Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Vináttulandsleikur
Toronto
Vor í lofti
Haítí
Haítí
1 - 1
Ísland
Ísland
0 - 161' Gylfi Þór SigurðssonWilson Isidor 88'1 - 1
Dómari: Carly Shaw-MacLaren (Kanada)
Leik lokið!
Engu bætt við. Þetta var súrt.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Haítí
88. mín
Haítí jafnar

Wilson Isidor

Wilson Isidor, leikmaður Sunderland, jafnar metin hérna rétt áður en uppbótartíminn fer af stað. Þarna litu varnarmenn Íslands ekki vel út.
Mynd: EPA
85. mín
Brynjólfur skorar en markið er dæmt af vegna rangstöðu. Hárréttur dómur.
85. mín
Ruben Providence með fast skot sem Hákon Rafn á ekki í vandræðum með.
Haítí
84. mín
Inn Carl-Fred Sainte
ÚtJean-Ricner Bellegarde
Haítí
84. mín
InnWilguens Paugain
ÚtJean-Kévin Duverne
Ísland
83. mín
InnMikael Egill Ellertsson
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
Ísland
83. mín
InnHákon Arnar Haraldsson
ÚtArnór Sigurðsson
83. mín
Sókn Haítí aðeins að aukast. Þeim hefur þó ekki tekist að skapa sér nein álitleg færi síðustu mínútur.
82. mín
Leikmenn Haítí vilja fá vítaspyrnu, hendi, en ekkert dæmt. Boltinn fór í lærið á Jóni Degi.
81. mín
Logi skallar boltann aftur fyrir og Haítí fær hornspyrnu. Það kemur ekkert úr þessari hornspyrnu.
Haítí
80. mín
Gult spjald

Jean-Ricner Bellegarde

Fer harkalega í Jón Dag.
79. mín
Ég ætla að stökkva niður og gera mig kláran í viðtöl. Guðmundur Aðalsteinn siglir þessari lýsingu í höfn.
78. mín
Derrick Etienne Jr. með vandræðalega lélegt skot úr flottri stöðu. Ísland vildi aukaspyrnu í aðdragandanum. Andri Fannar liggur á grasinu og sjúkraþjálfararnir hlaupa inn á völlinn.
76. mín
Brynjólfur Willumsson flaggaður rangstæður.
75. mín
Brotið á Arnóri Sigurðssyni á hægri kantinum og Ísland fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika. Gylfi með spyrnuna en Haítí hreinsar frá.
73. mín
Mikael Anderson þarf aðstoð frá sjúkraþjálfurum þegar hann fer haltrandi af velli.
Mynd: EPA
Ísland
72. mín
Inn Brynjólfur Willumsson
ÚtMikael Anderson
Ísland
72. mín
InnÍsak Bergmann Jóhannesson
ÚtStefán Teitur Þórðarson
Ísland
72. mín
InnJón Dagur Þorsteinsson
ÚtKristall Máni Ingason
Þreföld skipting hjá Íslandi.
71. mín
Mikil ástríða í fréttamönnunum frá Haítí sem hafa tuðað samfleytt í fimm mínútur út af einhverri rangstöðu áðan.
70. mín
Leikurinn farinn aftur af stað og Aron heldur leik áfram.
68. mín
Haíti með máttlausan skalla framhjá. Aron Einar liggur eftir í grasinu og þarf aðhlynningu. Fékk högg á öxlina í baráttunni við Wilson Isidor.
67. mín
Gylfi heldur betur að minna á sig fyrir komandi landsliðsverkefni, hann er kominn með 28 landsliðsmörk í 85 leikjum.
   31.03.2026 18:58
Gylfi núna kominn tveimur mörkum fram úr næstu mönnum
Haítí
64. mín
InnFrantzdy Pierrot
ÚtDuckens Nazon
Haítí
64. mín
InnDerrick Etienne Jr.
Út Louicius Don Deedson
Ísland
61. mín
GYLFI BRÝTUR ÍSINN!!!

Gylfi Þór Sigurðsson (stoðsending: Logi Tómasson)

Logi Tómasson kemur upp vinstrsa megin og tíar boltann snyrtilega upp fyrir Gylfa sem er aleinn í teignum og klárar með skoti í fyrsta! Með vinstri í vinstra hornið. Vel gert hjá Stefáni Teiti í aðdragandanum, hann átti langa og hnitmiðaða sendingu á Loga.
