði liðin sín færi. Blikar nýttu sín betur og voru þau tveim mörkum yfir í lok fyrri hálfleiks. Það versnaði veðrið töluvert í seinni hálfleik og voru þá Víkingur að spila á móti vindi. Það sást að viljinn og orkan hjá Víking stelpunum var nánast enginn eftir að Blikar komust þrem mörkum yfir og vindurinn varð meiri.

Bestu leikmenn

1. Líf Joostdóttir van Bemme

Mjög fjörug í þessum leik. Skoraði mark, skallaði boltann einu sinni í stöngina og var allt í öllu á vellinum.

2. Edith Kristín Kristjánsdóttir

Var líka mjög spræk og skapaði mikið af færum fyrir Breiðablik. Skoraði líka flott mark eftir að hún refsaði Víking fyrir miklu klúðri

Atvikið

Það var ekki mikið af atvökum í þessum leik, nema að það var áhugavert að sjá veðrið hægt og rólega versna og versna því sem lengdi á leiknum. Það var varla ský á lofti þegar leikurinn var flautaður og svo sá maður varla lengra en völlinn þegar það var flautað til leiksloka.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik verða Lengjubikarmeistarar eftir sigur í úrslitaleik.

Vondur dagur

Það vantaði meira upp á hjá Víkingsliðinu. Þær fengu mörg fín færi sem fóru sum bara beint yfir markið sem hefði átt að vera betur nýtt. Að auki kom nokkrum sinnum fyrir að vörnin gaf boltann til leikmenn Blika á mjög vondum stöðum, Blikar refsaði Víkinga einu sinni fyrir þannig mistökum með marki.

Dómarinn - 7

Lítið hægt að segja um dómgæsluna. Það voru smá atriði sem hefðu mátt gera betur eins og dæmt fyrir lítil brot, en annars var þetta bara vel dæmt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.