Fotbolti.net
@fotboltinetEinar Már Þórólfsson
Völsungur
Völsungur
Mjólkurbikar karla
GPG völlurinn
2 - 3
Kormákur/Hvöt
Kormákur/​Hvöt
0 - 143' Snorri Steinn Árnason0 - 248' Hlib HoranTómas Bjarni Baldursson 50'1 - 2Arnar Pálmi Kristjánsson 51'2 - 22 - 392' Guzman Díaz Scarone
Leik lokið!
Kormákur/Hvöt fer áfram!
Gestirnir héldu þetta út með góðri baráttu og fara verðskuldað áfram. Þeir fá heimaleik gegn Breiðablik í næstu umferð.
Völsungur
121. mín
Gult spjald

Elfar Árni Aðalsteinsson

119. mín
Arnar Pálmi á góða fyrirgjöf sem Baltus nær næstum að skalla en Uros grípur boltann
119. mín
Völsungar eiga horn. Baltus kominn inní teig
118. mín
Tíminn er að renna út fyrir heimamenn. Gengur ekkert að brjóta niður vörn gestana.
116. mín
Heimamenn reyna og reyna en sem áður gengur illa að skapa sér færi.
Kormákur/Hvöt
113. mín
InnEyjólfur Örn Þorgilsson
ÚtMoussa Ismael Sidibe Brou
113. mín
Nú er Tómas hársbreidd frá því að sleppa í gegn en Martin bjargar á síðustu stundu.
111. mín
Heimamenn ná loksins að skapa sér færi. Arnar og Steinþór spila vel saman, Arnar rennir boltanum svo út á Tómas sem skýtur framhjá.
109. mín
Seinni hálfleikur hefst eins og sá fyrri endaði. Gestirnir liggja djúpt til baka og verjast vel.
106. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
105. mín
Hálfleikur í framlengingu
Völsungar pressuðu stíft í lok hálfleiksins en gestirnir verjast vel.
Völsungur
102. mín
InnSæþór Orri Skarphéðinsson
ÚtHelgi Elinór Árnason
Helgi fer meiddur útaf eftir slæma byltu.
100. mín
Heimamenn liggja á gestunum þessa stundina en eru þó ekki að ná að skapa sér færi.
98. mín
Völsungar fá hornspyrnu eftir að Uros heldur of lengi á boltanum. Elfar Árni nær fínum skalla en Uros ver.
Kormákur/Hvöt
92. mín
Kormákur/Hvöt eru komnir yfir!

Guzman Díaz Scarone

Guzman fær sendingu inn fyrir og er aleinn gegn markmanni og klárar vel!
91. mín
Framlengingin er hafin
Kormákur/Hvöt gerðu tvær breytingar en ég bara hreinlega sá ekki hverjir komu inná eða fóru útaf.
90. mín
Framlenging
Venjulegum leiktíma er lokið og við erum á leið í framlengingu.
90. mín
90+3
Helgi Elinór svo nálægt því að klára þetta. Flott samspil við Steinþór og gott skot en Uros varði vel. Stefnir í framlengingu
85. mín
Völsungar svo nálægt!
Aftur á Helgi Elinór sprett upp hægri kantinn og gefur fyrir á Arnar Pálma sem á bylmingsskot sem er bjargað á línu, Tómas fær svo frákastið en skýtur hátt yfir markið.
82. mín
Helgi Elinór kemur inná með látum. Fer framhjá þremur mönnum úti hægra megin og á svo fína fyrirgjöf en gestirnar ná að hreinsa.
Völsungur
80. mín
InnHelgi Elinór Árnason
ÚtJón Helgi Jónsson
Kormákur/Hvöt
79. mín
Gult spjald

Pol Morlans Martin

Martin fær gult fyrir brot á Steinþóri. Stoppaði hættulega skyndisókn.
76. mín
Steinþór á stórfurðulega sendingu til baka sem að Moussa nýtir sér og rennir boltanum inn fyrir á Fabian Straudi sem skýtur að marki en Baltus ver vel.
72. mín
Moussa Isamel kemur boltanum inn fyrir vörn Völsung eftir mikla baráttu en Fabian Straudi nær ekki að nýta góða stöðu.
70. mín
Mikill darraðadans í vítateig heimamanna sem endar með að gestirnir fá hornspyrnu sem ekkert kemur úr.
Völsungur
68. mín
InnSteinþór Freyr Þorsteinsson
ÚtElmar Örn Guðmundsson
66. mín
Það er hart barist þessa stundina og sótt á báða bóga en lítið um færi.
58. mín
Elmar Örn nálægt því að komast í færi með miklu harðfylgi en gestirnir bægja hættunni frá.
55. mín
Gestirnir koma boltanum í netið en Moussa Ismael var vel rangstæður.
Völsungur
51. mín
Heimamenn jafna!

Arnar Pálmi Kristjánsson (stoðsending: Elfar Árni Aðalsteinsson)

Þetta tók ekki langan tíma! Elfar Árni vinnur boltann frábærlega og keyrir inná teiginn og leggur boltann út þar sem fyrirliðinn mætir og hamrar hann í netið. Allt jafnt!
Völsungur
50. mín
Völsungar minnka muninn!

Tómas Bjarni Baldursson

Tómas Bjarni mætir á fjærstöngina og skallar boltann í netið.
Kormákur/Hvöt
48. mín
Gestirnir tvöfalda forystuna!