61. mín
Haítí fær skyndilega dauðafæri
Löng sending fram og Duckens Nazon sleppur, Stefán Teitur á eftir honum, en skotið frá Nazon framhjá.
60. mín
Allt afskaplega rólegt, þjálfararnir að undirbúa skiptingar.
54. mín
Það þarf einhver að taka á skarið og ná að brjóta þetta upp, leikurinn heldur áfram í sama takti og í fyrri hálfleik.
52. mín
Logi Tómasson reynir að koma boltanum á Gylfa sem er í góðri stöðu við vítateigsendann en því miður kemst varnarmaður á milli.
50. mín
Haíti með sendingu inn í teig sem breytir um stefnu af varnarmanni og endar svo í höndunum á Hákoni Rafni.
Ísland
46. mín
InnAndri Fannar Baldursson
ÚtKristian Hlynsson
Andri Fannar kemur inn í hálfleik
Seinni hálfleikur hafinn.
45. mín
Rólegur leikur fyrir markverðina
Fátt um fína drætti og lítið reynt á Alexandre Pierre og Hákon.
45. mín
Markalaust í hálfleik
Í lok fyrri hálfleiksins átti Haítí skot úr teignum en í varnarmann, nánar tiltekið Hjört Hermannsson. Annars voru hápunktar þessa fyrri hálfleiks alveg afskaplega fáir.
43. mín
Gylfi með fyrirgjöf úr aukaspyrnu frá hægri en Haítí nær að koma knettinum frá.
41. mín
Úlfur skýtur framhjá
Jean-Ricner Bellegarde, leikmaður Wolves, tekur skot fyrir utan teig en framhjá markinu.
38. mín
Haíti með marktilraun
Skot utan teigs frá Don Deedson. Boltinn beint á Hákon sem á ekki í nokkrum vandræðum með að handsama knöttinn.
Haítí
37. mín
InnWoodensky Pierre
ÚtLeverton Pierre
Pierre skipting
35. mín
Ágætis spil hjá íslenska liðinu en menn ekki alveg nægileg vel tengdir í teignum og boltinn hrekkur afturfyrir í markspyrnu. Leikurinn aftur stopp þar sem leikmaður Haíti þarf aðhlynningu, það er Bellegarde. Einn þeirra allra besti maður.
33. mín
Leikurinn alls ekki verið þrumustuð hingað til
Það verður að segjast eins og er. Ísland þó aðeins betri aðilinn.
31. mín
Skot yfir
Ísland vann boltann af Haítí á hættulegum stað. Stefán Teitur freistar gæfunnar og lætur vaða en hittir boltann ekki sérlega vel og hann fer örugglega yfir markið.
26. mín
Shaw-MacLaren dómari mikið að nota flautuna núna. Leikmaður Haítí þarf aðhlynningu og leikurinn stopp.
24. mín
Mikael Anderson dæmdur brotlegur og Haítí fær aukaspyrnu á ljómandi fínum stað, þó aðeins of langt frá til að vera augljóst skotfæri. Jean-Ricner Bellegarde er þó bjartsýnn og lætur vaða en engin hætta. Vel yfir.
23. mín
Fyrri hálfleikur hálfnaður
Ísland betra liðið en við höfum enn ekki náð tilraun á rammann. Alexandre Pierre ekki þurft að gera neitt.
21. mín
Arnór með lipur tilþrif og leikur á tvo leikmenn Haítí, lendir svo í árekstri og fer niður en ekki dæmt. Arnór vildi aukaspyrnu þarna.
19. mín
Dagur Dan með fyrirgjöf á fjærsvæðið en þar er engin blá treyja.
16. mín
KRISTALL!
Gylfi með fyrirgjöf og Kristall kastar sér í boltann í teignum en skallar yfir!
15. mín
Stefán Teitur með sendingu á Mikael Anderson sem er að sleppa... en flaggaður rangstæður. Þetta var mjög tæpt. Miðað við viðbrögð Mikaels þá fannst honum þetta ekki vera réttur dómur. Ekkert VAR í dag.
