Fotbolti.net
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Mjólkurbikar karla
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
3 - 1
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Adam Árni Róbertsson 18'1 - 0Aron Snær Ingason 55'2 - 02 - 159' Naim Aaras EL HmaidiBaldur Hannes Stefánsson 65'3 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Leik lokið!
Þróttarar fara áfram í Mjólkurbikarnum! Örugg frammistaða hjá þeim í dag.

Skýrsla og viðtöl væntanleg.
Þróttur R.
90. mín
InnEgill Harðarson
ÚtKolbeinn Nói Guðbergsson
Þróttur R.
90. mín
InnDaníel Karl Þrastarson
ÚtSigurður Egill Lárusson
89. mín
Ingvar Freyr með skotið úr spyrnunni en þessi framhjá.
89. mín
Víkingar fá aukaspyrnu á hættulegum stað.
87. mín
Leiðrétting á aldrinum á þessum strákum sem komu inn á. Þeir eru fæddir 2009 og 2010, kerfið hjá okkur að yngja menn enn frekar að óþörfu.
85. mín
Þróttarar með fína sókn og Örn Bragi í góðri stöðu inn í teig. Hann tekur skotið en í varnarmann.
84. mín
Tveir kornungir að fá frumraun sína hjá Þrótturum. Einn fæddur 2011 og hinn 2010
Þróttur R.
83. mín
InnHallur Emil Hallsson
ÚtBaldur Hannes Stefánsson
Þróttur R.
83. mín
InnLeó Hrafn Elmarsson
ÚtBrynjar Gautur Harðarson
80. mín
Markmannsmistök!
Jón Kristinn með sendingu út frá marki beint á Aron Snæ. Aron er með samherja í góðum stöðum en hann ákveður að taka þetta bara sjálfur og tekur fast skot en í stöngina!
Þróttur R.
80. mín
Gult spjald

Adam Árni Róbertsson

Full harkalegur í pressunni.
Víkingur Ó.
77. mín
InnJón Björgvin Jónsson
ÚtAsmer Begic
Víkingur Ó.
77. mín
InnBrynjar Óttar Jóhannsson
ÚtBjörn Henry Kristjánsson
74. mín
Baldur Hannes með skot fyrir utan teig, en það fór alveg nokkuð vel framhjá.
Víkingur Ó.
72. mín
Gult spjald

Ingvar Freyr Þorsteinsson

Stöðvar skyndisókn hjá Þrótturum.
Þróttur R.
71. mín
InnÖrn Bragi Hinriksson
ÚtVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Víkingur Ó.
70. mín
Gult spjald

Kolbeinn Tumi Sveinsson

Kolbeinn og Baldur flækjast í hvoröðrum. Kolbeinn pirrast eitthvað á því og virðist hreinlega traðka bara á Baldri, Twana leyfir bara leiknum að fljóta og spjaldar svo Kolbein næst þegar leikurinn stöðvast.
67. mín
Rétt yfir!
Þróttarar í hraðri sókn og Sigurður kominn í frábært færi. Hann skýtur hins vegar rétt yfir!
Þróttur R.
65. mín
Þróttarar auka forskotið aftur!

Baldur Hannes Stefánsson (stoðsending: Sigurður Egill Lárusson)

Virkilega lagleg sókn hjá heimamönnum. Boltinn berst á Sigurð á vinstri kantinum sem kemur með góða fyrirgjöf, beint á pönnuna á Baldri sem stangar boltann í netið.
Víkingur Ó.
59. mín
Hrikaleg mistök í öftustu línu!

Naim Aaras EL Hmaidi

Þróttarar eru bara að byggja upp frá öftustu línu en senda boltann beint á Da Silva sem er þá sloppinn einn í gegn. Hann tekur skotið en Aron Dagur ver. El Hmaidi nær þá frákastinu á kantinum og klárar virkilega vel. Vippa í fjærhornið!
58. mín
Brynjar Gautur lendir í einhverju samstuð við Da Silva sem er nýkominn inn á. Twana stöðvar leikinn þar sem Brynjar er eitthvað þjáður en hann virðist ætla að halda áfram.
Víkingur Ó.
57. mín
InnAllyson Fernando Santos Da Silva
ÚtEllert Gauti Heiðarsson
Þróttur R.
55. mín
Alvöru taktar í þessu marki!

Aron Snær Ingason (stoðsending: Sigurður Egill Lárusson)

Sigurður Egill með stórkostlega langa sendingu þvert yfir völlinn á Aron. Hann tekur boltann niður með virkilega flottri snertingu og er þá kominn einn gegn markmanni. Hann klárar svo færið vel framhjá Jóni.
54. mín
Sigurður Egill með spyrnuna inn í teig en Aron Snær skallar bara beint upp í loft og Víkingar hreinsa svo.
54. mín
Þróttarar hafa aðeins verið að auka sóknarþungann og vinna núna horn.
50. mín
Víkingar hafa byrjað seinni hálfleikinn vel, ekkert um færi ennþá en þetta lítur út fyrir að muni verða jafn leikur til enda.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Twana flautar og Þróttarar koma boltanum í leik.
45. mín
Þróttur R.
42. mín
Gult spjald

Njörður Þórhallsson

41. mín
Aron Snær Ingason skallar boltann yfir af stuttu færi.
Þróttur R.
40. mín
Gult spjald

Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson

39. mín
Leikur Völsungs og Kormáks/Hvatar verður í beinni textalýsingu hjá okkur. Sá leikur átti að hefjast klukkan 13 en var seinkað um hálftíma vegna vallaraðstæðna.