Hlib Horan (stoðsending: Guzman Díaz Scarone)

Guzman Diaz á stórkostlega sendingu inn fyrir vörn Völsungs og Hlib Horan klárar mjög vel.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn. Patrick De Wilde gerir tvöfalda skiptingu í hálfleik.
Völsungur
46. mín
InnKolbeinn Óli Haraldsson
ÚtDavíð Leó Lund
Völsungur
46. mín
InnElfar Árni Aðalsteinsson
ÚtAndri V. Bergmann Steingrímsson
45. mín
Gestirnir leiða sanngjarnt í hálfleik. Hafa heilt yfir verið sterkari aðilinn.
45. mín
Gestirnir nálægt því að bæta við. Fabian Straudi á fínasta skot sem Baltus ver vel.
Kormákur/Hvöt
43. mín
Kormákur/Hvöt taka forystuna!

Snorri Steinn Árnason

Snorri fær sendingu inn fyrir vörn Völsungs og nær að reka tánna í boltann. Baltus er í boltanum en inn fór hann.
Völsungur
39. mín
Gult spjald

Andri V. Bergmann Steingrímsson

Andri fær gult fyrir að stöðva sókn gestanna.
35. mín
Völsungar fá dauðafæri. Andri Valur vinnur boltann úti hægra megin og sendir á frænda sinn Elmar sem er í dauðafæri inni í teig en afgreiðslan með vinstri var ekki nógu góð og Uros ver vel.
34. mín
Gestirnir koma boltanum í netið eftir hornspyrnu en það var brotið á Baltus markmanni og réttilega dæmd aukaspyrna.
Kormákur/Hvöt
30. mín
Gult spjald

Hlib Horan

Hlib fær gult spjald fyrir að brjóta á Xabier.
26. mín
Danijel Djuric leikmaður KA er mættur í stúkuna að styðja gestina. Danijel er frá Blönduósi og eigum við ekki að giska á að Uros Djuric markmaður gestanna sé frændi hans.
25. mín
Gestirnir eru með yfirhöndina þessa stundina en hafa ekki náð að skapa sér alvöru færi.
20. mín
Heimamenn ógna. Arnar Pálmi vinnur boltann hátt á vellinum og finnur Tómas inni í teig sem er í fínu færi en hann hittir boltann afar illa.
18. mín
Gestirnir fá aukaspyrnu á hættulegum stað eftir að boltinn fór í hönd Mbye. Guzman ákveður að gefa fyrir og fyrirgjöfin var arfaslök og Völsungar fá markspyrnu.
15. mín
Nú reynir Guzman Diaz fyrir sér með skoti af löngu færi en Baltus í marki Völsungs á í engum vandræðum með það.
13. mín
Fabian Straudi fær fína sendingu inn fyrir vörn Völsungs og er kominn í ágætis færi en aftur er skot hans máttlítið og Baltus ver vel.
10. mín
Leikurinn fer frekar rólega af stað og lítið gerst á upphafsmínútunum. Jafnræði með liðunum.
4. mín
Gestirnir eiga fyrstu marktilraun leiksins. Hinn nautsterki Moussa Ismael leggur boltann á Fabian Straudi sem á máttlaust skot beint á Baltus í marki Völsungs.
1. mín
Leikur hafinn
Það er búið að hreinsa völlinn og Sigurður Hjörtur Þrastarson dómari hefur flautað leikinn á.
Fyrir leik
Annars eru byrjunarliðin klár. Það helsta markverða er að það eru tvær alvöru kanónur á bekknum hjá heimamönnum, þeir Elfar Árni Aðalsteinsson og Steinþór Freyr Þorsteinsson.
Fyrir leik
Leik seinkað
Leiknum hefur verið seinkað til 13:30 vegna vallaraðstæðna. Sjálfboðaliðar eru í óða önn að hreinsa snjó af vellinum en það náðist ekki í tæka tíð og hefur því leiknum verið seinkað um hálftíma.
Fyrir leik
Patrick De Wilde
Þetta er fyrsti alvöru leikur Völsungs undir stjórn Patrick De Wilde. Belginn tók við liðinu í vetur og eftir vægast sagt áhugavert undirbúningstímabil er komið að alvörunni. Völsungur hefur misst nokkra leikmenn en einnig bætt við sig nokkrum. Þetta verður mjög áhugavert allt saman. Því miður verð ég að viðurkenna að ég veit lítið um lið Kormáks/Hvatar en ég mun gera mitt allra besta hér í dag. Það er auðveldara að fá gefins pening frá flateying en að finna nytsamlegar upplýsingar á nýju heimasíðu KSÍ.
Fyrir leik
Veðrið
Þó að veðrið á landinu sé búið að vera erfitt undanfarið þá er þriggja flösku veður á Húsavík í dag. Svo til logn, glampandi sól og hitastig aðeins undir frostmarki. Við förum ekki fram á meira.
Fyrir leik
Heimamenn í Völsungi spila í Lengjudeildinni í sumar eftir að hafa átt prýðisgott tímabil í fyrra og haldið sér nokkuð sannfærandi uppi. Kormákur/Hvöt spila í 2.deild, að ég held þriðja sumarið í röð.
Fyrir leik
Sigurliðið fær heimaleik gegn Breiðabliki
Góðan dag og velkomin í beina textalýsingu frá GPG vellinum á Húsavík. Hér í dag mætast Völsungur og Kormákur/Hvöt í 2.umferð Mjólkurbikarsins. Það er mikið í húfi í dag þar sem að sigurvegarinn fær heimaleik gegn Breiðabliki í næstu umferð.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.