Haítí
13. mín
Gult spjald

Jean-Kévin Duverne

Kristall Máni Ingason liggur í grasinu eftir að Haítímaður braut á honum. Var alltof seinn og Kristall öskraði hressilega. Ísland fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika frá vinstri.
10. mín
Haítí með marktilraun
Wilson Isidor með fyrstu marktilraun Haítí. Tekur skot úr erfiðri stöðu í fyrsta eftir fyrirgjöf frá hægri. Skotið framhjá.
8. mín
Ísland mun meira með boltann hér í upphafi og Gylfi er áberandi. Hann reynir sendingu inn í teiginn ætlaða Mikael Anderson en aðeins of föst og þetta endar í markspyrnu.
6. mín
Gylfi lætur vaða fyrir utan teig
Arnór Sigurðsson rennir boltanum á Gylfa sem lætur vaða rétt fyrir utan teiginn. Skotið meðfram grasinu og framhjá. Stuttu seinna er Kristian Hlyns flaggaður rangstæður eftir að hafa komist í hættulega stöðu.
3. mín
Við erum með bakverði sem elska að taka þátt í sóknarleiknum svo Stefán Teitur dettur á tíðum niður eins og þriðji miðvörðurinn. Það má búast við miklu flæði hjá fremstu mönnum Íslands miðað við uppstillinguna.
2. mín
Ísland byrjar á fínu spili og Mikael Anderson á fyrirgjöf meðfram jörðinni sem Ricardo Adé varnarmaður Haítí hreinsar frá.
1. mín
17:37 Þetta er komið af stað
Mikael Anderson sparkar þessu í gang. Ísland í bláu, Haítí í hvítu. Vonandi verða veðurguðirnir okkur hliðhollir næstu tvo tímana eða svo!
0. mín
17:35
Liðin fara úr upphitunargallanum og leikmenn Íslands stilla sér upp í liðsmyndatöku fyrir Mumma Lú og Arnar Laufdal.
0. mín
17:34
Seven Nation Army með The White Stripes í spilaranum. Gott val.
0. mín
17:29
Leikmenn eru komnir út á völl í 5 mínútna upphitun.
0. mín
17:28 Fáum ekki að syngja þjóðsöngvana!
Fjölmiðlafulltrúi að tilkynna hér að þegar leikmenn snúi út á völlinn verði fimm mínútna upphitun og svo beint í leikinn sjálfan. Þjóðsöngvunum verður sleppt.
0. mín
17:25
Aðili úr þjálfarateymi Haítí er að raða upp keilum á vellinum. Stutt upphitun leikmanna á að hefjast eftir 3 mínútur.
0. mín
17:21
Samkvæmt niðurtalningu á vellinum ættu leikmenn að snúa aftur út á völl í stutta upphitun eftir 8 mínútur. Á meðan ég bíð held ég áfram að glensa í kollegum mínum frá Haítí og jafnvel drekk enn einn kaffibollann.
0. mín
Nú stefnt á að leikurinn hefjist sirka 17:35
Ef það kemur þriðja eldingaviðvörunin þá verður leiknum aflýst samkvæmt upplýsingum sem við vorum að fá frá KSÍ.