Smelltu hér til að fara í þá lýsingu
36. mín
KR vann Breiðablik 5-2
Liðin mættust í æfingaleik í Kópavoginum í dag. Áhugaverð úrslit. Nánar um það síðar.
35. mín
Sigurður Egill með skot sem er ekki nægilega öflugt og Jón Kristinn Elíasson ekki í vandræðum.
33. mín
Vinir okkar á Livey eru með leikinn í beinni útsendingu ef fólk vill horfa.
28. mín
Vegna tæknilegra örðugleika hefur ekki verið ítarleg lýsing frá fyrri hálfleik. En það verður bót og betrun á því í seinni hálfleik.
Þróttur R.
22. mín
Gult spjald

Baldur Hannes Stefánsson

Stoppaði skyndisókn.
Þróttur R.
18. mín
MAAAARK!

Adam Árni Róbertsson

Sending frá vinstri og Adam Árni er réttur maður á réttum stað og klárar. Flott mark.
1. mín
Fyrir leik
Sigurliðið fer til Eyja
Dregið var í 32-liða úrslit í vikunni og ljóst að sigurliðið í þessari viðureign fær útileik gegn ÍBV í næstu umferð.
Fyrir leik
Þrótturum spáð 2. sæti
Í nýjustu ótímabæru spá Lengjudeildarinnar sem Baldvin Már Borgarsson setti saman fyrir Fótbolti.net eru Þróttarar í 2. sæti. Það er einu sæti neðar en fyrsta spáin var.
Fyrir leik
Þróttarar verið virkir á markaðnum
Þróttarar hafa bætt við sig sterkum leikmönnum fyrir komandi tímabil, og það er greinilegt að þeir stefna á að vera eitt af sterkustu liðum Lengjudeildarinnar á komandi tímabili.

Komnir
Sigurður Egill Lárusson frá Val
Adam Árni Róbertsson frá Grindavík
Aron Dagur Birnuson frá Stjörnunni (á láni)
Tryggvi Snær Geirsson frá Fram

Farnir
Kári Kristjánsson í FH
Liam Daði Jeffs í ÍBV
Viktor Andri Hafþórsson í Fjölni
Hrafn Tómasson í KR (var á láni)
Sigfús Árni Guðmundsson í Fram (var á láni)
Emil Skúli Einarsson í Gróttu
Benoný Haraldsson í Þrótt Vogum á láni
Mynd: Þróttur R.
Sigurður Egill Lárusson
Fyrir leik
Víkingar þurftu framlengingu til að komast hingað
Víkingar frá Ólafsvík byrjuðu sitt tímabil í síðustu umferð Mjólkurbikarsins þar sem þeir unnu 3-2 gegn Árborg. Leikurinn endaði 1-1 eftir venjulegan leiktíma en Víkingar voru sterkari aðilinn í framlengingu og skoruðu þar tvö mörk gegn einu.

Á undirbúningstímabilinu unnu Víkingar sinn riðil í B-deild Lengjubikarsins. Þar töpuðu þeir aðeins einum leik en það var 1-0 tap fyrir Reyni frá Sandgerði. Þeir leika því í undanúrslitum keppninar sem fer fram á næstunni.

14.02.26 Árbær 1-5 Víkingur Ó.
21.02.26 Víkingur Ó 2-4 KFG
01.03.26 Sindri 1-5 Víkingur Ó.
07.03.26 Víkingur Ó. 0-1 Reynir S.
15.03.26 Víkingur Ó. 3-0 Selfoss

Fyrir leik
Fyrsti keppnisleikur Þróttara
Þróttarar hefja tímabilið sitt í dag með þessum leik í bikarnum. Þeir spiluðu fjóra leiki í Lengjubikarnum og unnu þrjá þeirra. Þeir enduðu því í 2. sæti riðilsins, þrem stigum á eftir Fylki sem vann mótið, en Þróttarar unnu einmitt Fylki í loka leik liðanna í riðlinum 3-0.

31.01.26 Leiknir 1-4 Þróttur R.
06.02.26 Þróttur R. 0-7 FH
13.02.26 Þróttur R. 4-0 Breiðablik
05.03.26 Þróttur R. 3-0 Fylkir
Fyrir leik
Mjólkurbikarinn heilsar!
Komið þið sæl og velkomin í beina textalýsingu frá leik Þróttar Reykjavíkur og Víking Ólafsvík í annari umferð Mjólkurbikarsins.

Leikurinn hefst klukkan 12:30 og verður spilaður á AVIS vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.