0. mín
17:04 Pistill Víðis Sigurðssonar:
Meðan við bíðum eftir að leikur geti hafist þá er hér pistill sem blaðamaðurinn þaulreyndi Víðir Sigurðsson var að birta á Facebook síðu sinni:
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Miðað við styrkleikalista FIFA á að vera lítill munur á landsliðum Íslands og Haití sem eru í þann veginn að hefja vináttulandsleik karla í fótbolta í Toronto í Kanada. Á heimslistanum situr Ísland í 75. sæti en Haití er átta sætum neðar, í 83. sætinu. Haití er hins vegar á leiðinni á HM 2026 í sumar, í annað sinn í sögu þjóðarinnar. Samkvæmt áðurnefndum styrkleikalista á Haití að vera þriðja besta landslið Karíbahafsins, á eftir Jamaíku (69. sæti) og Curacao (82. sæti). Curacao mun einnig leika á HM í sumar og Jamaíka spilar einmitt í kvöld úrslitaleik í umspili um HM-sæti gegn Lýðveldinu Kongó þar sem fyrrverandi lærisveinar Heimis Hallgrímssonar eiga möguleika á að tryggja sér HM-farseðlana. Sérfræðingar Sýnar töluðu Haití full mikið niður fyrir leikinn í dag og tíndu þar til smáþjóðir sem Haití hafði sigrað í undankeppninni. Þeim láðist hins vegar að geta þess að í úrslitariðli Norður- og Mið-Ameríku hirti Haití HM-sætið á kostnað Kosta Ríka og Hondúras sem hafa verið í hópi sterkustu liða svæðisins. Haití teflir m.a. fram tveimur leikmönnum úr ensku úrvalsdeildinni og mörgum fleirum úr sterkum deildum og Ísland mætir því hörkuliði í Toronto, liði þar sem allir eru að slást um sæti í hópnum sem fer á heimsmeistaramótið í sumar. Haiti er aðeins þriðja þjóðin úr Karíbahafinu sem Ísland mætir í landsleik karla í fótbolta. Sem er dálítið merkilegt því alls er 31 þjóð úr þessum heimshluta innan vébanda Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, og af þessu svæði koma flestar þjóðirnar í Concacaf, Knattspyrnusambandi Norður- og Mið-Ameríku. Áður hefur Ísland fjórum sinnum mætt liði Bermúda í vináttulandsleikjum og einu sinni liði Trínidad og Tóbagó. Þar með er það upptalið en lítum aðeins betur á þessi samskipti Íslendinga við eyþjóðirnar sólríku. Ísland átti góð samskipti við Bermúda á sjöunda áratug síðustu aldar og þjóðirnar mættust þrisvar, fyrst árið 1964 og svo tvisvar árið 1969. Ísland vann fyrsta leikinn, 4-3, á Laugardalsvellinum sumarið 1964 þar sem KR-ingarnir Ellert B. Schram og Þórólfur Beck skoruðu tvö mörk hvor. Bermúdamenn mættu aftur í Laugardalinn fimm árum síðar, 1969, og Ísland vann aftur, nú 2-1. Ellert var aftur á skotskónum, sem og Skagamaðurinn Matthías Hallgrímsson. Íslendingar endurguldu Bermúdamönnum heimsóknina og mættu þeim í Hamilton, höfuðstað eyjarinnar, sama haust. Þá hafði Bermúda betur, 3-2, en Matthías skoraði aftur, sem og Björn Lárusson, félagi hans frá Akranesi. Síðan leið 21 ár en árið 1990 mætti íslenska landsliðið aftur til Hamilton og vann þá öruggan sigur, 4-0. Pétur Pétursson úr KR skoraði tvö mörk, Pétur Ormslev úr Fram eitt og Kjartan Einarsson úr KA eitt. Frá þeim leik og þar til Ísland og Haití mættust í Kanada í dag hafði Ísland aðeins einu sinni leikið gegn liði úr Karíbahafinu. Það var snemma árs 2006 þegar íslenska liðið fór til London og lék þar gegn Trínidad og Tóbagó á Loftus Road, heimavelli Queen’s Park Rangers. Lið TT var þá á leið í lokakeppni HM í fyrsta sinn og stemningin var gríðarleg með liðinu, eyjaskeggjar búsettir í London troðfylltu völlinn og fögnuðu vel 2-0 sigri sinna manna. Dwight Yorke, sem margir muna eftir sem leikmanni Manchester United, skoraði bæði mörkin. Þegar sá sem þetta skrifar mætti á Loftus Road til að fjalla um leikinn á sínum tíma gekk hann inn í hreinræktaða þjóðhátíðarstemmningu fólksins frá Trínidad og Tóbagó fyrir utan leikvanginn þar sem dans og söngur settu skemmtilegan svip á aðdraganda leiksins.
0. mín
16:59 Önnur eldingaviðvörun!
Liðin voru búin að stilla sér upp að búa sig undir þjóðsöngvana en halda nú skyndilega aftur til búningsklefa. Hvenær leikurinn mun hefjast veit ég ekki....
0. mín
16:57 Liðin eru loks að ganga til vallar
Þá er komið að því að þjóðsöngvarnir verði leiknir fyrir framan tóman völl. Minnir óneitanlega á Covid tímabilið þegar veiran sú skæða ógnaði heimsbyggðinni. Haítí er með skemmtilegan þjóðsöng sem myndi sóma sér vel á Þjóðlagahátíðinni í Fjallaborg. „La Dessalinienne“ heitir söngurinn og er til heiðurs byltingarleiðtoganum og fyrsta stjórnanda Haítí, Jean-Jacques Dessalines. Upphafstextinn í lauslegri íslenskri þýðingu: „Fyrir landið, fyrir forfeðurna - Göngum saman, göngum saman - Hleypum engum svikurum í okkar raðir!“
0. mín
16:49 Ég er í mikilli undirtölu
Ég er eini íslenski fjölmiðlamaðurinn hér í fréttamannastúkunni á meðan fjölmiðlamennirnir frá Haítí eru um 20. Þeir eru í miklum gír og læti í þeim, margir hverjir með húfur og trefla merkta Haítí og greinilega mikill HM fílíngur í þeim. Bara gaman. Liðin eru að halda inn úr upphitun, styttist í að leikurinn geti loks hafist.
0. mín
16:35 Liðin eru mætt aftur út í upphitun
Eldingaviðvöruninni hefur verið aflétt. Stefnir í að leikurinn geti hafist klukkan 17.
Mynd: KSÍ
Hákon Rafn Valdimarsson byrjar í markinu.
0. mín
Skilaboð frá Epic:
Mynd: KSÍ
Miklar breytingar hjá Íslandi og ólíkt Kanadaleiknum munu þeir keyra á þá, þetta verður opinn leikur að ég held, yfir 3 mörk er á frábærum stuðli á Epic, 2,49 takk fyrir.
0. mín
Stefnt á að leikurinn hefjist 17:00 (13:00 að staðartíma)
Samkvæmt upplýsingum frá Ómari Smárasyni þá munu leikmenn fá 15 mínútur til að hita upp, svo 3 mínútur í klefanum áður en kemur að þjóðsöngvum. Áætlað er að hefja leik 17:00.
0. mín
Eldingaviðvörun og allir kallaðir inn úr upphitun!
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Í miðri upphitun fyrir leikinn kemur skyndilega eldingaviðvörun og leikmönnum er skipað að fara inn í klefa af öryggisráðstöfunum! Upphitun hefst aftur 16:34 (12:34 að staðartíma). Það er því ljóst að það verða tafir á því að leikurinn fer af stað. Ekki er vitað hvenær hann mun hefjast.
0. mín
Spilar sinn fyrsta landsleik síðan 2024
Arnór Sigurðsson hefur ekki spilað í íslenska búningnum síðan í september 2024 en hann hefur gengið í gegnum erfið meiðsli. Hann hefur verið flottur með Malmö í vor og spennandi að sjá hann í sviðsljósinu í dag. Ég spjallaði við Arnór hér í Toronto á dögunum og má sjá hlekk á það viðtal hér að neðan.
Mynd: KSÍ
   27.03.2026 11:40
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
0. mín
Dómari leiksins: Carly Shaw-MacLaren (Kanada)
0. mín
Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni í byrjunarliði Haíti
Mynd: EPA
Wilson Isidor, sóknarmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, spilar sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Haítí. Isidor er 25 ára og fæddist í Frakklandi en fékk nýlega grænt ljós á að spila fyrir Haítí en afi hans er frá eyríkinu. Isidor lék fyrir yngri landslið Frakkland upp í U20 en sá ekki fram á að geta brotið sér leið inn í ógnarsterkt A-landslið þjóðarinnar. Isidor lék sinn fyrsta landsleik fyrir Haítí þegar hann kom af bekknum í 1-0 tapi gegn Túnis á laugardaginn en Haítí verður með á HM í sumar. Hann fór feikilega vel af stað með Sunderland á þessu tímabili og var kominn með fjögur mörk eftir níu umferðir. Hann hefur hinsvegar ekki skorað síðan og mínútunum farið fækkandi. Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni spila fyrir Haítí, á síðasta ári fékk Jean-Ricner Bellegarde, miðjumaður Wolves, keppnisleyfi með þjóðinni en hann fæddist einnig í Frakklandi.
0. mín
Aron Einar með fyrirliðabandið og Gylfi byrjar líka
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er nostalgíufílingur frá gyllkynslóðinni í byrjunarliði Íslands...
0. mín
Byrjunarlið íslands - Tíu breytingar
Það er aðeins Kristian Hlynsson sem byrjar báða leikina.
0. mín
Leikmenn eru mættir út á völl
Menn að skoða aðstæður áður en þeir fara inn í klefa og klæða sig í takkaskóna. Byrjunarliðin ættu að fara að detta í hús á hverri mínútu...
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
0. mín
Vor í lofti!
Það er miklu hlýrra en var á laugardaginn, skyndilega er kominn um fjórtán gráðu hiti. Miklar sveiflur í hitastiginu og leikmönnum ætti ekki að verða kalt í dag!
0. mín
Viðtal við Ísak Bergmann Jóhannesson fyrir leik:
0. mín
Viðtal við Jón Dag Þorsteinsson fyrir leik:
0. mín
Sturluð staðreynd
Þjálfari Haítí er franskur og heitir Sebastien Migne. Hann náði því afreki að stýra Haítí á HM án þess að hafa nokkurn tíma komið til landsins.
Mynd: EPA
0. mín
Sögulegur leikur
Mynd: EPA
Haítí lék vináttulandsleik hér í Toronto á laugardag. Liðið tapaði 1-0 gegn Túnis en Sebastian Tounekti, leikmaður Celtic, skoraði sigurmark Túnisa. Leikur Íslands og Haítí í dag verður sögulegur fyrir þær sakir að þjóðirnar hafa aldrei áður og raunar hefur ekkert íslenskt fótboltalandslið áður mætt Haítí. Haítí er eins og Kanada að búa sig undir þátttöku á HM í sumar en liðið er í 82. sæti heimslista FIFA, átta sætum neðar en Ísland. Enginn landsliðsmaður Haítí býr á Haítí en þetta er í annað sinn sem þjóðin kemst á HM, hitt skiptið var 1974.
0. mín
Tómar stúkur
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Það var góð stemning og um 30 þúsund manns á leiknum gegn Kanada á laugardag en umgjörðin verður allt öðruvísi gegn Haítí þó leikið verði á sama velli í Toronto. Leikurinn er klukkan 12:30 að staðartíma á virkum degi og var miðasalan var það dræm að ekki var talið að það stæði undir kostnaði að selja inn á leikinn. Því var ákveðið að þessi leikur í dag verði áhorfendalaus. Orri Steinn segir verkefnið spennandi þó það verði allt öðruvísi andrúmsloft. „Skemmtilegur leikur, ekki jafn mikið af fólki en við þurfum að taka vel á þeim og vera klárir. Það var meiri stemning í þessum leik (gegn Kanada) en þá er þetta líka komið yfir til okkar að skapa stemninguna innávið. Við þurfum að taka því mjög alvarlega, Haítí er með mjög gott lið og það verður spennandi verkefni," segir Orri Steinn.
0. mín
Vantar hreinræktaðar níur
„Ég geri nú ráð fyrir því að við leyfum einhverjum að fá mínútur. Sumir þurfa kannski að hvíla í næsta leik út af aðstæðum sem ég talaði um í aðdraganda leiksins varðandi meiðsli og mikils leikjaálags. Við munum klárlega gera einhverjar breytingar," sagði Arnar Gunnlaugsson eftir leikinn gegn Kanada. Orri Steinn Óskarsson skoraði bæði mörk Íslands gegn Kanada en hann hefur misst talsvert úr á þessu tímabili vegna meiðsla. „Okkur vantar kannski hreinræktaðar 'níur' í þessum glugga af ástæðum sem eru vel kunnar. Menn eru að spila með U21 landsliðinu og sumir eru meiddir," segir Arnar. Andri Lucas Guðjohnsen er á meiðslalistanum og þá er bróðir hans Daníel Tristan í U21 hópnum og þeir því meðal leikmanna sem ekki eru í A-landsliðshópnum í þessum glugga.
   28.03.2026 20:48
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
0. mín
Það er komið að seinni vináttulandsleiknum hér í Toronto
Góðan og gleðilegan daginn. Velkomin í beina textalýsingu frá vináttulandsleik Haítí og Íslands sem fram fer í Torontoborg í Kanada. Á sama velli mættu strákarnir okkar liði Kanada á laugardag og þá enduðu leikar 2-2. Allt um þann leik hér:
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.